Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 324. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 560 — 324. mál.
til fjármálaráðherra um fjárframlög til ferðamála á árunum 1998–2009.
1. Hversu háar fjárhæðir hafa farið til ferðamála á hverju ári á vegum samgönguráðuneytisins árin 1998–2007 og á vegum iðnaðarráðuneytisins árið 2008 og hvað er áætlað til málaflokksins í fjárlögum 2009? Óskað er eftir að í svarinu verði allar fjárhæðir uppfærðar á verðlagi fjárlaga fyrir árið 2009.
2. Hvernig skiptast framlög ráðuneytanna á sömu árum til:
a. ferðamálasamtaka,
b. gestastofa og upplýsingamiðstöðva,
c. markaðs- og kynningarverkefna,
d. menningartengdrar ferðaþjónustu?
3. Hversu há voru framlög til Ferðamálaráðs og Ferðamálastofu 1998–2008 og áætluð samkvæmt fjárlögum fyrir 2009?
4. Hver er á sömu árum kostnaður við rekstur skrifstofu Ferðamálaráðs og síðar Ferðamálastofu og framlög þeirra til:
a. styrkja,
b. markaðs- og kynningarverkefna, bæði innan lands og utan,
c. úrbóta á ferðamannastöðum?
5. Hversu margir erlendir ferðamenn komu til landsins á árunum 1998–2008, annars vegar um flugvelli og hins vegar með Norrænu?
Skriflegt svar óskast.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 560 — 324. mál.
Fyrirspurn
til fjármálaráðherra um fjárframlög til ferðamála á árunum 1998–2009.
Frá Sturlu Böðvarssyni.