Þskj. 295 — 218. mál.
Frumvarp til laga
um breyting á lögum nr. 6/2007, um Ríkisútvarpið ohf.
(Lagt fyrir Alþingi á 136. löggjafarþingi 2008–2009.)
1. gr.
a. 3. mgr. orðast svo:
Menntamálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs og Ríkisútvarpinu ohf. ber að gera sérstakan þjónustusamning um rekstur útvarpsþjónustu í almannaþágu til fimm ára í senn. Leita skal umsagnar útvarpsréttarnefndar um þjónustusamninginn áður en hann er undirritaður. Þjónustusamningurinn skal lúta reglum 30. gr. laga um fjárreiður ríkisins, nr. 88/1997, og reglum settum samkvæmt því ákvæði. Samningurinn skal m.a. hafa að geyma ákvæði um eftirfarandi:
1. Umfang og skilgreiningu útvarpsþjónustu í almannaþágu.
2. Reikningsskil og aðskilnað í bókhaldi.
3. Mat á kostnaði við rekstur almannaþjónustu.
4. Eftirlit með ráðstöfun ríkisstyrks til útvarpsþjónustu í almannaþágu.
5. Skýrslugjöf til menntamálaráðuneytis og útvarpsréttarnefndar.
6. Reglulegt samráð menntamálaráðuneytisins og Ríkisútvarpsins ohf. um framkvæmd útvarpsþjónustu í almannaþágu.
b. Við bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Ríkisútvarpið ohf. skal tilkynna útvarpsréttarnefnd hyggist það taka upp nýja þjónustu. Útvarpsréttarnefnd metur hvort þjónustan teljist vera útvarpsþjónusta í almannaþágu eins og hún er skilgreind í 2. mgr., að teknu tilliti til þess efnis sem miðlað verður og fyrirhugaðrar miðlunaraðferðar. Útvarpsréttarnefnd setur sér reglur um mat á útvarpsþjónustu í almannaþágu.
Ríkisútvarpið ohf. skal eigi síðar en tveimur mánuðum eftir lok hvers fjárhagsárs láta útvarpsréttarnefnd í té allar nauðsynlegar upplýsingar til að sannreyna megi hvernig félagið hefur uppfyllt skyldur sínar samkvæmt gildandi lögum og reglum um ríkisstyrki til útvarpsþjónustu í almannaþágu. Útvarpsréttarnefnd ber á grundvelli þeirra upplýsinga að kostnaðargreina starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. skv. 2. mgr., að teknu tilliti til tekna að frádregnum kostnaði við þann hluta starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. sem fellur undir 4. gr. Útvarpsréttarnefnd er heimilt að fela óháðum aðila afmarkaða þætti í kostnaðargreiningu samkvæmt þessu ákvæði.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. laganna:a. Síðari málsliður orðast svo: Ríkisútvarpinu ohf. er því óheimilt að nota fjármuni frá rekstri útvarpsþjónustu í almannaþágu skv. 3. gr. til greiðslu kostnaðar vegna annarrar starfsemi.
b. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Ríkisútvarpinu ohf. er þrátt fyrir 1. mgr. heimilt að nota fjármuni frá rekstri annarrar starfsemi skv. 4. gr. til greiðslu kostnaðar vegna útvarpsþjónustu í almannaþágu skv. 3. gr.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr. laganna:a. Í stað orðsins „Tekjustofnar“ í 1. mgr. kemur: Tekjur.
b. Á eftir 1. málsl. 1. tölul. 1. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Gjaldið rennur í ríkissjóð.
c. Í stað fjárhæðarinnar „14.580 kr.“ í 3. málsl. 1. tölul. 1. mgr. kemur: 17.900 kr.
d. 2. og 3. málsl. 2. tölul. 1. mgr. falla brott.
e. Við 2. mgr. bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Í stað tíu gjalddaga skal gjalddagi einstaklinga vera einn, 1. ágúst ár hvert. Dragist framlagning álagningarskrár fram yfir 1. ágúst færist gjalddagi til 1. dags næsta mánaðar eftir framlagningu.
f. 3. mgr. fellur brott.
g. 4. mgr. orðast svo:
Stjórn félagsins skal setja gjaldskrár fyrir birtingu auglýsinga og aðra skylda tekjustofna, þar á meðal sölu á efni úr myndasafni þess. Gjaldskrár skal birta og skal þar gerð grein fyrir öllum afsláttarkjörum.
h. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Tekjur.
4. gr.
Á eftir 11. gr. laganna koma tvær nýjar greinar, 12. og 13. gr., svohljóðandi, ásamt fyrirsögn:a. (12. gr.)
Hlutfall auglýsinga í dagskrá.
Í því skyni að tryggja fjölbreytni og fjölræði á fjölmiðlamarkaði skulu eftirfarandi takmarkanir gilda um birtingu sjónvarpsauglýsinga hjá Ríkisútvarpinu ohf.:
a. Hlutfall auglýsinga af daglegum útsendingartíma Ríkisútvarpsins ohf., að kjörtíma undanskildum, skal eigi vera hærra en 10%. Á kjörtíma skal þetta hlutfall eigi vera hærra en 5%. Kjörtími telst útsendingartíminn frá kl. 19.00 til 22.00.
b. Hver auglýsingatími skal vera innan við 200 sekúndur. Ekki skulu vera fleiri en tveir auglýsingatímar á hverri klukkustund útsendingar. Óheimilt er að rjúfa dagskrárliði sem eru styttri en 45 mínútur með auglýsingatíma.
b. (13. gr.)
Auglýsingar sem beint er að börnum, kostun og vöruinnsetning.
