Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 402. máls.

Þskj. 683  —  402. mál.



Frumvarp til laga

um breyting á lögum um íslenskan ríkisborgararétt,
nr. 100 23. desember 1952, með síðari breytingum.

(Lagt fyrir Alþingi á 136. löggjafarþingi 2008–2009.)




1. gr.

    Við 3. tölul. 9. gr. laganna bætist nýr málsliður er orðast svo: Ráðherra getur falið Námsmatsstofnun eða öðrum sambærilegum aðila að annast undirbúning og framkvæmd prófa og greiðist kostnaður vegna þessa með gjaldi sem ráðherra ákveður.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Samkvæmt 3. tölul. 9. gr. laga um íslenskan ríkisborgararétt, eins og þeim var breytt með lögum nr. 81/2007, skal sá sem sækir um íslenskan ríkisborgararétt á grundvelli 7. gr. laganna hafa staðist próf í íslensku samkvæmt kröfum sem dómsmálaráðherra setur í reglugerð.
    Í frumvarpinu er lagt til að lögfest verði heimild til handa ráðherra til að fela Námsmatsstofnun eða öðrum sambærilegum aðila að annast undirbúning og sjá um framkvæmd prófanna. Enn fremur er lagt til að lögfest verði heimild til handa ráðherra til að ákveða fjárhæð gjalds sem þeir skulu greiða sem gangast undir íslenskupróf. Gert er ráð fyrir að prófgjald takmarkist við kostnað af prófraun og undirbúningi hennar. Í gildandi lögum er ekki heimild fyrir slíkri gjaldtöku, en rétt þykir að þeir sem þreyta próf greiði þann kostnað sem því er samfara.


Fylgiskjal.


Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:

Umsögn um frumvarp til laga um breyting á lögum um íslenskan ríkisborgararétt, nr. 100 23. desember 1952, með síðari breytingum.

    Með frumvarpi þessu er lagt til að veitt verði heimild til að fela Námsmatsstofnun eða öðrum sambærilegum aðila að annast undirbúning og sjá um framkvæmd prófa í íslensku sem öllum er sækja um íslenskan ríkisborgararétt er ætlað að undirgangast. Jafnframt er lagt til að heimild verði veitt til að ákvarða prófgjald sem ætlað er að standa undir kostnaði við prófin og undirbúning þeirra. Á fjárlögum hefur verið veitt 2 m.kr. árlega til dómsmálaráðuneytisins til að annast stöðupróf í íslensku fyrir þá sem hyggjast sækja um íslenskan ríkisborgararétt og er gert ráð fyrir að hún falli því niður. Með frumvarpi þessu verður ekki breyting á gjaldaheimild, heldur koma tekjur á móti útgjöldum.
    Verði frumvarpið óbreytt að lögum er þannig gert ráð fyrir 2 m.kr. lækkun á greiðslum úr ríkissjóði.