Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 242. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 501 — 242. mál.
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Álfheiðar Ingadóttur um fjárheimild til nýrrar sjúkratryggingastofnunar.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvernig skiptist 45,3 millj. kr. fjárheimild í frumvarpi til fjáraukalaga fyrir árið 2008, 1.01 Umsýsla sjúkratrygginga, milli eftirfarandi liða sem þar eru raktir:
a. undirbúningskostnaður,
b. þóknun nýrrar stjórnar sem skipuð var í febrúar 2008,
c. laun starfandi stjórnarformanns og forstjóra,
d. laun annarra starfsmanna sjúkratryggingastofnunar frá 1. október sl.,
e. kostnaður við námsferðir til útlanda og þjónustu ráðningarstofa?
Áætlaður kostnaður, sem beiðni um fjárheimild í frumvarpi til fjáraukalaga byggist á, sundurliðast með eftirfarandi hætti:
a. Undirbúningskostnaður.
Var áætlaður 20,4 millj. kr. Þar vegur þyngst launakostnaður og annar kostnaður tengdur sérstökum ráðgjafa sem ráðinn var til að undirbúa stofnun nýrrar sjúkratryggingastofnunar.
b. Þóknun nýrrar stjórnar sem skipuð var í febrúar 2008.
Áætlaður kostnaður vegna stjórnarlauna var 7,7 millj. kr., þar með talinn kostnaður vegna launa formanns stjórnar.
c. Laun starfandi stjórnarformanns og forstjóra.
Launagjöld forstjóra voru áætluð 3,1 millj. kr. og var þá gert ráð fyrir að forstjóri starfaði í þrjá mánuði (október–desember 2008). Laun starfandi stjórnarformanns til viðbótar við stjórnarlaun hans voru áætluð 1,1 millj. kr. og var gert ráð fyrir að hann starfaði í fjóra mánuði (júní– september 2008).
d. Laun annarra starfsmanna sjúkratryggingastofnunar frá 1. október sl.
Launagjöld voru áætluð 5,5 millj. kr., þ.e. laun fjögurra starfsmanna í tvo mánuði.
e. Kostnaður við námsferðir til útlanda og þjónustu ráðningarstofa.
Ferðakostnaður vegna kynnisferða þriggja ráðgjafa til Svíþjóðar og Bretlands var áætlaður 0,9 millj. kr.
Áætlaður kostnaður vegna aðstoðar ráðningarstofu var 2,3 millj. kr., þar með talinn kostnaður vegna auglýsinga.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 501 — 242. mál.
Svar