Ríkisútvarpinu ohf. er óheimilt að sýna auglýsingar meðan á útsendingu barnaefnis stendur. Óheimilt er að sýna auglýsingar sem beinast að börnum í 10 mínútur fyrir og eftir útsendingu slíks efnis.
Ríkisútvarpinu ohf. er óheimilt að afla tekna með kostun, nema þegar um er að ræða tiltekna stórviðburði. Nánar skal kveðið á um heimildir til kostunar í þjónustusamningi skv. 3. mgr. 3. gr.
Ríkisútvarpinu ohf. er óheimilt að afla tekna með vöruinnsetningu.
5. gr.
Fyrirsögn IV. kafla laganna orðast svo: Fjárhagsmálefni o.fl.6. gr.
Á eftir IV. kafla laganna kemur nýr kafli, V. kafli, Eftirlit og viðurlög, með þremur nýjum greinum, 14..16. gr., og breytast önnur kafla- og greinanúmer samkvæmt því. Þessar nýju greinar orðast svo ásamt fyrirsögn:a. (14. gr.)
Eftirlit.
Útvarpsréttarnefnd annast eftirlit með framkvæmd laga þessara.
Hlutverk útvarpsréttarnefndar er að hafa eftirlit með því að starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. sé í samræmi við lög þessi og að framfylgja boðum og bönnum laganna.
Útvarpsréttarnefnd getur tekið upp mál að eigin frumkvæði telji hún ástæðu til að ætla að starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. sé ekki í samræmi við ákvæði laganna. Berist nefndinni erindi þess efnis tekur hún ákvörðun um hvort það gefi nægar ástæður til rannsóknar. Við afgreiðslu mála er nefndinni heimilt að raða málum í forgangsröð.
Ríkisútvarpið ohf. skal að kröfu útvarpsréttarnefndar láta henni í té allar þær upplýsingar sem hún telur nauðsynlegar til að rækja hlutverk sitt samkvæmt lögum þessum.
b. (15. gr.)
Stjórnvaldssektir.
Útvarpsréttarnefnd getur lagt stjórnvaldssektir á Ríkisútvarpið ohf. brjóti það gegn:
a. ákvæði 4. og 5. mgr. 3. gr. og 4. mgr. 14. gr. um upplýsinga- og tilkynningaskyldu,
b. ákvæði 5. gr. um fjárhagslegan aðskilnað,
c. ákvæði 12. gr. um hlutfall auglýsinga í dagskrá,
d. ákvæði 13. gr. um auglýsingar sem beint er að börnum, kostun og vöruinnsetningu.
Sektir skv. 1. mgr. geta numið allt að 10 millj. kr. Við ákvörðun sektar skal m.a. tekið tillit til alvarleika brots og tekna Ríkisútvarpsins ohf. af broti þegar það á við.
Falla má frá sektarákvörðun teljist brot óverulegt eða sé af öðrum ástæðum ekki talin þörf á beitingu sekta.
c. (16. gr.)
Fullnusta.
Nú vill aðili ekki una ákvörðun útvarpsréttarnefndar og getur hann þá höfðað mál til ógildingar hennar fyrir dómstólum. Mál skal höfðað innan þriggja mánaða frá því að aðila var tilkynnt um ákvörðun útvarpsréttarnefndar. Málshöfðun frestar ekki réttaráhrifum ákvörðunar útvarpsréttarnefndar.
Ákvarðanir útvarpsréttarnefndar um stjórnvaldssektir eru aðfararhæfar. Innheimtar stjórnvaldssektir renna til ríkissjóðs að frádregnum kostnaði við innheimtuna.
7. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Ákvæði til bráðabirgða.
Ákvæði a-liðar 4. gr. laga þessara skal taka til endurskoðunar fyrir 1. júlí 2009. Takmarkanir sem ákveðnar eru skv. a-lið 4. gr. skulu sæta endurskoðun fyrir þann tíma ef aðstæður á útvarpsmarkaði gefa tilefni til, svo sem vegna fákeppni eða samþjöppunar eignarhalds á fjölmiðlum.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Frumvarp þetta er samið á vegum menntamálaráðuneytisins. Tilefni þess er fyrst og fremst endurskoðun á 1. tölul. 1. mgr. 11. gr. laga nr. 6/2007, um Ríkisútvarpið ohf., þar sem fjallað er um tekjustofna Ríkisútvarpsins ohf., en þar er gert ráð fyrir að tekið verði upp sérstakt gjald sem leggst á einstaklinga og lögaðila 1. janúar 2009. Með frumvarpinu eru einnig lagðar til frekari breytingar á lögunum sem miða að því að gera starfsemi félagsins gagnsærri og bæta samkeppnisumhverfi fjölmiðla.
Helstu breytingar frumvarpsins varða í fyrsta lagi ákvæði 11. gr. laganna um tekjustofna Ríkisútvarpsins ohf. Í öðru lagi eru lagðar til breytingar sem miða að því að koma á skilvirku eftirliti með starfsemi Ríkisútvarpsins ohf., þar á meðal með álagningu stjórnvaldssekta, og skilja með afgerandi hætti á milli eftirlits með lögunum og eignarhalds á félaginu. Í þriðja lagi er lagt til að ákvæði laganna um þjónustusamning um rekstur útvarpsþjónustu í almannaþágu á milli menntamálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs og Ríkisútvarpsins ohf. verði gerð ítarlegri. Í fjórða lagi er lagt til að þrátt fyrir ákvæði 5. gr. laganna um fjárhagslegan aðskilnað verði Ríkisútvarpinu ohf. eftirleiðis heimilt að ráðstafa fjármunum frá rekstri annarrar starfsemi skv. 4. gr. til greiðslu kostnaðar vegna útvarpsþjónustu í almannaþágu skv. 3. gr. laganna. Loks er lagt til að sett verði sérstakt ákvæði sem takmarkar heimild Ríkisútvarpsins ohf. til tekjuöflunar með sölu auglýsinga, kostun og vöruinnsetningu.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Um a-lið.
