Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 311. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 655  —  311. mál.




Svar



menntamálaráðherra við fyrirspurn Sigurðar Pétussonar um störf nefndar um eflingu háskólastarfs á Vestfjörðum.

     1.      Hefur nefnd sem fyrrverandi menntamálaráðherra skipaði í september árið 2007 og fjalla átti um eflingu háskóla- og fræðastarfs á Vestfjörðum lokið störfum?
    Fyrrverandi menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, skipaði í september 2007 nefnd sem ætlað var að gera tillögur um leiðir til eflingar háskóla- og fræðastarfs á Vestfjörðum. Skipun nefndarinnar var liður í mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar árið 2007, sem beindust að því að styrkja atvinnulíf í landinu, auka menntun og bæta úrræði þeirra einstaklinga sem misstu atvinnu vegna samdráttar í aflaheimildum.
    Í nefndina voru skipuð Guðfinna S. Bjarnadóttir alþingismaður, sem var formaður nefndarinnar, Einar Jörundsson, skrifstofustjóri í menntamálaráðuneyti, og Soffía Vagnsdóttir skólastjóri.
    Nefndin hélt 16 fundi og varði m.a. tveimur dögum í Ísafirði þar sem hún tók þátt í málþingi um atvinnulíf í Ísafjarðarbæ sem var haldið 20. október 2007. Nefndin fundaði síðan með heimamönnum bæði formlega og óformlega og safnaði efnivið í skýrsluna. Fyrstu hugmyndir að tillögum voru kynntar ráðherra í desember 2007 og fyrstu drög að skýrslu voru kynnt í lok febrúar 2008. Nefndin lauk störfum í maí 2008 og kynnti formaður nefndarinnar ráðherra skýrsluna með þeim orðum að líklega væri skynsamlegt að bíða með að kynna tillögur skýrslunnar þar til línur skýrðust í efnahagsmálum.

     2.      Mun ráðherra birta opinberlega niðurstöður eða tillögur nefndarinnar og þá hvenær?

    Ráðherra hefur kynnt sér tillögur nefndarinnar og verður að segja að þær séu vissulega metnaðarfullar, bæði hvað varðar eflingu háskóla- og fræðastarfs á Vestfjörðum og ekki síður hvað varðar útgjöld ríkissjóðs. Rétt er að ítreka að aðeins er um að ræða drög að skýrslu sem kynnt voru fyrrverandi ráðherra með þeim fyrirvara að nefndin teldi forsendur tillagnanna vera í uppnámi vegna þeirrar óvissu sem þá var í efnahagsmálum. Eins og kunnugt er hefur efnahagsástandið breyst mjög til hins verra síðan þá.
    Eigi að síður má telja rétt að birta opinberlega niðurstöður nefndarinnar, en með þeim fyrirvara sem að framan greinir. Það er mikilvægt, ekki síst vegna þeirra væntinga sem Vestfirðingar höfðu til þessarar nefndar og í ljósi hinnar öflugu umræðu sem þar fór fram um mikilvægi háskólamenntunar og háskóla- og fræðastarfs á Vestfjörðum. Tillögur nefndarinnar voru m.a. byggðar á þeirri umræðu og upplýsingum sem söfnuðust í tengslum við þátttöku nefndarinnar á málþinginu á Ísafirði og fundi með heimamönnum. Stefnt er að því að birta skýrsludrögin fljótlega opinberlega á heimasíðu ráðuneytisins þar sem fram koma forsendur, markmið og megintillögur.