Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 318. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 550 — 318. mál.
til forsætisráðherra um bráðabirgðalög.
Hvert er viðhorf forsætisráðherra til setningar bráðabirgðalaga 7. júní 2008, um breytingu ákvæða laga um Viðlagatryggingu Íslands um eigin áhættu vátryggðs, í ljósi þeirra upplýsinga sem fram koma í svari viðskiptaráðherra á þingskjali 502 um að bráðabirgðalögin hafi aukið tjónabætur Viðlagatryggingar Íslands vegna lækkunar á sjálfsábyrgð aðeins um 28 millj. kr. í 629 tjónum eða um 45 þús. kr. í hverju tilviki, og með hliðsjón af því að skv. 28. gr. stjórnarskrár lýðveldisins er gert ráð fyrir að bráðabirgðalög verði aðeins gefin út þegar brýna nauðsyn ber til?
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 550 — 318. mál.
Fyrirspurn
til forsætisráðherra um bráðabirgðalög.
Frá Kristni H. Gunnarssyni.