Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 156. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 181 — 156. mál.
til fjármálaráðherra um endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu við íbúðarhúsnæði.
1. Hverjar eru upphæðir endurgreiðslu virðisaukaskatts til byggingaraðila vegna vinnu á byggingarstað sl. þrjú ár, sundurliðað eftir nýbyggingum, endurbótum eða viðhaldi á íbúðarhúsnæði?
2. Hefur verið lagt mat á hvort og þá hve stór hluti af heildarlaunum fyrir þessa vinnu er ekki gefinn upp til skatts?
3. Kemur til greina að hækka endurgreiðsluhlutfall virðisaukaskattsins? Hefur ráðherra slíkar aðgerðir til skoðunar og hverjir væru kostir og gallar við að hækka endurgreiðsluhlutfallið verulega?
Skriflegt svar óskast.
Fjármálaráðherra skilaði skýrslu til Alþingis á 128. löggjafarþingi 2002–2003 „um áhrif lækkunar á endurgreiðslu virðisaukaskatts úr 100% í 60% til byggjenda íbúðarhúsnæðis vegna vinnu manna á byggingarstað og til eigenda íbúðarhúsnæðis vegna viðhaldsvinnu“.
Mat skýrsluhöfunda var á þá leið að ákvörðun um endurgreiðslu virðisaukaskatts væri fyrst og fremst pólitísk þótt vissulega gæti hún haft áhrif á tekjur ríkissjóðs.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 181 — 156. mál.
Fyrirspurn
til fjármálaráðherra um endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu við íbúðarhúsnæði.
Frá Jóni Bjarnasyni.
1. Hverjar eru upphæðir endurgreiðslu virðisaukaskatts til byggingaraðila vegna vinnu á byggingarstað sl. þrjú ár, sundurliðað eftir nýbyggingum, endurbótum eða viðhaldi á íbúðarhúsnæði?
2. Hefur verið lagt mat á hvort og þá hve stór hluti af heildarlaunum fyrir þessa vinnu er ekki gefinn upp til skatts?
3. Kemur til greina að hækka endurgreiðsluhlutfall virðisaukaskattsins? Hefur ráðherra slíkar aðgerðir til skoðunar og hverjir væru kostir og gallar við að hækka endurgreiðsluhlutfallið verulega?
Skriflegt svar óskast.
Greinargerð.