Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 317. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 549 — 317. mál.
um breytingu á lögum um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis, nr. 13/2001, með síðari breytingum.
Á haustþingi voru samþykkt lög um breytingu á ýmsum lögum vegna kolvetnisstarfsemi, nr. 166/2008. Við meðferð frumvarpsins á Alþingi lagði iðnaðarnefnd m.a. til þá breytingu að leitað yrði umsagnar viðeigandi sveitarfélaga ef sótt væri um leyfi til rannsóknar og vinnslu á svæði sem er innan 1 sjómílu frá netlögum. Var samþykkt breytingartillaga um að bæta nýjum málslið um umsagnarrétt sveitarfélaga við 4. mgr. 10. gr. laga nr. 13/2001, um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis.
Við nánari athugun kemur í ljós að ákvæðið um umsagnarrétt sveitarfélaga á ekki heima í 4. mgr. 10. gr. laganna heldur í 4. mgr. 7. gr. Með frumvarpinu er því lagt til að nýr málsliður bætist við 4. mgr. 7. gr. laganna og jafnframt að 2. málsl. 4. mgr. 10. gr. laganna falli brott.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 549 — 317. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis, nr. 13/2001, með síðari breytingum.
Frá iðnaðarnefnd.
1. gr.
Við 4. mgr. 7. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þá skal Orkustofnun leita umsagnar viðeigandi sveitarfélaga ef sótt er um leyfi á svæði sem er innan 1 sjómílu frá netlögum.2. gr.
2. málsl. 4. mgr. 10. gr. laganna fellur brott.3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Greinargerð.