Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 254. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 409  —  254. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um vexti og verðtryggingu, nr. 38 26. maí 2001.

Flm.: Kolbrún Halldórsdóttir, Álfheiður Ingadóttir,


Árni Þór Sigurðsson, Katrín Jakobsdóttir.



1. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Þrátt fyrir ákvæði 14. gr. laga þessara og ákvæði lánasamninga verðtryggðra fasteignaveðlána til íbúðakaupa um að lánin skuli verðtryggð á grundvelli vísitölu neysluverðs skal hækkun vísitölunnar til verðtryggingar 1. janúar 2009 – 31. desember 2009 að hámarki vera í samræmi við þær forsendur sem fjárlagafrumvarp fyrir árið 2009 byggðist á þegar það var lagt fram 1. október 2008, þ.e. 5,7%.
    Í framhaldi af gildistöku ákvæðis þessa skal ríkisstjórnin taka upp viðræður við þær lánastofnanir sem í hlut eiga um nánari útfærslu ákvæðisins, m.a. með hvaða hætti þeir aðilar sem ákvæðið tekur til mæti sameiginlega þeim áhrifum sem aðgerð þessi hefur í för með sér.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


     Við þær sérstöku aðstæður sem nú eru uppi í samfélaginu, óðaverðbólgu og háa vexti, yrði sú ráðstöfun sem hér er lögð til, að frysta verðtrygginguna tímabundið, mikil kjarabót fyrir lántakendur. Áhrif verðtryggingar almennt eru þau að vöxtum er haldið lægri en ella væri vegna þess hve lítil áhætta lánveitandans er. Hér á landi hafa lánveitendur í gegnum tíðina getað tryggt lánsfjármagn með verðtryggingu og breytilegum vöxtum, stundum meira að segja hvorutveggja í senn. Verðtrygging lána tryggir þannig hagsmuni lánveitanda og ver hann fyrir öllum sveiflum í verðlagi en lántakandinn tekur hins vegar áhrifin öll á sínar herðar.
    Samkvæmt lögum um vexti og verðtryggingu, nr. 38 26. maí 2001, er stuðst við vísitölu neysluverðs sem grundvöll verðtryggingarinnar og er hún reiknuð samkvæmt lögum um vísitölu neysluverðs, nr. 12/1995. Höfuðstóll láns breytist í hlutfalli við breytingar á vísitölu neysluverðs frá grunnvísitölu til fyrsta gjalddaga og síðan í hlutfalli við breytingar á vísitölunni milli gjalddaga. Grunnvísitala skal vera vísitala sú sem í gildi er þegar lán er veitt, nema samningur eða eðli máls leiði til annars. Vísitala neysluverðs, sem áður hét framfærsluvísitala, hefur verið reiknuð frá 1914 í einni eða annarri mynd. Grunnur vísitölunnar er reistur á neyslurannsóknum og hefur svo verið frá 1939. Vísitalan mælir fyrst og fremst verðbólgu auk þess að vera notuð til verðtryggingar.
    Ekki er talin æskileg leið við framkvæmd frystingar verðtryggingar að leggja af vísitöluna sjálfa þar sem hún og undirvísitölur hennar eru mikilvægar við peningastjórn Seðlabanka Íslands, auk þess sem verðtrygging er notuð við efnahagsspár, mat á kaupmætti o.fl. Sú leið sem lögð er til í frumvarpi þessu er að hækkun vísitölunnar til verðtryggingar verðtryggðra fasteignaveðlána til íbúðakaupa skuli ekki vera hærri en sem nemur 5,7% á ársgrundvelli, tímabilið 1. janúar 2009 –31. desember 2009, eða í samræmi við þær forsendur sem fjárlagafruvmvarp fyrir árið 2009 byggðst á þegar það var lagt fram 1. október sl.
