Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 226. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 375  —  226. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 88/1991, um aukatekjur ríkissjóðs, með síðari breytingum.

Frá efnahags- og skattanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ögmund Hrafn Magnússon frá fjármálaráðuneyti. Þá hefur nefndinni borist umsögn frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
    Í frumvarpinu eru lagðar til nokkrar breytingar á lögum um aukatekjur ríkissjóðs. Fyrsta breytingin er í samræmi við fyrirheit ríkisstjórnarinnar um að skilmálabreytingar sem gerðar eru á grundvelli laga um greiðslujöfnun fasteignaveðlána til einstaklinga skuli vera lántaka að kostnaðarlausu. Önnur breytingin kveður á um sams konar heimild til gjaldtöku vegna útgáfu leyfisbréfs til leikskólakennara eins og gildir um grunnskóla- og framhaldsskólakennara. Þriðja breytingin mælir fyrir um gjaldtökuheimild vegna útgáfu og endurnýjunar á innheimtuleyfi samkvæmt innheimtulögum auk endurnýjunar á leyfi fyrir starfrækslu uppboðsmarkaða fyrir sjávarafla. Loks er lagt til að heimilt verði að taka gjald fyrir rafræna miðlun upplýsinga.
    Fram kom að 4. gr. frumvarpsins mundi heimila ríkisstofnunum að innheimta gjald fyrir afhendingu gagna á rafrænu formi eins og tíðkast þegar gögn eru afhent í ljósriti.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Gunnar Svavarsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 16. des. 2008.



Pétur H. Blöndal,


form., frsm.


Ellert B. Schram.


Ögmundur Jónasson.



Bjarni Benediktsson.


Birkir J. Jónsson.


Lúðvík Bergvinsson.



Katrín Jakobsdóttir.


Kjartan Ólafsson.