Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 285. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 752  —  285. mál.




Svar



viðskiptaráðherra við fyrirspurn Sivjar Friðleifsdóttur um tölvupóst til breska fjármálaráðuneytisins.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvernig hljóðar tölvupóstur sá frá viðskiptaráðuneytinu dags. 14. ágúst 2008 sem vísað er til í bréfi til breska fjármálaráðuneytisins 20. ágúst, sbr. svar á þskj. 503 við fyrirspurn um bréf til breska fjármálaráðuneytisins?

    Texti tölvupósts frá 14. ágúst 2008 sem vísað er til í bréfi til breska fjármálaráðuneytisins dags. 20. ágúst 2008 er eftirfarandi:
    „Ágæti hr. Maxwell.
    Þakka yður fyrir bréf yðar dags. 7. ágúst.
    Skilningur yðar á íslenskum lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta er að flestu leyti réttur. Við viljum hins vegar benda á að lagaleg greiðsluábyrgð samkvæmt kerfinu takmarkast við þá fjármuni sem tiltækir eru þegar um er að ræða fjárhæðir umfram 20.887 evrur (fjárhæðin 1,7 millj. kr. samkvæmt lögunum er bundin kaupgengi evrunnar 5. janúar 1999, sem var 20.887 evrur). Það ætti einnig að svara 1. spurningu yðar. Það er alveg skýrt samkvæmt lögunum að sjóðnum ber að greiða út kröfur allt að 20.887 evrum og því mundi stjórnin ávallt leita eftir láni til þess að tryggja að sjóðurinn greiði út það lágmark.
    Að því er varðar 2. og 5. spurningu hefur stjórnin ekki tekið neina ákvörðun um þetta og áður en við getum gefið ákveðið svar um hvað stjórnvöld kynnu að gera yrði að ræða málið í ríkisstjórninni.
    Svo að svarað sé 3. spurningu eru engar reglur skv. 10. gr. um það hvernig frekari gjaldtökur verði notaðar, en ljóst er að ef kröfuhafi fær ekki greiddar fullar bætur (alla innstæðu sína) þegar krafa hans er greidd út, heldur aðeins lágmarksgreiðsluna 20.887 evrur, getur hann ekki síðar haft uppi kröfur á hendur sjóðnum um greiðslu eftirstöðva. Efni 10. gr. ber að skilja í ljósi þeirrar grundvallarreglu laganna um að kröfuhafi skuli alltaf fá greiddar a.m.k. 20.887 evrur. Í 6. gr. er skýrt hvernig viðskiptabankar og sparisjóðir skuli inna af hendi greiðslur til sjóðsins, engar frekari reglur er að finna í lögunum eða reglugerð um hvernig greiðslum til sjóðsins skuli háttað ef eignir hans hrökkva ekki til og krafa kemur til greiðslu.
    Í 4. spurningu spyrjið þér um skilgreiningu á ábyrgðaryfirlýsingum. Ábyrgðaryfirlýsingar þær sem nefndar eru „guarantee pledges“ í ársskýrslunni en „declarations of liability“ í lögunum eru eitt og hið sama, þ.e. yfirlýsingar sem aðildarfélög gefa til þess að tryggja að 1% lágmarkinu sé náð.
    Til þess að upplýsa yður um uppfærða stöðu tryggðra innstæðna, var heildarfjárhæð innstæðna hinn 31. maí 2008 2.170.179 millj. kr. Innstæður undir 2 millj. kr. voru 421.910 millj. kr.
    Loks, til þess að svara spurningu nr. 7, er fjárhæðin 1,7 millj. kr. sem kveðið er á um í lögunum tengd gengi evrunnar hinn 5. janúar 1999 og nemur því 20.887 evrum; gengi evrunnar gagnvart íslenskri krónu hefur ekki áhrif á þessi mörk.
    Ég vona að þetta sé fullnægjandi svar við spurningum yðar. Ef frekari upplýsinga er þörf kynni að vera gott ráð að halda símafund.“

    Texti tölvupóstsins hljóðar svo á ensku:
    „Dear Mr. Maxwell.
    Thank you for your letter dated 7 August.
    Your understanding of the Icelandic legislation on The Icelandic Depositor's and Investor's Guarantee Fund is in most ways correct. We would however like to point out that the liability in law under the scheme to make a payout is limited to the resources available when it comes to amounts higher than 20.887 Euros (the amount of 1.7 m krona in the law is linked to the EUR exchange rate of 5 January 1999, and is 20.887 Euros). This should also answer your first question. It is absolutely clear according to the law that the fund has to pay out claims up to 20.887 Euros and therefore the Board would always seek a loan to ensure that the scheme pays out to that minimum.
    Regarding questions number 2 and 5, the Board has not made any decision on this and before we can give you a definite answer on what the authorites would to this would have to be discussed by the Government.
    To answer question number 3 there are no rules in Article 10 about how future levies will be used, but it is clear that if a claimant does not get full compensation (all his deposits) when his claim is paid out, but only the minimum of 20.887 Euros or more he cannot make a claim against the Fund at a later stage to get the rest. Article 10 should be read in the light of the basic principle of the law that a claimant will always get at least his 20.887 Euros. In Article 6 it is explained how commercial and savings banks shall contribute to the Fund, there are no further rules in the law or the regulation on how payments shall be made to the fund in case it is emptied out and has a loan to pay.
    In question number four you ask for a definition of guarantee pledges. The guarantee pledges referred to in the Annual Report and the declarations of liability referred to in Articles 6 and 7 of the Act are the same thing; pledges that the Members of the Fund make to ensure that the required 1% minimum is met.
    To give you an updated figure of the level of guaranteed deposits the total amount of deposits on 31 May 2008 was 2.170.179 m krona. Deposits under 2 m krona were 421.910 m krona.
    Finally to answer question number seven the 1.7 m krona referred to in the Act is linked to the EUR exchange rate of 5 January 1999, and is 20.887 Euros, this limit is not affected by the Krona-Euro exchange rate.
    I hope this answers your questions sufficiently. If you need further explanations a conference call could be a good idea.“