Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 134. máls.
forsætisráðherra við fyrirspurn Valgerðar Sverrisdóttur um aðstoðarmenn ráðherra og tímabundnar ráðningar.
1. Hversu marga aðstoðarmenn er ráðherrum heimilt að ráða?
Í 15. gr. laga nr. 73/1969 um Stjórnarráð Íslands, ásamt síðari breytingum segir: „Ráðherra er heimilt að kveðja sér til aðstoðar, meðan hann gegnir embætti, mann utan ráðuneytis, sem starfi þar sem skrifstofustjóri, enda hverfi hann úr starfi jafnskjótt sem ráðherra, en njóti þá launa þrjá mánuði, hafi hann ekki áður verið ríkisstarfsmaður, en ella eigi hann rétt á að hverfa til fyrra starfs síns eða annars starfs eigi lakara að föstum launum í þjónustu ríkisins.“
Samkvæmt þessu er ráðherrum heimilt að ráða til sín einn aðstoðarmann.
2. Hversu margir aðstoðarmenn ráðherra eru starfandi í dag?
Hver ráðherra er með einn aðstoðarmann, sbr. svar í 1. tölul., og eru aðstoðarmenn ráðherra í Stjórnarráðinu samtals 12.
3. Hversu margir starfsmenn hvers ráðuneytis hafa fengið tímabundna ráðningu og hvenær var ráðið í viðkomandi stöður?
Forsætisráðuneytið.
Í ráðuneytinu eru fimm starfsmenn með tímabundna ráðningu. Einn starfsmaður var ráðinn frá 1. ágúst 2008, tveir starfsmenn frá 1. nóvember 2008, einn starfsmaður frá 12. nóvember 2008 og einn starfsmaður frá 13. nóvember 2008.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið.
Í ráðuneytinu eru þrír starfsmenn með tímabundna ráðningu (þ.m.t. Þjóðskrá). Einn starfsmaður var ráðinn frá 12. ágúst 2008 og tveir starfsmenn ráðnir frá 2. september 2008.
Félags- og tryggingamálaráðuneytið.
Í ráðuneytinu eru sex starfsmenn með tímabundna ráðningu og voru þeir ráðnir 7. janúar 2007, 26. júní 2007, 24. janúar 2008, 1. maí 2008, 5. maí 2008 og 9. september 2008.
Fjármálaráðuneytið.
Í ráðuneytinu eru sjö starfsmenn með tímabundna ráðningu. Þrír voru ráðnir frá 1. janúar 2008, einn var ráðinn frá 16. maí 2008 og tveir voru ráðnir frá 1. júní 2008. Þá réð ráðuneytið starfsmann í hlutastarf með námi frá 1. september 2008.
Heilbrigðisráðuneytið.
Í ráðuneytinu eru tveir starfsmenn með tímabundna ráðningu, annar frá 1. október 2007 til 30. september 2008 en sú ráðning hefur verið framlengd til 31. desember 2008. Hinn starfsmaðurinn var ráðinn 1. júní 2008 til 11. júlí 2008 en samningurinn var endurnýjaður frá 1. september til 31. desember 2008.
Iðnaðarráðuneytið.
Í ráðuneytinu eru tveir starfsmenn með tímabundna ráðningu, annar frá 8. febrúar 2008 og hinn frá 1. mars 2008. Einnig var ráðinn laganemi í tímabundna stöðu og hóf hann störf 15. maí 2008.
Menntamálaráðuneytið.
Í ráðuneytinu eru sex starfsmenn með tímabundnar ráðningar og voru þeir ráðnir 14. janúar 2008, 1. febrúar 2008, 20. maí 2008, 1. september 2008 og 29. september 2008.
Samgönguráðuneytið.
Í ráðuneytinu eru engar tímabundnar ráðningar.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið.
Í ráðuneytinu eru engar tímabundnar ráðningar aðrar en í afleysingum við almenn störf á skrifstofu.
Umhverfisráðuneytið.

Utanríkisráðuneytið.
Í ráðuneytinu eru níu starfsmenn með tímabundna ráðningu. Tveir starfsmenn voru ráðnir frá 1. maí 2008, einn starfsmaður frá 11. júní 2008, einn starfsmaður frá 1. júlí 2008, einn frá 12. júlí 2008, tveir starfsmenn frá 1. ágúst 2008, einn frá 8. september sl. og einn frá 16. nóvember 2008.
Viðskiptaráðuneytið.
Í ráðuneytinu eru tveir starfsmenn með tímabundnar ráðningar, annar frá 1. maí 2008 og hinn frá 9. október 2008.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Prentað upp.
Þskj. 247 — 134. mál.
Viðbót.
Svar