Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 351. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 599  —  351. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, og lögum um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur, nr. 94/1996.

Flm.: Kristinn H. Gunnarsson.



Breytingar á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, með síðari breytingum.


1. gr.

    Í stað hlutfallstölunnar „10%“ í 1. málsl. 3. mgr. 66. gr. laganna kemur: 15%.

2. gr.

    Við 111. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Sveitarfélög skulu þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. fá 1/ 3 af tekjuskatti á arð af hlutum og hlutabréfum í einkahlutafélögum. Við ákvörðun þess til hvaða sveitarfélags skatturinn fellur skal fylgt sömu reglu og fram kemur í IV. kafla laga um tekjustofna sveitarfélaga.

Breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995.


3. gr.

    Við 1. gr. laganna bætist nýr stafliður, svohljóðandi: 1/ 3 tekjuskatts á arð af hlutum og hlutabréfum í einkahlutafélögum.

Breytingar á lögum um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur, nr. 94/1996.


4. gr.

    Við 21. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Fjármálaráðherra setur í samráði við samgönguráðherra reglur um uppgjör og skiptingu staðgreiðslu fjármagnstekjuskatts vegna arðs af hlutum og hlutabréfum í einkahlutafélögum.

5. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2010 og koma til framkvæmda við staðgreiðslu á árinu 2010 og álagningu tekjuskatts á árinu 2011.

Greinargerð.


    Meginefni frumvarpsins er tvíþætt. Í fyrsta lagi er lagt til að tekjuskattur af fjármagnstekjum einstaklinga utan rekstrar hækki úr 10% í 15% í því augnamiði að auka tekjur ríkissjóðs og jafnframt að draga úr þeim mun sem nú er á skattlagningu tekna annars vegar og fjármagns hins vegar. Hér á landi hefur skattlagning fjármagnstekna verið talin með því lægsta sem gerist innan OECD þótt erfitt geti verið að gera slíkan samanburð milli landa. Tekjuskattshlutfall hlutafélaga og einkahlutafélaga hér er 15% og fjármagnstekjuskattur 10% sem þýðir að heildarskattur á hagnað þessara félaga þegar arðurinn er kominn í hendur hluthafans er 23,5%. Skatthlutfall staðgreiðslu er 37,2%, þar af er tekjuskattur 24,1% og útsvar 13,1%.
    Í frumvarpinu er í annan stað lagt til að sveitarfélög eignist hlutdeild í fjármagnstekjum vegna arðs af hlutum og hlutabréfum í einkahlutafélögum. Er hér um að ræða tekjur sem skilgreindar eru í 4. tölul. C-liðar 7. gr. laga um tekjuskatt en þó aðeins að því er einkahlutafélög varðar. Er breytingin hugsuð til að bæta sveitarfélögum upp missi tekna sem þau hafa orðið fyrir í kjölfar einkahlutafélagavæðingar og þeirrar þróunar að eigendur slíkra félaga þiggi tekjur sínar fremur í formi arðs en launa.
    Verði frumvarpið að lögum hækkar reiknaður fjármagnstekjuskattur um 12,2 milljarða kr. samkvæmt upplýsingum frá ríkisskattstjóra sé miðað við mismunandi álagningarforsendur og skattstofna samkvæmt framtölum ársins 2008. Í fjárlögum ársins 2009 er gert ráð fyrir að fjármagnstekjuskattur einstaklinga á rekstrargrunni lækki um 11,5 milljarða kr. frá fjárlögum 2008, eða sem nemur 33%. Rétt er þó að hafa í huga að tekjuspá fyrir árið 2009 er háð meiri óvissu en undanfarin ár vegna efnahagshrunsins og þá er ekki sjálfgefið að skatttekjur aukist hlutfallslega í takti við hækkun skattprósentu.
    Með þessum breytingum má gera ráð fyrir hækkun á reiknuðum fjármagnstekjuskatti á einstaklinga vegna vaxta, arðs og leigu um 4,7 milljarða kr. en eins og áður segir gerir frumvarpið ráð fyrir að sveitarfélög njóti góðs af þeirri hækkun að því er varðar arð af hlutum og hlutabréfum í einkahlutafélögum.

Reiknaður fjármagnstekjuskattur einstaklinga miðað við mismunandi álagningarforsendur og skattstofna samkvæmt framtölum ársins 2008, millj. kr.

