Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 295. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 521  —  295. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um stjórnarskrárbreytingar og stjórnlagaþing.

Frá Birgi Ármannssyni.



     1.      Hver eru áform ríkisstjórnarinnar um breytingar á stjórnarskrá fyrir kosningar í vor?
     2.      Hver eru áform ríkisstjórnarinnar um pólitískt samráð um þessar breytingar?
     3.      Telur ráðherra að nægur tími sé til þess á þeim stutta tíma sem er til kosninga að gera breytingar á stjórnarskrá?
     4.      Hvaða sjónarmið voru lögð til grundvallar þegar nefndarmenn voru valdir í sérstaka ráðgjafarnefnd vegna fyrirhugaðra stjórnarskrárbreytinga?
     5.      Hvernig samrýmast áform ríkisstjórnarinnar um að breyta stjórnarskrá fyrir vorið hugmyndum sem einnig hafa verið kynntar um að setja á fót stjórnlagaþing síðar á þessu ári?