Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 270. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 487  —  270. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um gjaldþrot fyrirtækja að kröfu hins opinbera.

Frá Eygló Harðardóttur.



     1.      Hversu mörg fyrirtæki hafa verið lýst gjaldþrota árlega síðustu 10 árin vegna skulda við opinbera aðila?
     2.      Hvernig skiptast mál þessara fyrirtækja eftir fjárhæð krafna (innan við 250 þús. kr., á bilinu 250–500 þús. kr., 500–750 þús. kr., 750–1.000 þús. kr., 1–2,5 millj. kr., 2,5–5 millj. kr., 5–7,5 millj. kr., 7,5–10 millj. kr., 10–15 millj. kr., 15–20 millj. kr., 20–25 millj. kr., hærri en 25 millj. kr.) og hver er skiptingin eftir kjördæmum?
     3.      Hver hefur verið árlegur innheimtukostnaður vegna þessara aðila, bæði fastur innheimtukostnaður og kostnaður vegna vinnu lögfræðinga?


Skriflegt svar óskast.