Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 323. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 652 — 323. mál.
dómsmálaráðherra við fyrirspurn Marðar Árnasonar um „Eystrasaltsrússa“ á Íslandi.
1. Hver er réttarstaða „Eystrasaltsrússa“ á Íslandi, þ.e. þeirra íbúa Eystrasaltsríkjanna, einkum Eistlands og Lettlands, sem eru af slavnesku bergi brotnir og hafa ekki ríkisborgararétt í heimalandi sínu?
Réttarstaða einstaklinga af rússneskum uppruna, sem eru með varanlegan búseturétt í Eistlandi eða Lettlandi, er sambærileg stöðu annarra útlendinga sem ekki hafa ríkisfang í EES- eða EFTA-ríki en hafa varanlegan búseturétt í EES- eða EFTA-ríki. Um heimild til komu og dvalar hér á landi gilda lög nr. 96/2002, um útlendinga, og reglugerð nr. 53/2003, ásamt áorðnum breytingum. Réttarstaða þeirra fer eftir tilgangi komu og fyrirhugaðri lengd dvalar.
Sé tilgangur komu sá að veita þjónustu hér á landi á vegum þjónustuveitanda á Evrópska efnahagssvæðinu eða í EFTA-ríki gildir sú almenna regla skv. 2. mgr. 35. gr. laga um útlendinga, nr. 96/2002, að útlendingur, sem hvorki er ríkisborgari EES- eða EFTA-ríkis né aðstandandi slíks borgara, má koma til landsins án sérstaks leyfis til að veita þjónustu í allt að 90 starfsdaga á almanaksári sé hann sannanlega starfsmaður þjónustuveitandans.
Sé tilgangur komu heimsókn eða skemmri dvöl í allt að þrjá mánuði þarf viðkomandi einstaklingur ekki vegabréfsáritun þar sem útlendingur, sem er handhafi dvalarleyfis útgefins í ríki sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu, er undanþeginn áritunarskyldu skv. 6. gr. laga nr. 96/2002, um útlendinga. Þá eru þeir sem eru ríkisfangslausir, en búsettir í Evrópusambandsríki og hafa ferðaskilríki útgefið af því ríki, einnig undanþegnir vegabréfsáritun við komu til landsins, sbr. 10. tölul. II. kafla viðauka 3 við reglugerð um útlendinga, nr. 53/2003, sbr. reglugerð nr. 291/2007 um breytingu á fyrrnefndu reglugerðinni.
Að öðru leyti er staða framangreindra einstaklinga sambærileg og staða annarra útlendinga eins og fyrr segir, þ.e. um dvöl þeirra hér á landi gilda almennar reglur laga nr. 96/2002, um útlendinga, og er þeim því skylt að hafa dvalarleyfi sé ætlunin að dvelja lengur en þrjá mánuði hér á landi. Staða þeirra er slík þar sem umrædd Evrópusambandsríki, þ.e. Lettland og Eistland, hafa ekki veitt þessum hópi sjálfkrafa ríkisfang í þeim ríkjum og þar af leiðandi hafa þeir ekki sömu stöðu og EES- eða EFTA-útlendingar.
Réttarstaða þessa hóps, eins og annarra útlendinga, breytist ef um er að ræða aðstandanda EES- eða EFTA-útlendings sem dvelur löglega hér á landi. Skv. 1. mgr. 37. gr. útlendingalaga á aðstandandi slíks útlendings rétt til dvalar hér á landi en skv. 4. mgr. 37. gr. laganna ber þá viðkomandi, sem er ekki sjálfur ríkisborgari í EES- eða EFTA-ríki, að sækja um dvalarskírteini hér á landi.
2. Hversu oft hafa málefni manna úr þessum hópi komið til kasta Útlendingastofnunar frá því að Eystrasaltsríkin urðu hluti af EES-svæðinu? Hver hafa verið tildrög þeirra mála og úrslit?
Ekki hefur verið haldið sérstaklega utan um fjölda þeirra mála hjá Útlendingastofnun sem varða íbúa Eystrasaltsríkjanna af slavneskum uppruna. Þeir eru almennt skráðir sem ríkisfangslausir hjá stofnuninni en gróflega áætlað má gera ráð fyrir að alls dvelji um 40 manns hér á landi úr þessum hópi á gildum dvalarleyfum.
Síðastliðið ár hefur Útlendingastofnun orðið þess vör að menn með eistnesk eða lettnesk útlendingavegabréf hafi starfað hér á landi án tilskilinna leyfa. Um 5–10 tilvik er að ræða. Við því hefur verið brugðist með því að hafa samband við viðkomandi atvinnurekendur og leiðbeina þeim um að nauðsynlegt sé að afla dvalar- og atvinnuleyfa ef halda eigi vinnusambandinu áfram. Hvorki atvinnurekendurnir né launþegarnir hafa verið kærðir til lögreglu vegna þessara brota og styðst sú framkvæmd við það að eistnesku og lettnesku útlendingavegabréfin eru svo áþekk vegabréfum eistneskra og lettneskra borgara að litið hefur verið svo á að vanþekkingu og afsakanlegu gáleysi sé um að kenna fremur en saknæmri afstöðu.
3. Hver er réttarstaða þessa fólks í ríkjum Evrópusambandsins?
Ráðuneytið telur að um réttarstöðu þessa hóps almennt gildi tilskipun 2003/109/EB frá 25. nóvember 2003 „concerning the status of third-country nationals who are long-term residents“. Í tilskipuninni er kveðið á um stöðu einstaklinga með ríkisfang í ríki utan EES sem vilja eða hafa öðlast rétt til varanlegrar búsetu í Evrópusambandsríki. Tilskipunin nær einnig yfir þá sem eru ríkisfangslausir en uppfylla skilyrði tilskipunarinnar fyrir varanlegri dvöl. Til að öðlast rétt til varanlegrar búsetu þarf viðkomandi að hafa dvalið löglega samfleytt í fimm ár í viðkomandi ríki. Réttarstöðu þeirra er nánar lýst í tilskipuninni sem er aðgengileg á eftirfarandi vefsíðu: eur-lex.europa.eu.
Vakin er athygli á því að einhverjir einstaklingar úr þessum hópi kunna að njóta annarrar réttarstöðu á grundvelli hjúskapar við ríkisborgara sem hefur ríkisfang í EES- eða EFTA-ríki samkvæmt tilskipun 2004/38/EB um rétt ríkisborgara ríkja Evrópusambandsins, og fjölskyldna, þeirra til frjálsrar farar og dvalar.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 652 — 323. mál.
Svar