Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 260. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 420 — 260. mál.
um heimild til greiðslu útsvars í tveimur sveitarfélögum.
Hafi maður bækistöð í fleiri en einu sveitarfélagi getur hann þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 4. gr. skráð annað heimili í því sveitarfélagi þar sem hann dvelst minni hluta árs svo lengi sem hann hafi þar fasta búsetu samtals þriðjung úr ári hið minnsta.
Annað heimili getur þó ekki verið í gistihúsi, fangelsi, vinnuhæli, sjúkrahúsi, athvarfi, heimavistarskóla, verbúð, vinnubúðum eða öðru húsnæði sem jafna má til þess. Sama gildir um húsnæði á skipulögðu iðnaðar-, athafna- og hafnarsvæði og öðru svæði innan þéttbýlis sem skipulagt er fyrir atvinnustarfsemi nema búseta sé þar heimil samkvæmt lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum. Heimilt er að hafa annað heimili í frístundahúsi uppfylli það lágmarkskröfur um stærð, not o.fl. sem útfærðar eru nánar í reglugerð.
Ráðherra er heimilt að setja í reglugerð frekari fyrirmæli um skráningu annars heimilis.
Frumvarpinu er ætlað að gera þeim sem halda úti tveimur heimilum mögulegt að skipta útsvari sínu þannig að 1/ 3hluti útsvars greiðist til þess sveitarfélags þar sem annað heimili er. Ekki þarf að vera um samfellda búsetu að ræða. Gert er ráð fyrir því að ráðherra geti sett frekari reglur um skráningu annars heimilis í reglugerð en þó eru gerðar í frumvarpinu nokkrar takmarkanir á því hvers konar húsnæði geti talist til annars heimilis. Í þeim efnum er að mestu miðað við þá reglu sem gildir um skráningu lögheimilis, þó með þeirri breytingu að leyfilegt verður að skrá annað heimili í frístundahúsi. Er með þessu ekki talið að brotið sé gegn þeirri reglu sem sett var með lögum nr. 149/2006 þar sem fært var í lög bann við skráningu lögheimilis í frístundabyggð, né þeim sjónarmiðum sem voru að baki þeirri lagasetningu.
Gert er ráð fyrir að með skráningu annars heimilis í öðru sveitarfélagi en þar sem lögheimili er renni 1/ 3hluti greidds útsvars til þess sveitarfélags. Ekki er hér tekin afstaða til þess með hvaða hætti þetta verði gert, þ.e. hvort uppgjör fylgi mánaðarlegum skilum staðgreiðslu eða ársuppgjöri eftir skil skattskýrslu, enda gert ráð fyrir því að nýtt verði reglugerðarheimild til nánari útfærslu svo að hún verði með sem einföldustum og skilvirkustum hætti.
Engin breyting er gerð á skyldum sveitarfélaga til að sinna íbúum sínum og réttindum þeirra en samkvæmt sveitarstjórnarlögum, nr. 45/1998, sbr. einnig m.a. lög um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, telst maður íbúi þess sveitarfélags þar sem hann á lögheimili. Sveitarfélögum er skylt að veita íbúum sínum þjónustu, sjá m.a. 12. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, og þar sem frumvarpið leggur ekki til breytingar á íbúahugtakinu eða skráningu lögheimilis verður ekki breyting á þeim réttindum sem íbúar eiga í því sveitarfélagi þar sem lögheimili þeirra er skráð. Ber hér að nefna að slík þjónusta á einungis við um hluta grunnþjónustu, svo sem grunnmenntun, leikskólavist barna og félagsþjónustu sem eðlilegt má telja að fylgi lögheimilisskráningu enda sé þar dvalist meiri hluta árs. Nauðsynlega þjónustu og neyðarþjónustu er hægt að sækja þar sem hægast er, t.a.m. má sækja heilbrigðisþjónustu til þeirrar heilsugæslustöðvar eða heilbrigðisstofnunar sem auðveldast er að ná til hverju sinni, sbr. 5. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007. Einnig þykir vert í þessu samhengi að nefna að ekki verður séð að þótt útsvar sé tekjustofn sveitarfélags teljist það þjónustugjald, heldur skattur sem lagður er á íbúa sveitarfélags. Haldi einstaklingur út fleiri en einu heimili er því eðlilegt að hægt sé að skipta útsvarsgreiðslum milli þeirra sveitarfélaga þar sem föst búseta hans er.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 420 — 260. mál.
Frumvarp til laga
um heimild til greiðslu útsvars í tveimur sveitarfélögum.
Flm.: Kristinn H. Gunnarsson, Guðjón A. Kristjánsson, Grétar Mar Jónsson.
Breyting á lögum nr. 21/1990, um lögheimili.
1. gr.
Á eftir 4. gr. laganna kemur ný grein, 4. gr. a, svohljóðandi:Hafi maður bækistöð í fleiri en einu sveitarfélagi getur hann þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 4. gr. skráð annað heimili í því sveitarfélagi þar sem hann dvelst minni hluta árs svo lengi sem hann hafi þar fasta búsetu samtals þriðjung úr ári hið minnsta.
Annað heimili getur þó ekki verið í gistihúsi, fangelsi, vinnuhæli, sjúkrahúsi, athvarfi, heimavistarskóla, verbúð, vinnubúðum eða öðru húsnæði sem jafna má til þess. Sama gildir um húsnæði á skipulögðu iðnaðar-, athafna- og hafnarsvæði og öðru svæði innan þéttbýlis sem skipulagt er fyrir atvinnustarfsemi nema búseta sé þar heimil samkvæmt lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum. Heimilt er að hafa annað heimili í frístundahúsi uppfylli það lágmarkskröfur um stærð, not o.fl. sem útfærðar eru nánar í reglugerð.
Ráðherra er heimilt að setja í reglugerð frekari fyrirmæli um skráningu annars heimilis.
Breyting á lögum nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga.
2. gr.
Við 1. mgr. 20. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þó skal 1/ 3hluti útsvars greiðast til þess sveitarfélags þar sem annað heimili manna er hafi þeir skráð slíkt heimili skv. 4. gr. a laga nr. 21/1990, um lögheimili.3. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2009.Greinargerð.