Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 215. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 290  —  215. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um Icesave-ábyrgðir.

Frá Siv Friðleifsdóttur.



     1.      Hafði ráðherra, fyrir yfirtöku íslenska ríkisins á Landsbanka Íslands, vitneskju um tilboð breska fjármálaeftirlitsins (FSA) um að gegn 200 milljóna punda fyrirgreiðslu væri FSA tilbúið að færa reikninga Icesave yfir í breska lögsögu?
     2.      Höfðu embættismenn eða ráðgjafar ráðherra slíka vitneskju?


Skriflegt svar óskast.