Þskj. 321 — 233. mál.
Frumvarp til laga
um breyting á lögum nr. 87/2004, um olíugjald og kílómetragjald,
lögum nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.,
og lögum nr. 39/1988, um bifreiðagjald, með síðari breytingum.
(Lagt fyrir Alþingi á 136. löggjafarþingi 2008–2009.)
I. KAFLI
Breyting á lögum nr. 87/2004, um olíugjald og kílómetragjald.
1. gr.
2. gr.
a. 4. mgr. orðast svo:
Kílómetragjald af gjaldskyldum bifreiðum skv. 1. tölul. 1. mgr., sbr. 3. tölul., skal vera sem hér segir:
| Leyfð heildarþyngd ökutækis, kg | Kílómetragjald, kr. |
Leyfð heildarþyngd ökutækis, kg | Kílómetragjald, kr. |
| 10.000.11.000 | 0,33 | 21.001.22.000 | 7,75 |
| 11.001.12.000 | 1,00 | 22.001.23.000 | 8,43 |
| 12.001.13.000 | 1,68 | 23.001.24.000 | 9,10 |
| 13.001.14.000 | 2,35 | 24.001.25.000 | 9,78 |
| 14.001.15.000 | 3,03 | 25.001.26.000 | 10,45 |
| 15.001.16.000 | 3,70 | 26.001.27.000 | 11,13 |
| 16.001.17.000 | 4,38 | 27.001.28.000 | 11,80 |
| 17.001.18.000 | 5,05 | 28.001.29.000 | 12,48 |
| 18.001.19.000 | 5,73 | 29.001.30.000 | 13,15 |
| 19.001.20.000 | 6,40 | 30.001.31.000 | 13,83 |
| 20.001.21.000 | 7,08 | 31.000 og yfir | 14,50 |
Sérstakt kílómetragjald af gjaldskyldum bifreiðum skv. 2. mgr. skal vera sem hér segir:
| Leyfð heildarþyngd ökutækis, kg |
Kílómetragjald, kr. |
Leyfð heildarþyngd ökutækis, kg | Kílómetragjald, kr. |
| 5.000.6.000 | 9,51 | 18.001.19.000 | 25,10 |
| 6.001.7.000 | 10,28 | 19.001.20.000 | 26,23 |
| 7.001.8.000 | 11,07 | 20.001.21.000 | 27,37 |
| 8.001.9.000 | 11,86 | 21.001.22.000 | 28,51 |
| 9.001.10.000 | 12,63 | 22.001.23.000 | 29,64 |
| 10.001.11.000 | 13,75 | 23.001.24.000 | 30,78 |
| 11.001.12.000 | 15,21 | 24.001.25.000 | 31,92 |
| 12.001.13.000 | 16,67 | 25.001.26.000 | 33,05 |
| 13.001.14.000 | 18,12 | 26.001.27.000 | 34,19 |
| 14.001.15.000 | 19,59 | 27.001.28.000 | 35,32 |
| 15.001.16.000 | 21,05 | 28.001.29.000 | 36,46 |
| 16.001.17.000 | 22,50 | 29.001.30.000 | 37,60 |
| 17.001.18.000 | 23,96 | 30.001.31.000 | 38,73 |
| 31.001 og yfir | 39,87 |
II. KAFLI
Breyting á lögum nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti, o.fl.
3. gr.
Í stað fjárhæðarinnar „9,28 kr.“ í 14. gr. laganna kemur: 10,44 kr.4. gr.
Í stað fjárhæðanna „32,95 kr.“ og „34,92 kr.“ í 1. mgr. 15. gr. laganna kemur: 37,07 kr.; og: 39,28 kr.III. KAFLI
Breyting á lögum nr. 39/1988, um bifreiðagjald.
5. gr.
Í stað fjárhæðanna „6,83 kr.“, „9,21 kr.“, „2.277 kr.“, „3.416 kr.“ og „41.193 kr.“ í 2. gr. laganna kemur: 7,68 kr.; 10,36 kr.; 2.562 kr.; 3.843 kr.; og: 46.342 kr.6. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Með frumvarpinu eru, í samræmi við forsendur í tekjuáætlun fjárlagafrumvarpsins fyrir árið 2009, lagðar til hækkanir á tilgreindum gjöldum á ökutæki og eldsneyti. Um er að ræða 12,5% hækkun á bifreiðagjaldi, vörugjaldi af bensíni, olíugjaldi og kílómetragjaldi.
