Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 133. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 217  —  133. mál.




Svar



félags- og tryggingamálaráðherra við fyrirspurn Atla Gíslasonar um vinnustaði fatlaðra.

     1.      Hversu margir vinnustaðir fatlaðra hafa verið færðir úr umsjá svæðisskrifstofa málefna fatlaðra til Vinnumálastofnunar síðan það var ákveðið með lögum um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 55/2006?
    Undirbúningur yfirfærslu vinnustaða fatlaðra frá svæðisskrifstofum málefna fatlaðra til Vinnumálastofnunar hófst síðla árs 2007 eins og ákveðið var með lögum um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 55/2006, og hefur staðið yfir allt árið 2008.

     2.      Hvenær er áætlað að þessum tilflutningi verði lokið?
    Ábyrgð á atvinnumálum fatlaðra mun flytjast frá svæðisskrifstofum málefna fatlaðra til Vinnumálastofnunar 1. janúar 2009 og mun tilflutningi einstakra vinnustaða að fullu lokið 1. janúar 2010.