Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 277. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 496  —  277. mál.




Frumvarp til fjáraukalaga



fyrir árið 2009.

Flm.: Kristinn H. Gunnarsson.



1. gr.

    Liðurinn 09-999-1.18 Framlög til stjórnmálasamtaka lækkar um 37,2 millj. kr. og verður 334,3 millj. kr.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Með þessu frumvarpi er lagt til að framlög til stjórnmálaflokka lækki á yfirstandandi ári um 10% og taki því sambærilegum breytingum og framlög til Alþingis. Þykir nauðsynlegt að stjórnmálaflokkarnir lækki fjárframlög úr ríkissjóði til starfsemi sinnar við þær aðstæður sem uppi eru nú í íslensku þjóðfélagi.