Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 388, 136. löggjafarþing 28. mál: greiðsla kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi (álagningarstofn eftirlitsgjalds).
Lög nr. 153 23. desember 2008.

Lög um breyting á lögum nr. 99/1999, um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, með síðari breytingum.


1. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. laganna:
  1. Á eftir 2. málsl. 3. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Sama á við ef fyrir liggur stofnefnahagsreikningur hins nýja eftirlitsskylda aðila.
  2. Í stað „5. og 6. mgr. 5. gr.“ í 1. málsl. 4. mgr. kemur: 4. og 5. mgr. 5. gr.


2. gr.

     5. gr. laganna orðast svo:
     Eftirtaldir eftirlitsskyldir aðilar skulu greiða eftirlitsgjald af álagningarstofni í þeim hlutföllum og stærðum sem hér segir:
  1. Viðskiptabankar, sparisjóðir, lánafyrirtæki og rafeyrisfyrirtæki skulu greiða eftirfarandi hlutföll af eignum samtals, þó eigi lægri fjárhæð en 600.000 kr.:
    1. Viðskiptabankar 0,00774%.
    2. Sparisjóðir, lánafyrirtæki og rafeyrisfyrirtæki 0,00686%.
    Þrátt fyrir framangreint skulu Glitnir banki hf., Kaupþing banki hf. og Landsbanki Íslands hf. aðeins greiða fastagjald að fjárhæð 4.000.000 kr. hver.
  2. Vátryggingafélög skulu greiða 0,381% af bókfærðum iðgjöldum, þó eigi lægri fjárhæð en 600.000 kr.
  3. Félög eða einstaklingar sem stunda vátryggingamiðlun skulu greiða 0,215% af þeim iðgjöldum sem miðlað hefur verið á næstliðnu ári, þó eigi lægri fjárhæð en 300.000 kr.
  4. Verðbréfafyrirtæki skulu greiða 0,061% af eignum samtals, þó aldrei lægri fjárhæð en 600.000 kr.
  5. Verðbréfamiðlanir skulu greiða 0,061% af eignum samtals, þó aldrei lægri fjárhæð en 350.000 kr.
  6. Rekstrarfélög verðbréfasjóða og fjárfestingarsjóða og fjárfestingarsjóðir sem gefa út hlutabréf skulu greiða 0,0074% af eignum rekstrarfélags og viðkomandi sjóða samtals, þó aldrei lægri fjárhæð en 600.000 kr.
  7. Verðbréfamiðstöðvar skulu greiða 0,84% af rekstrartekjum, þó eigi lægri fjárhæð en 350.000 kr.
  8. Kauphallir skulu greiða 0,61% af rekstrartekjum, þó aldrei lægri fjárhæð en 350.000 kr.
  9. Lífeyrissjóðir skulu samtals greiða 0,00891% af hreinni eign til greiðslu lífeyris. Greiða skal eftirlitsgjaldið sem 700.000 kr. fastagjald vegna þeirra lífeyrissjóða er höfðu hreina eign til greiðslu lífeyris undir einum milljarði króna, 1.120.000 kr. vegna þeirra lífeyrissjóða er höfðu hreina eign til greiðslu lífeyris frá einum til tíu milljarða króna, 1.960.000 kr. vegna þeirra lífeyrissjóða er höfðu hreina eign til greiðslu lífeyris frá tíu milljörðum til tuttugu og fimm milljarða króna, 3.650.000 kr. vegna þeirra lífeyrissjóða er höfðu hreina eign til greiðslu lífeyris frá tuttugu og fimm milljörðum til eitt hundrað milljarða króna og 4.210.000 kr. vegna þeirra lífeyrissjóða er höfðu hreina eign til greiðslu lífeyris þar yfir. Það sem þá er ógreitt af eftirlitsgjaldi skv. 1. málsl. greiðist í hlutfalli við hreina eign til greiðslu lífeyris.
  10. Innlánsdeildir samvinnufélaga skulu greiða fastagjald sem nemur 300.000 kr.
  11. Íbúðalánasjóður skal greiða 0,0032% af eignum samtals, þó eigi lægri fjárhæð en 600.000 kr.
  12. Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta og öryggissjóðir samkvæmt lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta skulu greiða fastagjald sem nemur 300.000 kr.

     Útibú erlendra eftirlitsskyldra aðila sem fengið hafa starfsleyfi hér á landi skulu greiða eftirlitsgjald samkvæmt viðeigandi tölulið 1. mgr.
     Eignarhaldsfélög á fjármálasviði, eignarhaldsfélög á vátryggingasviði, blönduð eignarhaldsfélög, blönduð eignarhaldsfélög á vátryggingasviði og blönduð eignarhaldsfélög í fjármálastarfsemi skulu greiða fastagjald sem nemur 1.500.000 kr.
     Útgefendur hlutabréfa, sem tekin hafa verið til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði og markaðstorgi fjármálagerninga hér á landi, skulu greiða fastagjald tengt fjárhæð markaðsvirðis útgefinna hlutabréfa sinna. Greiða skal 300.000 kr. fastagjald vegna hlutabréfa að markaðsvirði undir fimm milljörðum króna, 800.000 kr. vegna hlutabréfa að markaðsvirði frá fimm til tuttugu og fimm milljarða króna, 2.400.000 kr. vegna hlutabréfa að markaðsvirði frá tuttugu og fimm til eitt hundrað milljarða króna, 4.400.000 kr. vegna hlutabréfa að markaðsvirði frá eitt hundrað til fimm hundruð milljarða króna og 6.300.000 kr. vegna hlutabréfa með markaðsvirði yfir fimm hundruð milljörðum króna.
     Útgefendur skuldabréfa, sem tekin hafa verið til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði og markaðstorgi fjármálagerninga hér á landi, skulu greiða fastagjald tengt fjárhæð markaðsvirðis útgefinna skuldabréfa sinna. Greiða skal 100.000 kr. fastagjald vegna skuldabréfa að markaðsvirði undir einum milljarði króna, 150.000 kr. vegna skuldabréfa að markaðsvirði frá einum til fimm milljarða króna, 350.000 kr. vegna skuldabréfa að markaðsvirði frá fimm til tíu milljarða króna, 600.000 kr. vegna skuldabréfa að markaðsvirði frá tíu til fimmtíu milljarða króna, 850.000 kr. vegna skuldabréfa að markaðsvirði frá fimmtíu til tvö hundruð milljarða króna og 1.000.000 kr. vegna skuldabréfa að markaðsvirði yfir tvö hundruð milljörðum króna.
     Aðilar með innheimtuleyfi samkvæmt innheimtulögum, nr. 95/2008, skulu greiða fastagjald sem nemur 600.000 kr.
     Eftirlitsgjald skal reiknast í heilum þúsundum króna. Við álagningu skal jafnframt færa álagningarstofna í þúsundir króna.

3. gr.

     Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2009.

Samþykkt á Alþingi 18. desember 2008.