Í upphaflegu frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2009 kemur fram að reiknað sé með 11,5% hækkun á framangreindum gjöldum. Var sú hækkun áætluð í samræmi við áætlaða hækkun á vísitölu neysluverðs milli ársmeðaltala áranna 2007 og 2008. Samkvæmt breytingum á tekjuáætlun fjárlagafrumvarps 2009 er nú gert ráð fyrir að þessi hækkun sé 12,5% og er því í frumvarpinu lagt til að umrædd gjöld hækki um 12,5%.
Eins og fram kemur í athugasemdum við einstakar greinar frumvarpsins er sú hækkun sem hér er lögð til innan þeirra marka sem umrædd gjöld hafa rýrnað að verðgildi ef miðað er við þróun á vísitölu neysluverðs frá því umrædd gjöld voru síðast hækkuð.
Viðbótartekjur ríkissjóðs af þeirri hækkun sem frumvarp þetta kveður á um eru áætlaðar samtals um 2.275 millj. kr. á ársgrundvelli.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Með greininni er lagt til að fjárhæð olíugjalds verði hækkað um 12,5, sbr. umfjöllun í almennum athugasemdum við frumvarpið. Fjárhæð olíugjalds hefur verið óbreytt frá upptöku þess 1. júlí 2005. Almenn vísitala neysluverðs hefur hækkað um 29% frá þeim tíma og hefur olíugjaldið því lækkað að raungildi sem því nemur.
Um 2. gr.
Í a-lið greinarinnar er lagt til að fjárhæð almenns kílómetragjalds á þyngri ökutæki verði hækkað um 12,5%, sbr. umfjöllun í almennum athugasemdum við frumvarpið. Fjárhæð almenns kílómetragjalds hefur verið óbreytt frá upptöku þess 1. júlí 2005. Almenn vísitala neysluverðs hefur hækkað um 29% frá þeim tíma og hefur hið almenna kílómetragjald því lækkað að raungildi sem því nemur.
Í b-lið greinarinnar er lagt til að fjárhæð sérstaks kílómetragjalds á þyngri ökutæki verði hækkað um 12,5%, sbr. umfjöllun í almennum athugasemdum við frumvarpið. Fjárhæð sérstaks kílómetragjalds hefur verið óbreytt frá upptöku þess í desember 2005. Almenn vísitala neysluverðs hefur hækkað um 26% frá þeim tíma og hefur hið sérstaka kílómetragjald því lækkað að raungildi sem því nemur.
Um 3. gr.
Með greininni er lagt til að fjárhæð almenns vörugjalds af eldsneyti verði hækkað um 12,5%, sbr. umfjöllun í almennum athugasemdum við frumvarpið. Fjárhæð almenns kílómetragjalds hefur ekki hækkað frá nóvember 2003. Almenn vísitala neysluverðs hefur hækkað um 36% frá þeim tíma og hefur hið almenna vörugjald af eldsneyti því lækkað að raungildi sem því nemur.
Um 4. gr.
Með greininni er lagt til að fjárhæð sérstaks vörugjalds af eldsneyti verði hækkað um 12,5%, sbr. umfjöllun í almennum athugasemdum við frumvarpið. Fjárhæð sérstaks vörugjalds af eldsneyti hefur ekki hækkað frá nóvember 2003. Almenn vísitala neysluverðs hefur hækkað um 36% frá þeim tíma og hefur hið almenna kílómetragjald því lækkað að raungildi sem því nemur.
Um 5. gr.
Með greininni er lagt til að fjárhæð bifreiðagjalds verði hækkað um 12,5%, sbr. umfjöllun í almennum athugasemdum við frumvarpið. Fjárhæð bifreiðagjalds hefur verið óbreytt frá 1. janúar 2005. Almenn vísitala neysluverðs hefur hækkað um 31% frá þeim tíma og hefur bifreiðagjaldið því lækkað að raungildi sem því nemur. Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um breyting á lögum nr. 87/2004, um olíugjald og kílómetragjald,
lögum nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.,
og lögum nr. 39/1988, um bifreiðagjald, með síðari breytingum.
Viðbótartekjur ríkissjóðs af þeirri hækkun sem frumvarp þetta kveður á um eru áætlaðar samtals um 2.275 m.kr. á ársgrundvelli, en verði frumvarpið óbreytt að lögum er ekki gert ráð fyrir að það hafi í för með sér kostnað fyrir ríkissjóð.