Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 188. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 505  —  188. mál.




Svar



viðskiptaráðherra við fyrirspurn Jóns Bjarnasonar um aðgerðir til stuðnings sparisjóðum.

    1.    Hver er staða sparisjóðanna nú og hvað hefur ríkisstjórnin gert eða hyggst gera til að tryggja stöðu þeirra og framtíð?
    2.    Hver er staða Sparisjóðabankans og til hvaða aðgerða hyggst ráðherra grípa, m.a. varðandi framtíðarstöðu og hlutverk hans fyrir sparisjóðina?
    4.    Hvernig ber með hliðsjón af stöðu sparisjóðanna að túlka þá yfirlýsingu að hið opinbera muni ekki taka á sig frekari skuldbindingar vegna bankakreppunnar, sbr. 16. lið viljayfirlýsingar um áform íslenskra stjórnvalda vegna fjárhagslegrar fyrirgreiðslu hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum?
    5.    Hvernig hyggst ríkisstjórnin beita heimild til að leggja sparisjóðum til fjárhæð sem nemur allt að 20% af bókfærðu eigin fé, sbr. lög nr. 125/2008?

    Rétt er að taka fram að upplýsingar um stöðu sparisjóðanna nú liggja ekki fyrir. Nýjustu upplýsingarnar sem eru fyrir hendi eru uppgjör þeirra frá fyrri helmingi síðasta árs svo og uppgjör fyrir þrjá fyrstu ársfjórðungana. Þær hremmingar sem riðið hafa yfir koma því ekki fram í bókhaldi sparisjóðanna fyrr en ársuppgjör vegna 2008 liggur fyrir. Hið sama á við um Sparisjóðabankann. Samkvæmt þeim gögnum sem sparisjóðirnir skiluðu til Fjármálaeftirlitsins eftir fyrri árshelming 2008 var staða þeirra mjög mismunandi. Þeir verst stöddu stóðust ekki hefðbundin álagspróf FME. Rekstrarafkoma þeirra var almennt afleit á fyrri hluta 2008 og sýndu aðeins tveir þeirra jákvæða arðsemi eigin fjár. Var afkoman af kjarnastarfsemi fyrir skatta neikvæð hjá flestum þeirra á sama tímabili. Þarf ekki að fjölyrða um það að seinni helmingur ársins var sparisjóðum, sem öðrum fjármálafyrirtækjum, þungur í skauti.
    Á vegum ríkisstjórnarinnar er að störfum starfshópur sérfræðinga úr Fjármálaeftirlitinu, Seðlabankanum, fjármálaráðuneytinu og viðskiptaráðuneytinu sem er að fara yfir stöðu einstakra smærri fjármálafyrirtækja. Hefur starfshópurinn tekið saman tillögur að viðmiðunarreglum fyrir aðkomu stjórnvalda að einstökum sparisjóðum eða hópi þeirra til þess að tryggja jafnræði milli þeirra sem aðstoð þurfa. Enn fremur hefur starfshópurinn komið að viðræðum við erlenda kröfuhafa smærri fjármálafyrirtækja.
    Viðmiðunarreglur þær sem starfshópurinn hefur tekið saman hafa verið samþykktar í ríkisstjórn og gaf settur fjármálaráðherra þær út þann 18. desember sl. Er fyrstu umsókna um aðstoð að vænta á næstunni.
    Þegar yfirlýsing stjórnvalda í tengslum við væntanlega lántöku hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum var gefin út lágu þegar fyrir hugmyndir um fjárhagslegan stuðning við sparisjóðina. Sjóðnum var kunnugt um þessar fyrirætlanir, enda eru þær í samræmi við heimildarákvæði í lögum nr. 125/2008. Því er ekki við því að búast að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn geri athugasemdir við það að nýtt verði heimildarákvæði laganna til þess að styðja við sparisjóðina.

    3.    Hvernig hyggst ríkisstjórnin taka á skuldbindingum sparisjóðanna, t.d. hvað snertir peningamarkaðssjóði og afskriftir útlána, þannig að jafnræðis sé gætt milli fjármálastofnana?
    Fyrirhugað er að aðgerðir ríkisstjórnarinnar til stuðnings sparisjóðum verði með almennum hætt og á grundvelli jafnræðisreglu.

    6.    Mun ráðherra beita sér fyrir breytingum á samkeppnislögum þannig að minni sparisjóðum verði heimilt að hafa með sér nánara samstarf en nú er, en starfa þó áfram sem sjálfstæðir sparisjóðir?

    Fyrir rúmu ári skipaði ráðherra nefnd til þess að fara heildstætt yfir þann kafla laga um fjármálafyrirtæki sem fjallar um sparisjóði. Þannig háttaði til að nefndin hafði ekki lokið störfum þegar hremmingarnar riðu yfir fjármálakerfið.
    Á þeim tíma hafði nefndin til skoðunar hvort nauðsynlegt kynni að vera að heimila sparisjóðum samstarf á tilteknum sviðum, jafnvel þótt slíkt samstarf kynni að ganga gegn ákvæðum samkeppnislaga. Niðurstöður nefndarstarfsins liggja ekki fyrir en þess er vænst að nefndin geti mjög fljótlega tekið upp þráðinn aftur.
    Þegar niðurstöður nefndarinnar liggja fyrir mun ráðherra móta afstöðu sína til einstakra álitaefna varðandi sparisjóðina. Staða sparisjóðanna verður ekki slitin úr samhengi við þá þróun sem orðið hefur á fjármagnsmarkaði og þær fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar að unnt verði að byggja hér upp öflugan fjármálamarkað sem er þess megnugur að veita almenningi og fyrirtækjum í landinu samkeppnishæfa þjónustu.