Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 388. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 653  —  388. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um fjölda háskólanema.

Frá Þorgerði K. Gunnarsdóttur.



     1.      Hver var fjöldi háskólanema hér á landi hvert áranna 2005–2008 og 2009?
     2.      Hver var fjöldi meistaranema hér á landi og Íslendinga í meistaranámi í útlöndum sömu ár?
     3.      Hver var á sama tíma fjöldi doktorsnema hér á landi og Íslendinga í doktorsnámi í útlöndum?
     4.      Hversu margir störfuðu við kennslu og rannsóknir á háskólastigi hér á landi sömu ár?


Skriflegt svar óskast.