Lagðar eru til breytingar á 3. mgr. 3. gr. laganna sem miða að því að gera umgjörð laganna um þjónustusamning þann sem menntamálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs og Ríkisútvarpið ohf. gera sín á milli skýrari. Með þessari breytingu er markmiðið að lýsa nánar í lögunum tilgangi þjónustusamningins og inntaki hans, að teknu tilliti til þeirra krafna sem gerðar eru til félagsins á grundvelli laganna. Gert er ráð fyrir að samningurinn verði til fimm ára og að skylt verði að leita umsagnar útvarpsréttarnefndar um efni hans áður en hann er undirritaður, en ekki er mælt fyrir um slíkt í núgildandi lögum. Tekið er fram að þjónustusamningurinn lúti reglum 30. gr. laga nr. 88/1997, um fjárreiður ríkisins, og reglum settum samkvæmt því ákvæði, en um það atriði vísast nánar til athugasemda við 3. gr. frumvarpsins.
Um b-lið.
Lagt er til að við 3. gr. laganna bætist tvær nýjar málsgreinar. Í hinni fyrri er útvarpsréttarnefnd falið að meta hvort ný þjónusta sem Ríkisútvarpið ohf. hyggst veita telst vera útvarpsþjónusta í almannaþágu, en standa má straum af slíkri þjónustu með ríkisstyrkjum að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Með nýrri þjónustu er átt við samfellt og viðvarandi framboð þjónustu eftir tiltekinni miðlunaraðferð sem ekki telst falla undir þá þjónustu sem þegar er lýst í 2. mgr. 3. gr. laganna. Útvíkkun á umfangi útvarpsþjónustu í almannaþágu er ávallt háð undangengnu mati á því hvort þjónustan falli undir heimildarákvæði 2. mgr. 59. gr. samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. einnig kafla 24C.6.1. í leiðbeinandi reglum ríkisstyrkja- og samkeppnisdeildar Eftirlitsstofnunar EFTA um útvarpsþjónustu í almannaþágu, frá 23. apríl 2004.
Hingað til hefur menntamálaráðuneytið metið hvort ný þjónusta teljist vera útvarpsþjónusta í almannaþágu, eins og hún er skilgreind í 1. mgr. 3. gr. laganna, eða eftir atvikum önnur starfsemi í skilningi 4. gr., og gilda um þetta reglur menntamálaráðuneytisins nr. 275/2007. Óheppilegt þykir að mat á þessu atriði sé í höndum menntamálaráðuneytis þar sem það fer með eignarhlut íslenska ríkisins í Ríkisútvarpinu ohf. og getur því ekki talist fyllilega óháður aðili að þessu leyti. Er því lagt til að útvarpsréttarnefnd verði falið að meta þetta og er gert ráð fyrir að Ríkisútvarpinu ohf. sé skylt að tilkynna nefndinni um hvers konar nýja þjónustu sem það hyggst taka upp til viðbótar þeirri þjónustu sem skilgreind er í 2. mgr. 3. gr. laganna. Við matið skal útvarpsréttarnefnd leitast við að tryggja að þjónustan uppfylli menningarlegar, lýðræðislegar og félagslegar þarfir íslensks samfélags. Gert er ráð fyrir að nefndin setji sér verklagsreglur um mat á útvarpsþjónustu í almannaþágu, en í samræmi við framangreinda breytingu þykir eðlilegt að hinn sjálfstæði matsaðili setji sér sjálfur reglur að þessu leyti. Við mat á nýrri þjónustu getur nefndin að sjálfsögðu leitað umsagnar eða álits hjá þar til bærum sérfræðingum eftir því sem þurfa þykir.
Hin málsgreinin sem lagt er til að bætist við 3. gr. fjallar um skyldu Ríkisútvarpsins ohf. til að láta útvarpsréttarnefnd í té upplýsingar til að sannreyna megi hvernig félagið hefur uppfyllt skyldur sínar samkvæmt lögum og reglum um ríkisstyrki til útvarpsþjónustu í almannaþágu. Lagt er til að nefndinni verði falið það hlutverk að kostnaðargreina starfsemi félagsins vegna útvarpsþjónustu í almannaþágu að teknu tilliti til tekna að frádregnum kostnaði vegna annarrar starfsemi félagsins. Hingað til hefur ríkisendurskoðun verið falið að sannreyna hvernig Ríkisútvarpið ohf. uppfyllir skyldur sínar samkvæmt fyrrgreindum reglum ríkisstyrkja- og samkeppnisdeildar Eftirlitsstofnunar EFTA og jafnframt sannreynt kostnaðargreiningu á hlutverki félagsins við rekstur útvarpsþjónustu í almannaþágu á grundvelli ársreiknings og upplýsinga frá félaginu, sbr. ákvæði í núgildandi þjónustusamningi menntamálaráðuneytisins og Ríkisútvarpsins ohf. Með hliðsjón af því hlutverki sem útvarpsréttarnefnd er fengið með frumvarpi þessu þykir eðlilegt að eftirlit sé að þessu leyti í höndum nefndarinnar. Hins vegar er lagt til að útvarpsréttarnefnd verði heimilt að fela óháðum aðila afmarkaða þætti í kostnaðargreiningunni svo sem ríkisendurskoðun eða öðrum með viðeigandi þekkingu.
