Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 330. máls.
um breytingu á lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998, með síðari breytingum.
Kjartan Ólafsson, Ragnheiður E. Árnadóttir, Sigurður Kári Kristjánsson,
Guðfinna S. Bjarnadóttir, Kristinn H. Gunnarsson, Þórunn Sveinbjarnardóttir.
Sveitarfélagi skal heimilt að afla leiguhúsnæðis með leigusamningi til að mæta tímabundinni húsnæðisþörf í sveitarfélagi. Um framkvæmd ákvæðisins gilda ákvæði VIII. kafla eftir því sem við á.
Nýti sveitarfélag sér þessa heimild skal það fá greiðslu frá ríkissjóði og skerðist þá hlutfallslega til samræmis réttur sveitarfélags til að fá endurgreiðslu vaxtamunar af láni til leiguíbúða, sbr. VIII. kafla.
Ráðherra setur með reglugerð nánari reglur um framkvæmd ákvæðisins, m.a. um fjárhæðir greiðslna úr ríkissjóði, endurgreiðslu vaxtamunar, mánaðarlegt leigugjald íbúða og rétt til leiguhúsnæðis.
Heimild sveitarfélags til að afla nýs leiguhúsnæðis með leigusamningi samkvæmt greininni fellur úr gildi 1. maí 2012 en gerðir samningar skulu þó halda gildi sínu til samningsloka.
Frumvarpinu er ætlað að veita sveitarfélögum heimild til að taka íbúðarhúsnæði á leigu til að leigja út til einstaklinga sem uppfylla skilyrði um félagslegt húsnæði og mæta þannig tímabundinni húsnæðisþörf í sveitarfélagi. Frumvarpið miðar að því að mæta tímabundnu ástandi og gerir sveitarfélögum kleift að vinna hraðar og skilvirkar á biðlistum eftir félagslegu húsnæði en ef byggja eða kaupa þyrfti nýjar íbúðir.
Lagt er að til að sveitarfélag fái greiðslu úr ríkissjóði til eins árs í senn en á móti lækki hlutfallslega réttur þess til að fá endurgreiðslu vaxtamunar sem ríkið greiðir vegna kaupa sveitarfélags á leiguhúsnæði. Miðað er við að ákvæði VIII. kafla laganna gildi eftir því sem við á um framkvæmd ákvæðisins. Með því geta sveitarfélög m.a. nýtt sér heimild til að láta hlutafélag, sjálfseignarstofnun eða félag með ótakmarkaðri ábyrgð sem annast útleigu íbúða í þeirra eigu einnig annast leigu og útleigu íbúða samkvæmt ákvæðinu. Þá mundi viðmið það sem kveðið er á um í 37. gr. um rétt til leiguhúsnæðis, sbr. 4. þátt reglugerðar nr. 873/2001, um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur, einnig eiga við um útleigu íbúða samkvæmt frumvarpinu. Þó er jafnframt kveðið á um sérstaka reglugerðarskyldu um framkvæmd ákvæðisins. Skal þar útfæra nánar reglur um framkvæmd ákvæðisins, úthlutunarfjárhæðir úr ríkissjóði, reglur um endurgreiðslu vaxtamunar, leigufjárhæð o.fl. Hvað niðurfellingu réttar til greiðslu á vaxtamun varðar mætti vel setja upp einfalda reglu sem gerir ráð fyrir því að á móti greiðslu til sveitafélags vegna tveggja leiguíbúða falli niður réttur til greiðslu vaxtamunar af einni íbúð.
Miðað er við að ákvæði VIII. kafla laganna gildi eftir því sem við á um framkvæmd þessara laga. Með því geta sveitarfélög m.a. nýtt sér heimild til að láta hlutafélag, sjálfseignarstofnun eða félag með ótakmarkaðri ábyrgð sem annast útleigu íbúða í þeirra eigu, einnig annast leigu og útleigu íbúða samkvæmt bráðabirgðaákvæðinu. Þá mundi viðmið það sem kveðið er á um í 37. gr. laganna um rétt til leiguhúsnæðis, sbr. 4. þátt reglugerðar nr. 873/2001, um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur, einnig eiga við um útleigu íbúða samkvæmt frumvarpinu. Lagt er til að heimildin sé tímabundin enda er henni ætlað að mæta þeim sérstöku aðstæðum sem nú ríkja í þjóðfélaginu.
