Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 362. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 766  —  362. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um náttúruvernd, nr. 44/1999, með síðari breytingum.

Frá umhverfisnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Loga Kjartansson frá umhverfisráðuneyti. Þá bárust nefndinni umsagnir frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Landmælingum Íslands, Félagi íslenskra náttúrufræðinga, Náttúrufræðistofnun Íslands, Félagi landfræðinga, Landvarðafélagi Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Samtökum iðnaðarins, Landvernd og Umhverfisstofnun.
    Frumvarpinu er ætlað að lögfesta gjaldtökuheimild fyrir námskeið fyrir landverði sem Umhverfisstofnun annast. Þá er lagt til að viðkomandi þurfi að hafa lokið námskeiði Umhverfisstofnunar um landvörslu til að mega starfa sem landvörður. Þó er stofnuninni veitt heimild til að veita öðrum réttindin hafi þeir öðlast menntun sem samsvarar efnisþáttum framangreinds námskeiðs.
    Ljóst er að stöðugildum landvarða hefur fjölgað talsvert frá árinu 2008 og samhliða því ásókn í námskeið Umhverfisstofnunar um landvörslu. Stofnunin hefur innheimt námskeiðsgjald án þess að til þess væri ótvíræð lagaheimild. Tekjur af gjaldinu hafa þó ekki staðið undir kostnaði. Nefndin telur því rétt að lögfest sé gjaldtökuheimild enda sé kveðið á um að gjaldið sé ekki hærra en nemi kostnaði við námskeiðið.
    Nefndin telur að ekki eigi að gera það að skilyrði fyrir rétti til að starfa sem landvörður að viðkomandi hafi lokið námskeiðinu enda sé óeðlilegt að Umhverfisstofnun sem haldi námskeið fyrir landverði setji jafnframt reglur um námskröfur þeirra. Þá er til staðar reglugerð umhverfisráðherra sem kveður á um námskröfurnar og ekkert því til fyrirstöðu að halda því fyrirkomulagi. Jafnframt er óeðlilegt að Umhverfisstofnun sé falið það hlutverk að meta menntun sem samsvarar efnisþáttum námskeiðsins án þess að stofnuninni séu settar skýrar reglur um slíkt mat. Samkvæmt frumvarpinu er ráðherra ekki lengur skylt að setja reglugerð um nánari ákvæði er varða nám og starfsskyldur þeirra sem starfa á náttúruverndarsvæðum, m.a. landvarða, heldur eingöngu heimilt. Nefndin leggur því til að óbreytt fyrirkomulag verði haft á þessu þannig að umhverfisráðherra setji í reglugerð að fengnum tillögum stofnunarinnar nánari ákvæði um menntun og starfsskyldur þeirra sem starfa á náttúruverndarsvæðum. Þá verði felld brott skilyrði um að hafa lokið landvörslunámskeiði Umhverfisstofnunar til að öðlast rétt til að starfa sem landvörður. Auk þess leggur nefndin til að við bætist ný málsgrein sem kveði á um skyldu Umhverfisstofnunar að halda námskeið í landvörslu í samræmi við reglugerð ráðherra. Ákvæðið veitir stofnuninni jafnframt heimild til gjaldtöku fyrir námskeiðið í samræmi við 3.–4. málsl. 1. gr. frumvarpsins.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:



    1. gr. orðist svo:
    Við 29. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Umhverfisstofnun skal halda námskeið í landvörslu í samræmi við reglugerð umhverfisráðherra, sbr. 2. mgr. Umhverfisstofnun er heimilt að taka gjald fyrir námskeið í landvörslu og próftöku sem þátttakendur greiða. Upphæð gjalds má ekki vera hærri en sá kostnaður sem hlýst af námskeiðshaldi og vinnu vegna próftöku. Ráðherra setur gjaldskrá að fengnum tillögum Umhverfisstofnunar.

    Karl V. Matthíasson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 19. mars 2009.



Helgi Hjörvar,


form., frsm.


Atli Gíslason.


Eygló Harðardóttir.



Katrín Júlíusdóttir.


Kjartan Ólafsson.


Árni M. Mathiesen.



Jón Gunnarsson.


Kristinn H. Gunnarsson.