Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 230. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 722 — 230. mál.
viðskiptaráðherra við fyrirspurn Álfheiðar Ingadóttur um upplýsingar af fundi með fjármálaráðherra Breta 2. september sl.
1. Var rituð fundargerð á fundi ráðherra með fjármálaráðherra Breta, Alistair Darling, 2. september sl., af hálfu ráðuneytisins, sem undirbjó fundinn?
Nei, það var ekki rituð fundargerð á fundinum.
2. Ef svo er ekki, hefur ráðherra upplýsingar um hvort bresk stjórnvöld rituðu fundargerð?
Ekki liggja fyrir upplýsingar um hvort bresk stjórnvöld rituðu fundargerð um fundinn.
3. Hverjar voru áherslurnar í svonefndum talpunktum, sem upplýst hefur verið að hafi verið ritaðir fyrir fundinn til undirbúnings viðræðunum?
Talpunktar þeir sem vísað er til eru vinnuskjal þáverandi viðskiptaráðherra til eigin afnota og verður því ekki upplýst um innihald þeirra, sbr. 3. tölul. 4. gr. upplýsingalaga, nr. 50/ 1996.
4. Er ráðherra tilbúinn til að birta fundargerð eða umrædda talpunkta til að upplýsa þjóðina um hvað fór fram á fundi hans með breska fjármálaráðherranum?
Vísað er til svara í 1.–3. tölul.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 722 — 230. mál.
Svar