Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 272. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 489  —  272. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um stuðning ríkisins við fráveitur.

Frá Kristni H. Gunnarssyni.



     1.      Hver hefur stuðningur ríkisins við framkvæmdir sveitarfélaga í fráveitumálum samkvæmt lögum nr. 53/1995 verið árlega og samtals, sundurliðað eftir sveitarfélögum?
     2.      Hve miklu af stuðningi skv. 1. tölul. fyrirspurnarinnar var varið til jöfnunar á kostnaði einstakra sveitarfélaga skv. 2. mgr. 4. gr. laganna og til rannsókna skv. 3. mgr. 4. gr., sundurliðað eftir árum og sveitarfélögum og samtals?
     3.      Hvert var hlutfall stuðningsins af kostnaði framkvæmdar hverju sinni, sundurliðað eftir sveitarfélögum og framkvæmdum?


Skriflegt svar óskast.