Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 203. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 258  —  203. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 97/2008, um breytingu á lyfjalögum, nr. 93/1994, með síðari
breytingum.

Frá heilbrigðisnefnd.



1. gr.

    Síðari málsliður 13. gr. laganna, sbr. lög nr. 120/2008, orðast svo: Þó skal ákvæði 10. gr., hvað varðar smásöluaðila, taka gildi 1. apríl 2009.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Með frumvarpinu er lagt til að frestað verði að hluta gildistöku 10. gr. laga nr. 97/2008, um breytingu á lyfjalögum, nr. 93/1994, með síðari breytingum, til 1. apríl 2009 og þá eingöngu hvað varðar smásölu lyfja. Þessum hluta ákvæðisins var frestað til 1. janúar 2009 með lögum nr. 120/2008, um breytingu á lögum nr. 97/2008, um breytingu á lyfjalögum, nr. 93/1994, með síðari breytingum, því að gert var ráð fyrir að nýtt greiðsluþátttökukerfi lyfja kæmi til framkvæmda á þeim tíma. Þær breytingar munu frestast og þar sem mikilvægt er að afslættir af lyfjum í smásölu haldist í hendur við nýtt greiðsluþátttökukerfi lyfja er lagt til að ákvæðið taki ekki gildi fyrr en 1. apríl 2009, en þá er gert ráð fyrir að nýtt greiðsluþátttökukerfi taki gildi.