Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 251. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 493 — 251. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Kristins H. Gunnarssonar um verð á áfengi.
1. Hver hefur verið þróun áfengisgjalds frá árinu 1995, að nafnvirði og raungildi, á:
a. sterku víni,
b. léttvíni,
c. bjór?
Eins og sjá má í töflunni hér á eftir hefur áfengisgjaldi verið breytt fimm sinnum á umræddu tímabili. Þannig hefur áfengisgjald hækkað að nafnvirði um 14% á bjór, 2% á léttu víni og 37% af sterku víni en vísitala neysluverðs hefur á sama tíma hækkað um 91%. Það má því sjá að áfengisgjald hefur lækkað töluvert að raungildi á umræddu tímabili.
Áfengisgjaldið, sbr. töfluna, er lagt á hvern sentilítra af vínanda umfram 2,25 sentilítra þegar um bjór eða létt vín er að ræða en gjaldið leggst á allan vínanda þegar um sterkt áfengi er að ræða.
2. Hver hefur verið hækkun vísitölu neysluverðs á sama tíma?
Vísitala neysluverðs hefur hækkað um 91% á sama tíma, þ.e. á tímabilinu frá september 1995 til desember 2008, sbr. töfluna að framan. Með tilliti til svara við spurningunum hér að neðan er vakin athygli á því að óveruleg breyting varð á vísitölu neysluverðs frá september 1995 til desember 1995.
3. Hefur þróun áfengsgjalds endurspeglast í útsöluverði áfengis á sama tíma að teknu tilliti til gengisþróunar?
Frá árslokum 1995 til ársloka 2008 hækkaði áfengisverð, eins og það er mælt í vísitölu neysluverðs, um 58% en á sama tímabili hækkaði vísitala neysluverðs um 91%. Áfengisverð hefur því lækkað töluvert að raungildi á umræddu tímabili á mælikvarða vísitölu neysluverðs.
Á myndinni hér að neðan má sjá þróun útsöluverðs á léttvíni, bjór og sterku áfengi í samanburði við neysluverðsvísitölu (NVV) og gengisvísitölu (GVT). Allar tölur í töflunni miðast við árslok og eru vísitölurnar settar í 100 í árslok 1995. Eins og myndin sýnir hefur útsöluverð á áfengi í flestum tilvikum lækkað í samanburði við neysluverðsvísitölu og einnig miðað við gengisvísitölu. Hins vegar þarf að hafa í huga að óverulegt samband er á milli útsöluverðs á áfengi og gengisvísitölu þar sem skattar og vörugjöld eru töluvert hátt hlutfall af útsöluverðinu. Minnst eru áhrifin á sterkt áfengi en hlutfall skatta og vörugjalda á sterkt áfengi er hærra en á aðrar tegundir áfengis.
4. Hver hefur hlutur áfengis verið í útgjöldum heimilanna frá 1995 og í vísitölu neysluverðs, samkvæmt gögnum Hagstofu Íslands?
Hlutur áfengis í neysluútgjöldum heimilanna kemur skýrast fram í gögnum Hagstofunnar um vog áfengis í vísitölu neysluverðs (NVV). Í töflunni hér að aftan má sjá hvernig vog áfengis í NVV hefur breyst frá árinu 1997. Vogin breytist í samræmi við mælingar Hagstofu á neyslu og verði áfengis. Neyslumælingin uppfærir vogina með u.þ.b. tveggja ára töf. Vægi áfengis í vísitölu neysluverðs er sem hér segir frá 1997 en ekki eru aðgengilegar tölur frá árunum 1995 og 1996.
5. Hefur verðþróun áfengis frá 1995 stuðlað að hækkun vísitölu neysluverðs eða lækkun?
Frá árinu 1995 til 2008 hækkaði verð áfengis eins og það er mælt í vísitölu neysluverðs um 58%. Á sama tímabili hækkaði vísitala neysluverðs í heild sinni um 91%. Verðþróun á áfengi hefur því ekki haldið í við þróun neysluverðs á umræddu tímabili og þarf af leiðandi dregið úr hækkun vísitölu neysluverðs.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 493 — 251. mál.