Fjármagnstekjuskattur Skattur af söluhagnaði Skattur af vöxtum,
arði og leigu
Reiknaður fjármagnstekjuskattur
5% 7.566 4.661 12.227
10% 15.131 9.323 24.454
15% 22.697 13.984 36.681
20% 30.262 18.645 48.908
25% 37.828 23.307 61.135
30% 45.394 27.968 73.362



Fylgiskjal.


Fjármálaráðuneytið,
tekju- og lagaskrifstofa:


Svar við fyrirspurn frá upplýsingasviði Alþingis.
(16. nóvember 2006.)

Fjármagnstekjuskattur á einstaklinga innan nokkurra OECD-landa.

    Fjármagnstekjuskattur er afar mismundi milli landa inna OECD og því erfitt og flókið að gera þar samanburð á. Skattkerfi eru ólík innbyrðis, sérstaklega er varðar skattlagningu einstaklinga og mörg atriði sem hafa áhrif á það hver hin endanlega skattlagning verður. Einnig verður að horfa til þess hvort um brúttó- eða nettó-skatt sé að ræða af fjármagnstekjum, skattprósentan ein og sér segir ekki alla söguna. Til þess að fá raunhæfan samanburð þyrfti að stilla um nokkrum dæmum um fjármagnstekjur einstaklinga og fá síðan viðkomandi skattyfirvöld í hverju landi til að reikna út álagninguna.
    Hér fyrir neðan eru teknar saman upplýsingar um skatta af fjármagnstekjum hjá nokkrum löndum innan OECD og eru upplýsingar að mestu sóttar í European Tax Handbook frá 2006 sem gefin er út af IBFD í Hollandi.

Ísland.
    Sérgreindur tekjustofn sem er eignatekjur, þ.e. vextir, arður, söluhagnaður og leigutekjur. Enginn frádráttur. Skatthlutfall er 10%.

Danmörk.
    Ekki er um sérgreindan skattstofn að ræða heldur eru fjármagnstekjur skattlagðar með almennum tekjum nema þegar um er að ræða hlutabréfatekjur en þá er innheimtur 28% skattur af tekjum upp að 44,300 d.kr. en 43% skattur af tekjum sem fara yfir þá upphæð.

Noregur.
    Ekki er um sérgreindan skattstofn að ræða heldur eru fjármagnstekjur skattlagðar með almennum tekjum. Heimilt er að draga frá arði ákveðna fjárhæð sem fundin er út árlega.

Svíþjóð.
    
Sérgreindur tekjustofn (vextir, arður, söluhagnaður ofl.) Skatthlutfall er 30%. Kostnaður við öflun fjármagnstekna, vaxtagjöld og sölutap er frádráttarbært.

Finnland.
    Sérgreindur tekjustofn (arður, vextir og þóknanir, söluhagnaður) og er skatthlutfall 28%. Heimilt er að undanskilja frá greiðslu fjármagnstekjuskatts, 30% af arðgreiðslum frá nánar tilgreindum félögum. Arðgreiðslur sem svara til um verðmæti 9% hlutabréfa eru undanþegnar, allt að 90.000 evrum á ári. 30% arðgreiðslna umfram það eru undanþegnar en restin er skattlögð með 28% skatthlutfalli.

Írland.
    Sérgreindur tekjustofn og er almennt skatthlutfall 20%. Nokkrar frádráttarheimildir eru til staðar, undanþeginn skatti er hagnaður allt að 1,270 evrum, hagnaður frá hlutabréfum í eigu tiltekinna opinberra aðila og fleira. Skatthlutfallið er 40% ef um er að ræða söluhagnað á nánar tilgreindu landi.

Bretland.
Fjármagnstekjur er skattlagður á mismunandi hátt eftir því hvaðan þær koma og hver tekjuskattsstofn hvers einstaklings er. Ýmsir frádrættir eru heimilaðir. Skatthlutfallið er frá 10% upp í 40%.

Þýskaland.
    Fjármagnstekjur eru skattlagðar með almennum tekjum. Kostnaður við öflun fjármagnstekna er frádráttarbær.

Lúxemborg.
    Fjármagnstekjur eru skattlagðar með almennum tekjum. Ýmsir frádrættir heimilaðir, t.d. má draga frá 50% af arði greiddum frá fyrirtæki sem skattlagt er að fullu í heimalandi.