Á sveitarfélögum hvílir m.a. sú skylda að tryggja eftir því sem kostur er framboð á leiguhúsnæði samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Í 5. gr. laga um húsnæðismál er þessi skylda áréttuð þar sem segir að sveitarstjórn beri ábyrgð á og hafi frumkvæði að því að leysa húsnæðisþörf þess fólks í sveitarfélaginu sem þarfnast aðstoðar við húsnæðisöflun. Við þær þjóðfélagsaðstæður sem nú eru fjölgar þeim hratt sem uppfylla skilyrði um félagslegt íbúðarhúsnæði og þarfnast aðstoðar. Það er því líklegt að þörf á slíku húsnæði aukist mikið en ef að líkum lætur er hér um tímabundið ástand að ræða sem rætist úr þegar heimskreppan er gengin yfir.
Til að leysa húsnæðisvanda er sveitarfélögunum gert kleift að fá 90% lán hjá Íbúðalánasjóði til að fjármagna byggingu eða kaup leiguíbúða, sbr. 36. gr. laga um húsnæðismál. Þessi lán bera lægri vexti en almenn lán sjóðsins og er það ríkið sem endurgreiðir þennan vaxtamun í 50 ár. Vaxtamunurinn er samkvæmt greinargerð með fjárlögum 2009 áætlaður 1,2% sem gerir 145 millj. kr. á ári á hverjar 750 íbúðir. Sveitarfélög þurfa svo að reiða fram 10% af kaupverði og skuldbinda sveitarfélagið til sama árafjölda. Á höfuðborgarsvæðinu nema þessi 10% að meðaltali 2 millj. kr. á hverja íbúð. Augljóslega er hér um að ræða mikil fjárútlát fyrir ríki og sveitarfélög. Kaup á félagslegu íbúðarhúsnæði hafa því í för með sér mikla skuldsetningu hins opinbera sem er ekki æskilegt við núverandi aðstæður. Jafnframt tekur það langan tíma að uppfylla húsnæðisþörf með þessum hætti. Því er lagt til að meðan þetta tímabundna ástand varir fái sveitarfélög heimild til að leigja íbúðir á almennum markaði og leigja þær svo út til þeirra sem uppfylla skilyrði um félagslegt íbúðarhúsnæði.
Með því að lögfesta þessa heimild geta sveitarfélög leigt íbúðir til þeirra sem uppfylla skilyrði um félagslegt íbúðarhúsnæði án þess þó að auka skuldbindingar ríkis og sveitarfélaga til 50 ára. Þá gerir hún sveitarfélögum kleift að bregðast við þörfinni með mun skjótari og skilvirkari hætti en ella. Þar sem leiguverð fer nú lækkandi vegna mikils framboðs á leiguhúsnæði er þessi lausn ákjósanleg í núverandi ástandi. Þessi aðferð mundi einnig geta rétt stöðu Íbúðalánasjóðs í ljósi þess að hann eignast íbúðarhúsnæði leigufélaga vegna þess að ekki er markaður fyrir húsnæði þeirra. Leigumarkaðurinn mundi með nýtingu heimildarinnar örvast og því draga úr þrýstingi á Íbúðalánasjóð til að taka yfir leigufélög. Jafnframt ýtir þetta undir að sveitarfélögin geti með skjótari hætti komið til móts við umbjóðendur sína þegar þess er þörf og dregið hraðar úr kostnaði sínum þegar betur árar.
Þessi ráðstöfun mundi því skila sér í sveigjanlegra kerfi og skjótari úrlausnum fyrir borgarana ásamt minni fjárútlátum og minni skuldsetningu hins opinbera.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Prentað upp.
Þskj. 568 — 330. mál.
Flutningsmenn.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998, með síðari breytingum.
Flm.: Ármann Kr. Ólafsson, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Ólöf Nordal,
Kjartan Ólafsson, Ragnheiður E. Árnadóttir, Sigurður Kári Kristjánsson,
Guðfinna S. Bjarnadóttir, Kristinn H. Gunnarsson, Þórunn Sveinbjarnardóttir.
1. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:Sveitarfélagi skal heimilt að afla leiguhúsnæðis með leigusamningi til að mæta tímabundinni húsnæðisþörf í sveitarfélagi. Um framkvæmd ákvæðisins gilda ákvæði VIII. kafla eftir því sem við á.
Nýti sveitarfélag sér þessa heimild skal það fá greiðslu frá ríkissjóði og skerðist þá hlutfallslega til samræmis réttur sveitarfélags til að fá endurgreiðslu vaxtamunar af láni til leiguíbúða, sbr. VIII. kafla.
Ráðherra setur með reglugerð nánari reglur um framkvæmd ákvæðisins, m.a. um fjárhæðir greiðslna úr ríkissjóði, endurgreiðslu vaxtamunar, mánaðarlegt leigugjald íbúða og rétt til leiguhúsnæðis.
Heimild sveitarfélags til að afla nýs leiguhúsnæðis með leigusamningi samkvæmt greininni fellur úr gildi 1. maí 2012 en gerðir samningar skulu þó halda gildi sínu til samningsloka.
2. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. maí 2009.Greinargerð.