Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 153. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 306 — 153. mál.
viðskiptaráðherra við fyrirspurn Álfheiðar Ingadóttur um kaup á verðbréfum úr peningamarkaðssjóðum Glitnis, Landsbanka Íslands og Kaupþings.
1. Hversu margir einstaklingar og lögaðilar, þ.e. einkahlutafélög og önnur félög, áttu innstæður í peningamarkaðssjóðum Glitnis, Landsbanka Íslands og Kaupþings, þegar Fjármálaeftirlitið f.h. ríkissjóðs tók yfir rekstur þeirra í byrjun október sl.?
2. Hver var samanlögð innstæða í hverjum banka og sjóði og hver var hæsta innstæða í hverjum banka og sjóði?
3. Hver var dreifing innstæðna í peningamarkaðssjóðunum, sundurliðað eftir fjölda þeirra sem áttu innstæður í peningamarkaðssjóðum í hverjum banka fyrir sig sem og upplýsingum um fjölda þeirra sem áttu innstæður á bilinu 0.5 millj. kr., 5.10 millj. kr., 10.20 millj. kr., 20.50 millj. kr., 50.100 millj. kr., 100.300 millj. kr., 300.500 millj. kr., meira en 1.000 millj. kr.?
4. Hversu hátt hlutfall var greitt úr hverjum sjóði og hver var hæsta greiðsla sem greidd var til einstaklings eða lögaðila?
Viðskiptabankarnir Glitnir hf., Landsbanki Íslands hf. og Kaupþing banki hf. eru almenn hlutafélög og voru skráð á markaði þangað til í október sl. Þó svo að Fjármálaeftirlitið hafi gripið inn í rekstur bankanna á grundvelli laga nr. 125/2008 eru þeir eftir sem áður viðskiptabankar á samkeppnismarkaði og lúta sömu lögum og reglum og aðrir slíkir, m.a. lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, og lögum nr. 87/1998, um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Af framangreindum ástæðum er ráðuneytinu ekki unnt að veita þær upplýsingar sem óskað er eftir í 1.–4. tölul. fyrirspurnarinnar.
5. Á hverju byggðist verðmat á verðbréfum sjóðanna, hver verðmat og hver tók ákvörðun um að nýju bankarnir keyptu bréfin því verði?
Samkvæmt upplýsingum ráðuneytisins byggðust viðskipti fjármálastofnana við rekstrarfélög sjóðanna með verðbréf í sjóðum þeirra á utanaðkomandi verðmati endurskoðunarfyrirtækja. Ákvörðun um kaup á verðbréfum sjóðanna var á hendi bankanna.
6. Hvernig voru greiðslur til kaupa á verðbréfum sjóðanna fjármagnaðar?
Í stað verðbréfanna voru látnar innstæður í viðkomandi bönkum. Við slit sjóðanna var hlutum í sjóðunum skipt fyrir innlán.
7. Byggðust kaupin á ákvörðun eða fyrirmælum frá Fjármálaeftirliti, viðkomandi skilanefnd, viðkomandi bankaráði til bráðabirgða eða bankastjórn?
Svar við þessum lið fyrirspurnarinnar felst í svari við 5. tölul. Fjármálaeftirlitið gaf einungis út tilmæli um að sjóðunum yrði slitið og að laust fé yrði greitt út í formi innlána.
8. Hver var aðkoma ráðuneytisins og ráðherra í þessari atburðarás?
Ráðuneytið átti þátt í fundum þar sem staða sjóðanna, eins og hún leit út í byrjun október, var rædd með Fjármálaeftirlitinu, fulltrúum rekstrarfélaga allra verðbréfasjóðanna og skilanefndum. Á þeim tímapunkti leit út fyrir að útgreiðsluhlutfall úr sjóðunum yrði mjög lágt í sumum tilvikum og til skoðunar var hvort grípa ætti til opinberrar aðstoðar. Á síðari stigum kom í ljós að staðan var betri en á horfðist og meðal annars þess vegna var horfið frá öllum hugmyndum um opinbert framlag. Fulltrúi ráðuneytisins var áfram í samskiptum við rekstrarfélög peningamarkaðssjóðanna og forsvarsmenn bankanna þegar ljóst var að áhugi væri fyrir því að áðurnefnd viðskipti færu fram. Af hálfu ráðuneytisins var lögð þung áhersla á að öll viðskipti með verðbréf sjóðanna ættu að vera á viðskiptalegum forsendum og að jafnræðis yrði gætt.
9. Telur ráðherra að framkvæmdin standist jafnræðisreglu gagnvart eigendum verðbréfa í öðrum sjóðum í þessum þremur bönkum eða öðrum bönkum og sparisjóðum og ákvæði stjórnarskrár um fjárheimildir?
Það er ekki í verkahring ráðherra að úrskurða um jafnræðisreglu eða ákvæði stjórnarskrár um fjárheimildir í tengslum við þessi viðskipti. Ráðherra er þó ekki kunnugt um að neinar reglur eða lög hafi verið brotin í þessu ferli.
10. Eru fyrir hendi minnisblöð, tölvupóstar, fyrirmæli eða aðrar skriflegar heimildir um endurfjármögnun peningamarkaðssjóðanna og ef svo er, hvert er efnislegt inntak þeirra?
Tekin voru saman tvö minnisblöð um peningamarkaðssjóðina sem ráðuneytinu er kunnugt um og byggjast á upplýsingum frá Fjármálaeftirlitinu um stöðu einstakra sjóða. Tilgangur þeirra var að greina valkosti varðandi hugsanlega aðkomu stjórnvalda að sjóðunum. Ekkert varð af slíkum hugmyndum hins vegar. Engin minnisblöð, fyrirmæli eða aðrar skriflegar heimildir eru til um kaup bankanna á bréfum sjóðanna. Vitað er um eitt tölvuskeyti frá aðstoðarmanni viðskiptaráðherra til forsvarsmanna peningamarkaðssjóða þar sem hvatt er til þess að viðskipti með verðbréf sjóðanna verði á viðskiptalegum forsendum og samræmist jafnræðissjónarmiðum.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 306 — 153. mál.
Svar