Um 2. gr.
Með þessari grein eru lagðar til breytingar á 5. gr. laganna sem fjallar um fjárhagslegan aðskilnað reksturs sem fellur undir útvarpsþjónustu í almannaþágu annars vegar og reksturs vegna annarrar starfsemi hins vegar.
Um a-lið.
Lögð er til orðalagsbreyting á síðari málslið 5. gr., en í ákvæðinu er áréttað að Ríkisútvarpinu ohf. sé óheimilt að nota fjármuni frá rekstri útvarpsþjónustu í almannaþágu til greiðslu kostnaðar vegna annarrar starfsemi. Lagt er til að síðasti hluti málsliðarins verði felldur á brott, enda augljóst að til annarrar starfsemi heyrir samkeppnisrekstur og því ekki nauðsynlegt að tilgreina þetta sérstaklega. Þess skal hins vegar að sjálfsögðu sérstaklega gætt að tekju- og kostnaðarliðum vegna þeirrar starfsemi sem fellur undir útvarpsþjónustu í almannaþágu annars vegar og annarrar starfsemi sem flokka má sem samkeppnisrekstur hins vegar sé haldið aðskildum. Með þessu er leitast við að tryggja að tekjur frá útvarpsþjónustu í almannaþágu séu ekki nýttar til niðurgreiðslu á annarri starfsemi.
Um b-lið.
Lagt er til að lögfest verði undantekning frá meginreglu 1. mgr. þess efnis að Ríkisútvarpinu ohf. verði heimilt að ráðstafa fjármunum frá rekstri annarrar starfsemi skv. 4. gr. til greiðslu kostnaðar vegna útvarpsþjónustu í almannaþágu skv. 3. gr. laganna. Ákvæði þessu er ætlað að hvetja Ríkisútvarpið ohf. til aukinnar verðmætasköpunar og öflugrar útvarpsþjónustu í almannaþágu. Þess má geta að þetta fyrirkomulag hefur verið við lýði í ýmsum aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins og gefist vel.
Um 3. gr.
Í 1. tölul. 1. mgr. 11. gr. laga nr. 6/2007, um Ríkisútvarpið ohf., er gert ráð fyrir að í stað útvarpsgjalds verði tekið upp sérstakt gjald sem lagt verði á einstaklinga og lögaðila 1. janúar 2009. Frá sama tíma falla úr gildi 12., 13., 14. og 16. gr. laga nr. 122/2000, um útvarpsgjald og innheimtu þess. Eins og rakið er í athugasemdum við c-lið greinarinnar var við það miðað að við þetta tímamark yrði fjárhæð gjaldsins endurskoðuð. Ljóst er hins vegar, eins og nánar er rakið í skýringum við einstaka liði ákvæðisins, að ákveðin vandkvæði eru á innheimtu gjaldsins og ráðstöfun þess til félagsins. Af ákvæðum II. kafla laga um Ríkisútvarpið ohf. leiðir enn fremur að meginhlutverk félagsins er hvers konar útvarpsrekstur í almannaþágu. Þá er í 3. mgr. 3. gr. laganna, sbr. 1. gr. frumvarpsins, tekið fram að menntamálaráðherra og Ríkisútvarpinu ohf. beri að gera sérstakan þjónustusamning um markmið, umfang og nánari kröfur um útvarpsþjónustu í almannaþágu, auk annarra atriða sem þar eru nánar greind. Af 6. mgr. 30. gr. laga um fjárreiður ríkisins, nr. 88/1997, leiðir svo, sem áður segir, að fylgja ber ákvæðum greinarinnar við gerð þjónustusamningsins. Í þessu ljósi þykir m.a. rétt að innheimt gjald skv. 1. tölul. 1. mgr. 11. gr. laganna renni í ríkissjóð. Þannig fær félagið ekki gjaldið til sín. Hins vegar má gera ráð fyrir því að tekjur af gjaldinu muni ásamt öðru hafa áhrif á ákvörðun um greiðslur samkvæmt þjónustusamningi. Rétt er að undirstrika að nefnt ákvæði laga um fjárreiður ríkisins gerir ráð fyrir því að þjónustusamningar geti verið til allt að sex ára, en eins og áður greinir er í 1. gr. frumvarpsins er lagt til að þjónustusamningurinn verði til fimm ára í senn. Samkvæmt því sem hér er lagt til ættu fjárhagslegar forsendur fyrir framkvæmd þjónustusamningsins að vera ljósar. Í samræmi við þessa framsetningu er lagt til að heiti greinarinnar verði breytt til samræmis við 2. og 3. tölul. þar sem talað er um tekjur félagsins og að gjaldið renni í ríkissjóð.
