Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 235. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 358  —  235. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um almannatryggingar, nr. 100/2007, með síðari breytingum.

Frá félags- og tryggingamálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið. Umsögn barst frá Viðskiptaráði Íslands.
    Með lögum nr. 57/2008 sem samþykkt voru á Alþingi þann 29. maí sl. var lögum um almannatryggingar breytt þannig að frítekjumark örorkulífeyrisþega vegna atvinnutekna var hækkað úr rúmlega 27 þús. kr. í 100 þús. kr. á mánuði. Markmið breytingarinnar var að hvetja einstaklinga til vinnu og gera örorkulífeyrisþegum kleift að afla sér aukinna tekna af atvinnu án þess að til kæmi skerðing á bótum frá Tryggingastofnun ríkisins. Breytingin var tímabundin og henni ætlað að gilda út árið 2008. Unnið hefur verið að tillögu um endurskoðað örorkumat sem byggist m.a. á markmiðum um starfshæfnismat og eflingu starfsendurhæfingar með áherslu á að skoða frekar getu fólks til starfa en vangetu. Þar sem vinnu við þá tillögu er ekki lokið er lögð til framlenging á ákvæðinu til eins árs þannig að örorkulífeyrisþegar haldi þessum rétti sínum.
    Nefndin lagði á sínum tíma til að frumvarp það sem varð að lögum nr. 57/2008 yrði samþykkt óbreytt og taldi að hækkun frítekjumarksins mundi leiða til aukinnar atvinnuþátttöku örorkulífeyrisþega og hafa þannig í för með sér hærri tekjur og meiri lífsgæði þeim til handa. Nefndin áréttar þessi sjónarmið sín ásamt því sem hún leggur áherslu á að svigrúm sé veitt til vinnu að endurskoðun örorkumatsins. Ljúki þeirri endurskoðun innan þess árs sem framlenging nær til verður gildistími laganna endurskoðaður.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Kristinn H. Gunnarsson, Árni Johnsen og Jón Gunnarsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 16. des. 2008.



Guðbjartur Hannesson,


form., frsm.


Ármann Kr. Ólafsson.


Helga Sigrún Harðardóttir.



Ögmundur Jónasson.


Kjartan Ólafsson.


Ásta R. Jóhannesdóttir.