Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 172. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 287  —  172. mál.




Svar



utanríkisráðherra við fyrirspurn Árna Þórs Sigurðssonar um málefni íslenskra fanga erlendis.

     1.      Hversu margir Íslendingar eru í fangelsum erlendis? Svar óskast sundurliðað eftir löndum, lengd fangelsisdvalar og aldursbili fanga (yngri en 20 ára, 20–29 ára, 30–39 ára o.s.frv.).
    Ráðuneytinu er kunnugt um 13 íslenska ríkisborgara sem nú dveljast í fangelsum erlendis, ýmist í afplánun eða gæsluvarðhaldi. Einn þeirra er yngri en 20 ára, sjö þeirra eru á aldrinum 20–29 ára, fjórir á aldrinum 30–39 ára og einn á aldrinum 60–69 ára. Umræddir fangar dveljast í fangelsum í eftirfarandi löndum: Bandaríkjunum, Brasilíu, Danmörku, Hollandi, Spáni, Svíþjóð og Þýskalandi. Af þessum einstaklingum hafa átta hlotið fullnaðardóm sem eru svohljóðandi: 2 ár, 2 ár og 80 dagar, 3 ár og 165 dagar, 3 ár og 6 mánuðir, 3 ár og 11 mánuðir, 6 ár og 8 mánuðir, 9 ár og 315 dagar og 20 ár.
    Ráðuneytið bendir á að ekki er útilokað að fleiri íslenskir ríkisborgarar afpláni nú dóma í erlendum fangelsum þar sem aðkoma þess að málefnum einstakra fanga helgast af vilja og ósk frá viðkomandi fanga. Vísast í þessu sambandi til b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. alþjóðasamnings um ræðissamband, sbr. og lög nr. 4/1978 um aðild Íslands að samningnum, en þar segir m.a. að tilkynna skuli ræðisskrifstofu ef ríkisborgari er handtekinn, settur í fangelsi, látinn sæta gæsluvarðhaldi meðan á rannsókn stendur eða hnepptur í hald á annan hátt enda liggi fyrir að viðkomandi fangi óski eftir að það sé tilkynnt ræðisskrifstofu.

     2.      Hver er aðbúnaður íslenskra fanga í erlendum fangelsum? Svar óskast sundurliðað eftir fangelsum.
    Aðbúnaður íslenskra fanga erlendis er almennt ásættanlegur. Í einstökum tilvikum hafa kvartanir þó borist frá föngum. Hafa slíkar kvartanir einna helst lotið að húsnæðishitun, hreinlæti, ofsetnum fangaklefum og mataræði. Í ljósi persónuverndarsjónarmiða og trúnaðarskyldu ráðuneytisins gagnvart íslenskum föngum erlendis er svarið ekki sundurliðað eftir fangelsum.

     3.      Með hvaða hætti gæta íslensk stjórnvöld hagsmuna íslenskra fanga erlendis?
    Ráðuneytið leitast eftir fremsta megni við að gæta ýtrustu hagsmuna íslenskra fanga erlendis. Í þeim tilvikum sem sendiskrifstofum er tilkynnt um handtöku íslensks ríkisborgara er leitast við að tilkynna það nánustu aðstandendum án ástæðulausrar tafar sé þeim ekki þegar kunnugt um handtöku. Í upphafi er gengið úr skugga um að fanga sé tryggð lögfræðileg aðstoð og þegar þess er óskað af hálfu fanga er veitt aðstoð við útvegun lögfræðilegrar aðstoðar.
    Að öðru leyti hefur ráðuneytið aðstoðað aðstandendur í samskiptum þeirra við fanga, fangelsismálayfirvöld og eftir atvikum lögmenn. Einnig veitir ráðuneytið upplýsingar um grundvallaratriði í réttarkerfi viðkomandi lands, starfsmenn sendiskrifstofa hafa heimsótt fanga eða rætt við þá í síma, aðstoðað þá með túlkun, fundað með lögmönnum þeirra, þeir hafa og haft milligöngu um að færa föngum fjármuni, bréfsefni, bækur, dagblöð sem og aðstoðað fanga við skráningu til náms í fangelsi og annað þess háttar.
    Að öðru leyti en að framan greinir fellur það í skaut ráðuneytisins að fylgjast með því að aðstæður í fangelsum þar sem íslenskir fangar eru til afplánunar séu í samræmi við almennt viðurkenndar réttarreglur, landslög séu ekki brotin á íslenskum föngum, þeir beittir illri meðferð, persónulegu öryggi þeirra ógnað eða þeim mismunað.
    Rétt er að taka fram að það er almennt í höndum starfsmanna sendiskrifstofa að vera í beinum samskiptum við íslenska fanga erlendis. Í einhverjum tilvikum kann það þó að falla í skaut kjörræðismanna í þeim umdæmislöndum þar sem íslensk sendiskrifstofa er ekki til staðar. Í einhverjum tilvikum hafa svo íslenskir sendiráðsprestar og aðrir íslenskir prestar haft aðkomu að málefnum fanga og eftir atvikum veitt þeim ýmiss konar tilfallandi aðstoð.

     4.      Vinna íslensk stjórnvöld að því að íslenskir fangar erlendis geti fengið að afplána dóma sína hér á landi? Liggja fyrir óskir um slíkt frá einstökum föngum?
    Utanríkisráðuneytið tekur beiðni um flutning á fullnustu dóms almennt ekki til meðferðar þar sem það er á forræði dóms- og kirkjumálaráðuneytisins sem fer með forræði fangelsismála hérlendis. Í þeim tilvikum sem fangi óskar flutnings til Íslands til að ljúka fullnustu dóms í fangelsi hérlendis leiðbeinir utanríkisráðuneytið um framkvæmd þess auk þess að upplýsa um helstu skilyrði slíks flutnings. Þar sem áskilið er að fangi hafi hlotið dóm er ljóst að slíka beiðni er ekki hægt að leggja fram á frumstigum máls. Þrátt fyrir framangreint hefur utanríkisráðuneytið haft aðkomu að gerð einstakra samninga við erlend ríki um flutning fanga og þá í nánu samráði við dóms- og kirkjumálaráðuneytið. Það skal upplýst sérstaklega að íslensk stjórnvöld hafa ekki sett sig upp á móti flutningi fanga til afplánunar hérlendis svo fremi sem rými sé til staðar í íslenskum fangelsum.
    Fyrir liggja óskir frá nokkrum af þeim föngum sem að framan eru nefndir um flutning til Íslands til að ljúka afplánun. Þeim sem þegar hafa hlotið fullnaðardóm hefur verið svarað jákvætt af hálfu íslenskra stjórnvalda. Í umræddum tilvikum hafa erlend stjórnvöld þó ekki veitt vilyrði fyrir flutningi og hefur það því enn ekki gengið eftir. Í þeim tilvikum hafa erlend stjórnvöld vísað til atriða er varða einstaka fanga eða þess að skortur sé á samningi milli Íslands og umrædds ríkis um flutning dæmdra manna. Slíkum málum er þó fylgt eftir af hálfu íslenskra stjórnvalda og leitast er við að uppfylla þær kröfur sem settar eru svo að fangi fái flutning.