Í c-lið er lagt til að fjárhæð gjalds skv. 1. tölul. 1. mgr. 11. gr. laganna hækki úr 14.580 kr. í 17.900 kr. Í athugasemdum við 1. mgr. 11. gr. frumvarps þess sem varð að lögum nr. 6/2007 kemur fram að við útreikninga á gjaldinu hafi verið gert ráð fyrir óbreyttum tekjum Ríkisútvarpsins ohf. og höfð hliðsjón af tekjustreymi félagsins á árunum 2005 og 2006 og lagt til grundvallar að allir gjaldendur sem féllu undir lögin stæðu skil á gjaldinu. Í frumvarpinu var jafnframt tekið fram að eðlilegt væri að fjárhæð gjaldsins yrði endurskoðuð þegar nær drægi breytingu á tekjustofnum Ríkisútvarpsins ohf. úr útvarpsgjaldi í sérstakt gjald skv. 1. tölul. 1. mgr. 11. gr. laganna. Þá var því sjónarmiði lýst að haga bæri álagningu gjaldsins þannig að hvert heimili með tvo einstaklinga sem greiða mundu gjaldið yrði nokkurn veginn jafnsett eftir upptöku gjaldsins. Við það er miðað að þeir einstaklingar sem greiða í Framkvæmdasjóð aldraðra greiði sérstakt gjald, svo og þeir lögaðilar sem eru skattskyldir og bera sjálfstæða skattaðild. Undanskilin álagningu gjaldsins eru dánarbú, þrotabú og ýmsir lögaðilar, svo sem stofnanir í eigu ríkis og sveitarfélaga, félagasamtök og sjálfseignarstofnanir sem ekki eru reknar í hagnaðarskyni. Til viðmiðunar var gjald í framkvæmdasjóð aldraðra lagt á 185.532 einstaklinga álagningarárið 2008 vegna tekna árið 2007 og hafði þeim fjölgað um 2,35% frá árinu á undan. Undanþegnir gjaldinu voru einstaklingar með tekjuskattsstofn undir 1.080.067 kr., þ.m.t. námsmenn 16 ára og eldri undir þeim tekjumörkum. Samkvæmt upplýsingum ríkisskattstjóra voru lögaðilar á skrá í október sl. 41.198. Af þeim voru lögð opinber gjöld á 32.868 vegna tekna þeirra á árinu 2007. Fjöldi lögaðila sem greiddi opinber gjöld í október sl. var 24.409. Með hliðsjón af framansögðu, og að teknu tilliti til þess að atvinnu- og tekjuhorfur eru ekki bjartar nú um stundir, þykir varlegt að áætla að greiðendur gjaldsins geti verið um 205.000 á árinu 2009, en vitanlega ríkir nokkur óvissa um þann fjölda. Með því að láta gjaldið renna í ríkissjóð er aukin vissa í rekstri Ríkisútvarpsins ohf., en ríkissjóður mun bera áhættuna af óvissu um fjölda greiðenda sem félagið hefði ella borið.
Árleg greiðsluskylda útvarpsgjalds skv. 12. gr. laga um útvarpsgjald og innheimtu þess nemur nú 35.940 kr. á hvert heimili. Í frumvarpi þessu er lagt til að hækkun gjaldsins frá því sem ákveðið er í 1. tölul. 1. mgr. 11. gr. laga um Ríkisútvarpið ohf. taki mið af því sjónarmiði sem áður er lýst, að haga bæri álagningu gjaldsins þannig að heimili með tvo einstaklinga sem greiða mundu gjaldið verði því næst sem jafnsett eftir upptöku gjaldsins. Jafnframt tekur hækkun gjaldsins mið af því sjónarmiði að skapa svigrúm fyrir minni tekjur félagsins á auglýsingamarkaði. Samkvæmt þessu yrði gjaldið 17.900 kr., sem felur í sér rétt um 23% hækkun heildartekna Ríkisútvarpsins ohf. frá gildandi lögum. Tekjuaukning félagsins stafar að mestu af því að lögaðilar með sjálfstæða skattaðild greiða gjaldið nú, en greiddu það ekki áður. Rétt er að benda á að upptaka gjaldsins snertir gjaldendur með ólíkum hætti eftir því annars vegar hve margir deildu greiðslum afnotagjalds og hins vegar hvernig álagningin varðar einstaklinga og lögaðila. Þannig munu sumir verða undanþegnir gjaldinu og greiðslur þeirra sem eru einir í heimili munu í flestum tilvikum lækka.
Í d-lið er lagt til að 2. og 3. málsl. 2. tölul. 1. mgr. falli brott, en það er í samræmi við 4. gr. frumvarpsins þar sem lagt til að tvö ný ákvæði, 12. og 13. gr., um auglýsingar í dagskrá, verði lögfest.
Þá er í e-lið lagt til að tveir nýir málsliðir bætist við 2. mgr. þar sem við það verði miðað að gjalddagi skv. 1. tölul. 1. mgr. 11. gr. laganna verið einn í stað 10 eins og kveðið er á um í tilvitnuðum ákvæðum laga um tekjuskatt. Er hér fylgt sömu málsmeðferð og gildir um greiðslu gjalds í Framkvæmdasjóð aldraðra.
Enn fremur er í f-lið lagt til að 3. mgr. falli brott. Í lögum um Ríkisútvarpið ohf. og greinargerð með frumvarpi því er varð að þeim lögum er skýrt að tekjur Ríkisútvarpsins ohf. af hinu sérstaka gjaldi skv. 1. tölul. 1. mgr. 11. gr. laganna taka mið af því gjaldi sem raunverulega innheimtist. Þannig skal áætla fyrir gjaldinu fyrir fram í fjárlögum og greiða til félagsins mánaðarlega 1/12 af áætluðum tekjum vegna gjaldsins árið á eftir. Þegar raunálagning liggur fyrir á haustmánuðum skal gera upp við félagið miðað við rauntekjur. Í þessu felst að ef innheimt fjárhæð gjaldsins verður hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir rennur mismunurinn til félagsins. Ef fjárhæðin reyndist á hinn bóginn lægri, getur það leitt til þess að félagið fái skert eða jafnvel ekkert rekstrarfé síðustu mánuði ársins. Miðað við efnahagshorfur má reikna með því að áætlun sem taki mið af greiðendafjölda 2008, þar sem byggt er á álagningu ársins 2007, feli í sér ofáætlun á fjölda greiðenda á árinu 2009. Þannig er varlegt að reikna með því að greiðendur geti mögulega orðið færri en gengið er út frá í áætluninni. Í stað þess að búa við slíka óvissu þar sem Ríkisútvarpið yrði í áætlunum sínum að taka mið af slíkum aðstæðum er, eins og rakið hefur verið, lagt til að gjaldið greiðist í ríkissjóð.
