Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 329. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 565  —  329. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um könnun á greiðsluaðlögun fasteignaveðlána og stöðu á íbúðamarkaði.

Flm.: Guðlaugur Þór Þórðarson, Árni M. Mathiesen, Ármann Kr. Ólafsson,


Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Herdís Þórðardóttir, Ólöf Nordal.



    Alþingi ályktar að fela félags- og tryggingamálaráðherra að láta Íbúðalánasjóð kanna:
     a.      hvaða leiðir séu færar við greiðsluaðlögun fasteignaveðlána, svo sem frysting lána að hluta eða fullu og skipting lána í eingreiðslulán og hefðbundin fasteignaveðlán,
     b.      hvernig hægt sé að bæta stöðuna á íbúðamarkaði á helstu þéttbýlissvæðum landsins, t.d. með úttekt á stöðunni á íbúðamarkaði og greiningu á framtíðarhorfum.
    Skýrsla með tillögum til úrbóta verði lögð fyrir Alþingi fyrir 1. mars nk.

Greinargerð.


    Tillagan miðar að því að leitað verði leiða til úrbóta fyrir íslensk heimili þar sem mikill vandi steðjar nú að mörgum þeirra. Vegna falls íslensku krónunnar og aukinnar verðbólgu hefur greiðslubyrði íbúðalána aukist verulega hvort sem lánin eru í íslenskum krónum eða erlendri mynt. Þá hafa ráðstöfunartekjur lækkað mjög ásamt því að margir hafa tekið á sig skert stafshlutfall eða misst vinnuna. Því er lagt til að félags- og tryggingamálaráðherra feli Íbúðalánasjóði að kanna hvaða leiðir eru færar við greiðsluaðlögun fasteignaveðlána með því að skoða m.a. frystingu lána að fullu eða hluta og skiptingu lána í eingreiðslulán og hefðbundin fasteignaveðlán.
    Áhersla er lögð á greiðsluaðlögun sem feli í sér möguleika á að skipta upp fasteignaveðláni með þeim hætti að breyta allt að helmingi láns í eingreiðslulán. Slík breyting getur gert það að verkum að greiðslubyrði heimilanna léttist jafnframt því sem fjölskyldum yrði gert kleift að halda húsnæði sínu og vinna sig hægar út úr skuldunum með því að greiða lægri fjárhæð á meðan núverandi ástand varir. Fjölskylda sem nú þarf að greiða af tugmilljóna króna láni gæti þannig breytt helmingi láns í eingreiðslulán til 25 ára og þar með greitt einungis afborganir af helmingi lánsins næstu 25 árin. Ef nýtt verða þau tækifæri sem íslensku þjóðinni bjóðast eru allar líkur á að fasteignamarkaðurinn taki við sér á því tímabili og verð fasteigna eftir 25 ár verði hærra en sem nemur eingreiðsluláninu. Þá væri einnig hægt að leyfa innborgun á höfuðstól lánsins þegar hagur fjölskyldunnar vænkaðist, eða t.d. á nokkurra ára fresti.
    Auk þess er lagt til að Íbúðalánasjóði verði falið að gera úttekt á stöðunni á íbúðamarkaði á helstu þéttbýlissvæðum og leita leiða til að bæta hana. Er það í samræmi við lögbundin verkefni sjóðsins en eitt þeirra er að fylgjast með íbúðaþörf í landinu og áætlanagerð sveitarfélaga um þörf á íbúðarhúsnæði, sbr. 9. tölul. 9. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998. Með því að fela Íbúðalánasjóði að kanna þessi atriði ætti að vera hægt að finna heildræna lausn til frambúðar á þeim vanda sem hækkandi greiðslubyrði felur í sér fyrir íslensk heimili.