Svar
fjármálaráðherra við fyrirspurn Kristins H. Gunnarssonar um verð á áfengi.
1. Hver hefur verið þróun áfengisgjalds frá árinu 1995, að nafnvirði og raungildi, á:
a. sterku víni,
b. léttvíni,
c. bjór?
Eins og sjá má í töflunni hér á eftir hefur áfengisgjaldi verið breytt fimm sinnum á umræddu tímabili. Þannig hefur áfengisgjald hækkað að nafnvirði um 14% á bjór, 2% á léttu víni og 37% af sterku víni en vísitala neysluverðs hefur á sama tíma hækkað um 91%. Það má því sjá að áfengisgjald hefur lækkað töluvert að raungildi á umræddu tímabili.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Áfengisgjaldið, sbr. töfluna, er lagt á hvern sentilítra af vínanda umfram 2,25 sentilítra þegar um bjór eða létt vín er að ræða en gjaldið leggst á allan vínanda þegar um sterkt áfengi er að ræða.
2. Hver hefur verið hækkun vísitölu neysluverðs á sama tíma?
Vísitala neysluverðs hefur hækkað um 91% á sama tíma, þ.e. á tímabilinu frá september 1995 til desember 2008, sbr. töfluna að framan. Með tilliti til svara við spurningunum hér að neðan er vakin athygli á því að óveruleg breyting varð á vísitölu neysluverðs frá september 1995 til desember 1995.
3. Hefur þróun áfengsgjalds endurspeglast í útsöluverði áfengis á sama tíma að teknu tilliti til gengisþróunar?
Frá árslokum 1995 til ársloka 2008 hækkaði áfengisverð, eins og það er mælt í vísitölu neysluverðs, um 58% en á sama tímabili hækkaði vísitala neysluverðs um 91%. Áfengisverð hefur því lækkað töluvert að raungildi á umræddu tímabili á mælikvarða vísitölu neysluverðs.
Á myndinni hér að neðan má sjá þróun útsöluverðs á léttvíni, bjór og sterku áfengi í samanburði við neysluverðsvísitölu (NVV) og gengisvísitölu (GVT). Allar tölur í töflunni miðast við árslok og eru vísitölurnar settar í 100 í árslok 1995. Eins og myndin sýnir hefur útsöluverð á áfengi í flestum tilvikum lækkað í samanburði við neysluverðsvísitölu og einnig miðað við gengisvísitölu. Hins vegar þarf að hafa í huga að óverulegt samband er á milli útsöluverðs á áfengi og gengisvísitölu þar sem skattar og vörugjöld eru töluvert hátt hlutfall af útsöluverðinu. Minnst eru áhrifin á sterkt áfengi en hlutfall skatta og vörugjalda á sterkt áfengi er hærra en á aðrar tegundir áfengis.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
4. Hver hefur hlutur áfengis verið í útgjöldum heimilanna frá 1995 og í vísitölu neysluverðs, samkvæmt gögnum Hagstofu Íslands?
Hlutur áfengis í neysluútgjöldum heimilanna kemur skýrast fram í gögnum Hagstofunnar um vog áfengis í vísitölu neysluverðs (NVV). Í töflunni hér að aftan má sjá hvernig vog áfengis í NVV hefur breyst frá árinu 1997. Vogin breytist í samræmi við mælingar Hagstofu á neyslu og verði áfengis. Neyslumælingin uppfærir vogina með u.þ.b. tveggja ára töf. Vægi áfengis í vísitölu neysluverðs er sem hér segir frá 1997 en ekki eru aðgengilegar tölur frá árunum 1995 og 1996.
| Ár | % af NVV |
| 1997 | 1,66% |
| 1998 | 1,61% |
| 1999 | 1,60% |
| 2000 | 1,57% |
| 2001 | 1,55% |
| 2002 | 2,41% |
| 2003 | 2,54% |
| 2004 | 2,26% |
| 2005 | 2,06% |
| 2006 | 1,81% |
| 2007 | 1,74% |
| 2008 | 1,65% |