Loks er lagt til að 4. mgr., þar sem fjallað er um gjaldskrár fyrir birtingu auglýsinga og aðra skylda tekjustofna, verði gerð skýrari, auk þess sem lagt er til að áskilið verði að gjaldskrár skuli birta og að í þeim skuli gerð grein fyrir öllum afsláttarkjörum. Þessi breyting miðar m.a. að því að gera starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. gagnsærri og tryggja að jafnræðis sé gætt í verðlagningu hjá félaginu. Hvað birtingu gjaldskráa varðar þykir eðlilegt að þær verði birtar á heimasíðu félagsins eða með öðrum sambærilegum hætti.
Um 4. gr.
Greininni er ætlað að skapa umgjörð um þátttöku Ríkisútvarpsins ohf á auglýsingamarkaði.
Samkvæmt 1. mgr. skal hlutfall auglýsinga af daglegum útsendingartíma Ríkisútvarpsins ohf. vera innan við 10%, að kjörtíma undanskildum en þá má hlutfall auglýsinga ekki fara yfir 5%. Kjörtími er hér skilgreindur sem útsendingartíminn frá kl. 19.00 til 22.00. Órofinn og samfelldur auglýsingatími skal vera innan við 200 sekúndur og skulu að hámarki vera tveir auglýsingatímar á hverri klukkustund útsendingar. Þá er mælt fyrir um að óheimilt sé að rjúfa dagskrárliði sem eru styttri en 45 mínútur með auglýsingatíma.
Með því að takmarka svigrúm Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði er stefnt að því að treysta rekstur sjálfstætt starfandi fjölmiðla og stuðla að sem fjölbreyttustu fjölmiðlaumhverfi á Íslandi.
Um b-lið (13. gr.).
Í 1. mgr. er bann lagt við birtingu auglýsinga á útsendingartíma barnaefnis, sem og bann við birtingu auglýsinga er beinast að börnum 10 mínútur fyrir og eftir útsendingu slíks efnis.
Í 2. mgr. eru settar reglur um kostun og er meginreglan sú að kostun dagskrárefnis er óheimil. Frá því eru undantekningar varðandi tiltekna stórviðburði. Nánar skal kveðið á um heimildir til kostunar í þjónustusamningi. Með viðburðum í þessu samhengi er t.d. átt við heimsmeistarakeppni og Evrópumeistarakeppni í knattspyrnu, Ólympíuleika og úrslitakeppni söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva (Evróvisjón). Gert er ráð fyrir því að nánari reglur verði settar um sambærilega innlenda atburði í þjónustusamningi, t.d. innlenda íþróttaviðburði, að svo miklu leyti sem útsending slíkra viðburða telst ekki vera í samkeppni við önnur útvarpsfyrirtæki. Dæmi um innlenda viðburði sem undanþága ætti að taka til eru t.a.m. Íslensku tónlistarverðlaunin, Eddan, Gríman og aðrir sambærilegir menningarviðburðir.
Í 3. mgr. er bann lagt við því að Ríkisútvarpið ohf. afli sér tekna með vöruinnsetningu. Með vöruinnsetningu er hér átt við samninga við framleiðendur vöru og þjónustu um óbeina kynningu á vörum þeirra eða þjónustu með innsetningu þeirra í sviðsmyndir og hvers konar umfjöllun sem kann að hafa markaðslegt gildi.
Um 5. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.
Um 6. gr.
Með 6. gr. frumvarpsins er lagt til að nýjum kafla, þar sem fjallað verði um eftirlit með starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. og viðurlög við brotum á einstökum ákvæðum laganna, verði bætt við lögin. Í lögunum er ekki gert ráð fyrir að sérstakur aðili annist eftirlit með því að starfsemi félagsins sé í samræmi við ákvæði þeirra. Hins vegar hafa stjórnvöld á borð við útvarpsréttarnefnd, Samkeppniseftirlitið og Neytendastofu eftirlit með starfsemi félagsins á grundvelli viðkomandi sérlaga og geta þau eftir atvikum gripið til álagningar stjórnvaldssekta sé starfsemi þess ekki í samræmi við viðkomandi lög. Þrátt fyrir eftirlit með starfsemi félagsins á grundvelli annarra laga er ekki fyrir hendi sérstakt eftirlit með starfsemi þess á grundvelli laga nr. 6/2007 og brjóti hún í bága við ákvæði laganna er ekki unnt að grípa til neins konar úrræða. Telji einhver aðili að Ríkisútvarpið ohf. hafi brotið gegn lögunum er honum þó að sjálfsögðu frjálst að leita til dómstóla geti hann sýnt fram á lögvarða hagsmuni af því. Í framkvæmd hefur skortur á eftirliti með starfsemi félagsins og viðeigandi úrræðum sé brotið gegn lögunum þótt óheppilegur. Er því lagt til að útvarpsréttarnefnd, sem sjálfstæðu stjórnvaldi, verði falið eftirlit með starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. á grundvelli laganna og nefndinni veitt heimild til að beita stjórnvaldssektum vegna tiltekinna brota gegn ákvæðum þeirra. Með virku eftirliti er stefnt að því að auka gagnsæi í starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. og tryggja enn frekar að það sinni því hlutverki sem því er ætlað í almannaþágu.
Um a-lið (14. gr.).
