Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 325. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Prentað upp.

Þskj. 561  —  325. mál.
Skriflegt svar.




Fyrirspurn


til iðnaðarráðherra um þróun raforkuverðs í dreifbýli og þéttbýli.

Frá Jóni Bjarnasyni.


     1.      Hver hefur verið töluleg þróun raforkuverðs og flutningskostnaðar til heimilisnotenda frá 1. janúar 2005?
     2.      Hefur raforkuverð þróast í samræmi við það sem vænst var þegar raforkulögin voru sett?
     3.      Hvað kostar kílóvattstundin til að hita annars vegar upp hús í Reykjavík með jarðvarma og hins vegar tilsvarandi hús á Skagaströnd með rafmagni?
     4.      Er það í samráði við stjórnvöld að raforkufyrirtæki stórhækka raforkuverð og flutningskostnað til neytenda víða um land þrátt fyrir tilmæli stjórnvalda til þjónustustofnana ríkis og sveitarfélaga um að halda aftur slíkum hækkunum?
     5.      Hvernig vill ráðherra tryggja meiri jöfnuð hvað varðar orkuverð til heimila og minni fyrirtækja í landinu?


Skriflegt svar óskast.