    Í verðbólguskotinu sem nú gengur yfir þurfa lántakendur að búa við þá staðreynd að höfðustóll lána þeirra hækkar stöðugt og er svo komið að margar fjölskyldur ráða ekki lengur við afborganir af lánum. Það er óviðunandi að áhrif ástandsins í efnahagslífinu komi svo illa niður á heimilum sem hafa tekið verðtryggð lán til íbúðakaupa sem raun ber vitni og að fjölskyldurnar í landinu þurfi svo að sitja uppi með verðbólguáhrifin á lánunum þar til síðasti gjalddagi hefur verið greiddur langt inni í framtíðinni. Mat flutningsmanna er því að nauðsynlegt sé að stjórnvöld grípi til róttækra en raunhæfra aðgerða í því skyni að styðja fjölskyldur í því að standa í skilum með afborganir af íbúðalánum sínum. Það verður best gert með því að koma böndum á verðtrygginguna og er aðferð sú sem mælt er fyrir um í frumvarpinu sú sama og ríkisstjórnin sjálf notaði til að frysta hækkanir á búvörusamningum við bændur, sbr. 2. gr. frumvarps til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum. Í framhaldi af setningu laga þessara mundi ríkisstjórnin taka upp viðræður við þær lánastofnanir sem í hlut eiga um nánari útfærslu ákvæðisins. Þá yrði leitað leiða til þess að samningsaðilar, fjármálastofnanirnar í landinu og skuldendur íbúðalána, mæti sameiginlega þeim áhrifum sem aðgerð þessi hefur í för með sér. Í ljósi mögulegs taps lánveitenda er vakin athygli á því að það er eðlilegt í ljósi þess sérstaka ástands sem ríkir í þjóðfélaginu að jafna áhifin eins og mögulegt er þannig að lánveitendur taki einnig á sig hluta áhættunnar sem ellegar felli á lántaka.
    Nauðsynlegt er að taka verðtryggingu lána í heild sinni til endurskoðunar, en þar til það hefur verið gert er mikilvægt að koma til móts við lántakendur verðtryggðra lána og ná fram þeirri breytingu sem hér er lögð til. Verði framangreindar hugmyndir um frystingu verðtryggingar á lánum að veruleika mun það auðvelda fjölmörugum skuldsettum heimilum að komast í gegnum efnahagsumrótið.
    Í samningum um verðtryggð fasteignaveðlán er kveðið á um að þau taki mánaðarlegum breytingum samkvæmt vísitölu neysluverðs. Í frumvarpi þessu er ráðgert að skerða þessa vísitölutengingu með þeim hætti að verðtryggð fasteignaveðlán hjá lánastofnunum skuli á árinu 2009 ekki hækka meira en sem nemur forsendum þeim sem fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar byggðist á þegar það var lagt fram 1. október sl.
    Er hér beitt sömu aðferð og gert er í nýlegu frumvarpi ríksistjórnarinnar um ráðstafanir í ríkisfjármálum að því er varðar skerðingu verðtryggingar á greiðslum til bænda samkvæmt búvörusamningum.
    Skerðingin er almenns eðlis og bundin við takmarkaðan tíma. Hún er einn liður í viðamiklum ráðstöfunum sem ríkið er nauðugt að ráðast í vegna þeirra miklu efnahagsáfalla, sem yfir þjóðina hafa dunið, ef takast á að bjarga heimilum landsmanna frá fjöldagjaldþrotum. Verður því ekki talið að þessi breyting stríði gegn 72. gr. stjórnarskrárinnar jafnvel þótt gripið yrði inn í gildandi samninga heimilanna við lánastofnanir.
    Í framhaldi af setningu laga þessara skal ríkisstjórnin taka upp viðræður við þær lánastofnanir sem í hlut eiga um nánari útfærslu ákvæðisins, m.a. um með hvaða hætti þeir aðilar sem það tekur til, þ.e. lánveitendur og skuldendur íbúðalána, mæti sameiginlega þeim áhrifum sem aðgerð þessi hefur í för með sér.