Lagt er til að lögfest verði nýtt ákvæði um eftirlit útvarpsréttarnefndar með framkvæmd laganna. Gert er ráð fyrir því að nefndin geti bæði tekið upp mál að eigin frumkvæði og tekið við erindum er varða ætluð brot Ríkisútvarpsins ohf. á ákvæðum laganna. Ennfremur er lögð víðtæk upplýsingaskylda á félagið og ber því að kröfu útvarpsréttarnefndar að láta henni í té allar þær upplýsingar sem nefndin telur nauðsynlegar til að rækja umrætt eftirlitshlutverk sitt.
Um b-lið (15. gr.).
Lagt er til að lögfest verði nýtt ákvæði þar sem útvarpsréttarnefnd er veitt heimild til þess að leggja stjórnvaldssektir á Ríkisútvarpið ohf. brjóti það gegn nánar tilgreindum ákvæðum laganna. Lagt er til að viðurlög við brotum gegn lögunum verði stjórnvaldssektir fremur en hefðbundnar refsingar þar sem þau brot sem tilgreind eru í ákvæðinu þykja almennt séð vera þess eðlis að ekki sé ástæða til að þau sæti meðferð að hætti opinberra mála. Þá þykir úrræði af þessum toga skjótvirkara og líklegra til skilvirkrar beitingar verði frumvarpið að lögum. Í 1. mgr. hins nýja ákvæðis eru talin upp þau brot sem geta varðað stjórnvaldssektum og vísast um þau til frumvarpsgreinarinnar. Í 2. mgr. er lagt til að sektir geti numið allt að 10 millj. kr. Nauðsynlegt er að setja í lögin þak á fjárhæð þeirra sekta sem nefndinni er heimilt að leggja á, en henni er aftur á móti veitt umtalsvert svigrúm til sektarákvarðana innan þeirra marka. Þá kemur fram að við ákvörðun sekta skuli m.a. tekið tillit til alvarleika brots og tekna Ríkisútvarpsins ohf. af broti þegar það á við. Í 3. mgr. er loks lagt til að útvarpsréttarnefnd verði heimilt að falla frá sektarákvörðun teljist brot óverulegt eða sé af öðrum ástæðum ekki talin þörf á beitingu sekta. Einkum er gert ráð fyrir að þessari heimild verði beitt þegar um afar smávægileg brot er að ræða eða af öðrum sambærilegum ástæðum þykir ekki tilefni til að beita sektum.
Um c-lið (16. gr.).
Í greininni er fjallað um fullnustu ákvaðana útvarpsréttarnefndar á grundvelli laganna. Í 1. mgr. er mælt fyrir um að ákvarðanir útvarpsréttarnefndar séu fullnaðarúrlausnir á stjórnsýslustigi og sæti ekki stjórnsýslukæru. Með þessu er lögð áhersla á sjálfstæði nefndarinnar sem eftirlitsaðila á grundvelli laganna. Svo sem lagt er til í 2. mgr. geta þeir aðilar sem það kjósa þó eftir sem áður höfðað mál til ógildingar einstakra ákvarðana nefndarinnar fyrir dómstólum landsins. Lagt er til að sá réttur sæti ekki öðrum takmörkunum en að mál sé höfðað innan þriggja mánaða frá því að aðila var tilkynnt um ákvörðun nefndarinnar. Málshöfðunarfrestir af þessum toga eru ekki einhlítir að lögum og í sumum tilvikum gert ráð fyrir að þeir nemi allt að sex mánuðum. Þegar horft er til eðlis þeirrar starfsemi sem hér er fjallað um og þeirra ákvarðana sem útvarpsréttarnefnd er ætlað að taka þykja veigamikil rök standa til þess að málsmeðferð verði hraðað svo sem kostur er og endanlegar ákvarðanir liggi fyrir fyrr en seinna. Þá er þess að gæta að ekki er gert ráð fyrir því að málshöfðun fresti réttaráhrifum ákvarðana útvarpsréttarnefndar og er sú tilhögun í samræmi við almennar reglur. Í 3. mgr. er kveðið á um að ákvarðanir útvarpsréttarnefndar um stjórnvaldssektir séu aðfararhæfar og að innheimtar sektir renni í ríkissjóð að frádregnum kostnaði við innheimtuna.
Um 7. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.
Um ákvæði til bráðabirgða.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 6/2007,
um Ríkisútvarpið ohf.
Samkvæmt bráðabirgðaákvæði í gildandi lögum um Ríkisútvarpið ohf. hefur fyrirtækið tekjur af afnotagjöldum fram að árslokum 2008. Eftir það tekur gildi nýr tekjustofn með sérstöku gjaldi sem skattstjórar leggja á einstaklinga og lögaðila en það nemur 14.580 kr. samkvæmt gildandi lögum. Í frumvarpi þessu er lagt til að gjaldið hækki þegar það kemur til framkvæmda um 22,8% eða í 17.900 kr.
Gert er ráð fyrir að gjaldið verði lagt á einstaklinga í fyrsta sinn í lok júlí 2009 vegna tekjuársins 2008 og á lögaðila í lok október 2009 vegna tekjuársins 2008. Fjöldi þeirra sem gjaldið verður lagt á kemur því ekki í ljós fyrr en þá. Búist er við að ekki takist að innheimta gjaldið hjá hluta þeirra lögaðila sem það verður lagt á. Í umsögn ríkisskattstjóra um frumvarp til laga um Ríkisútvarpið ohf. kemur fram að nokkur þúsund félög séu ekki lengur með starfsemi og eigi engar eignir. Jafnframt er bent á að þar sem lögin gera ekki ráð fyrir heimild til að undanþiggja þessi félög gjaldinu geti innheimta þess tekið langan tíma og reynst kostnaðarsöm. Lögin gera ráð fyrir að í byrjun hvers mánaðar greiði fjármálaráðuneytið Ríkisútvarpinu ohf. fyrir fram fjárhæð sem svarar til 1/12 áætlaðra heildartekna af gjaldi ársins. Í frumvarpinu er lagt til að ákvæði um þessa greiðslutilhögun falli niður.
Þótt forsendur fyrir áætlun um tekjur af gjaldinu á árinu 2009 liggi ekki fyrir skal hér eigi að síður gerð tilraun til að áætla hvaða tekjum það hefði hugsanlega skilað í ár hefði það verið lagt á við álagningu á árinu 2008 og framreikna þær svo til ársins 2009.
Sérstakt gjald verður lagt á sömu einstaklinga og greiða gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra. Samkvæmt álagningarskrá ríkisskattstjóra var gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra lagt á 185.532 einstaklinga í lok júlí í ár, eða 2,3% fleiri en árið áður. Að auki voru lögð opinber gjöld á 32.868 tekjuskattsskylda lögaðila í lok október sl. eða 9,2% fleiri en árið áður. Þar af var áætlað á 10.488 aðila eða þriðjunginn og fjölgaði áætlunum um 10% frá fyrra ári. Samtals má því ætla að gjaldið hefði verið lagt á 218.400 aðila og að gjald upp á 17.900 kr. hefði skilað 3.909 m.kr. álögðum tekjum í ár. Um það bil 98% af álögðu gjaldi á einstaklinga í Framkvæmdasjóð aldraðra hefur verið innheimt og gefur það vísbendingu um innheimtu gjaldsins hjá einstaklingum. Óvissa um innheimtu hjá lögaðilum er hins vegar veruleg í ljósi þess meðal annars að áætlað var á þriðjung þeirra. Sé gengið út frá 98% innheimtu hjá einstaklingum og 67% hjá lögaðilum án ærins kostnaðar hefðu 203.842 aðilar greitt samtals 3.650 m.kr. gjald í ár ef það hefði verið lagt á. Sé gengið út frá því að gjaldendum fjölgi um 2,3% við álagningu ársins 2009 á grundvelli tekjuársins 2008, eins og milli áranna á undan, og verði 208.530 gæti álagning gjaldsins numið 4.000 m.kr. og innheimta þess skilað 3.733 m.kr. árið 2009. Í þessu sambandi þarf að hafa í huga að horfur eru á þrengingum í efnahagslífinu á næsta ári og því óvíst að takist að innheimta meiri tekjur þótt gjaldendum fjölgi. Auk þess er áformað að hækka skattleysismörk um 18% samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2009. Það kann að leiða til þess að skattskyldum einstaklingum fækki umtalsvert sem kæmi síðan fram í samdrætti í tekjum af gjaldinu á álagningarárinu 2010. Til að mæta því gæti þá þurft að hækka gjaldið í sama mæli til að viðhalda sömu tekjum.
Vakin er athygli á því að í athugasemdum við frumvarpið er reiknað með 205.000 greiðendum útvarpsgjalds á árinu 2009 en jafnframt sleginn sá varnagli að í ljósi efnahagsástandsins geti verið um ofáætlun að ræða.
Áætlað er í fjárlögum 2008 að tekjur af afnotagjaldi sem Ríkisútvarpið innheimtir skili 2.930 m.kr. tekjum. Því til viðbótar er reiknað með að 5% hækkun á gjaldinu 1. ágúst sl. skili 60 m.kr. þannig að tekjur ársins verði alls um 3 milljarðar króna. Ársreikningur Ríkisútvarpsins fyrir tímabilið 1. september 2007 til 30. ágúst 2008 liggur ekki fyrir við gerð þessarar umsagnar, en samkvæmt nýlegri áætlun frá Ríkisútvarpinu er reiknað með að afnotagjöldin skili 2.990 m.kr. tekjum.
Að mati fjármálaráðuneytisins hafa ákvæði í frumvarpinu sem þrengja möguleika Ríkisútvarpsins ohf. til að afla tekna af auglýsingum, kostun og þess háttar ekki áhrif á útgjöld ríkisins þótt þessar takmarkanir muni augljóslega leiða til þess að fyrirtækið þurfi að draga saman seglin í rekstrinum og afkoma þess versni.
Hvað aukið eftirlitshlutverk útvarpsréttarnefndar varðar telur fjármálaráðuneytið að fyrst og fremst sé um að ræða tilfærslu eftirlits sem kveðið er á um í þjónustusamningi milli Ríkisútvarpsins ohf. og menntamálaráðuneytisins frá aðalskrifstofu ráðuneytisins og hugsanlega einnig að hluta frá Ríkisendurskoðun. Ekki eru forsendur til að áætla hvaða fjárhæðir þurfi að færa á milli aðila.
Með vísan til þess sem að framan segir er slegið á að frumvarpið, verði það að lögum, auki tekjur sem færast á tekjuhlið ríkissjóðs um 705–1.055 m.kr. miðað við áætlun í fjárlagafrumvarpi 2009 sem gerir ráð fyrir 2.945 m.kr. tekjum af gjaldinu. Er þá annars vegar miðað við að gjaldið skili 3.650 m.kr. í innheimtar tekjur og hins vegar að álagðar tekjur nemi 4.000 m.kr. Verði frumvarpið að lögum hefur það engin bein áhrif á framlag ríkisins til Ríkisútvarpsins ohf. sem er áætlað 2.945 m.kr. í fjárlagafrumvarpi 2009.