Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 348. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 784 — 348. mál.
samgönguráðherra við fyrirspurn Einars K. Guðfinnssonar um útboð vegaframkvæmda á árinu 2009.
Fyrirspurnin var svohljóðandi:
Hvaða vegagerðarverkefni er ætlunin að bjóða út á árinu 2009? Svar óskast sundurliðað eftir kjördæmum.
Ekki hefur að öllu leyti verið ákveðið hvaða vegagerðarverkefni verður unnt að bjóða út árið 2009. Heildarfjárveiting til vegamála liggur fyrir á fjárlögum, en þróun verðlags getur haft töluverð áhrif á þau verk sem þegar eru í gangi og þar með á það rými sem verður til nýrra verkefna. Þá munu niðurstöðutölur úr útboðum ársins einnig hafa áhrif á það hvaða fjármagn verður til ráðstöfunar.
Þau stærri verkefni sem hafa verið boðin út á árinu 2009 eða reiknað er með að verði boðin út á næstu vikum og mánuðum eru eftirfarandi, sundurliðað eftir kjördæmum:
Suðurkjördæmi:
Bræðratunguvegur (með brú yfir Hvítá).
Suðurstrandavegur, seinni hluti.
Suðurlandsvegur (áfangi).
Suðvesturkjördæmi og Reykjavíkurkjördæmi:
Hringvegur í Mosfellsbæ.
Álftanesvegur.
Arnarnesvegur.
Bætt umferðarflæði og almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu, ýmis smærri verk en þau eru:
* Bústaðavegur – Kringlumýrarbraut: Tvöföldun rampa til suðurs í átt að Kringlumýrarbraut ásamt gerð undirganga fyrir gangandi og hjólandi.
* Bústaðavegur – Flugvallarvegur: Tvöföldun vinstri beygju til suðurs inn á Flugvallarveg og breikkun Flugvallarvegar.
* Hringbraut – Njarðargata: Breyting umferðarljósastýringa úr þremur fösum í fjóra fasa þannig að allar vinstribeygjur séu varðar.
* Hringbraut – Sæmundargata: Lagfæring gatnamóta, lenging vinstri beygjureinar. Vinstri beygja af Sæmundargötu til vesturs verður bönnuð.
* Kringlumýrarbraut – Laugavegur – Suðurlandsbraut: Breyting umferðarljósastýringa úr þremur fösum í fjóra fasa þannig að allar vinstri beygjur séu varðar. Einnig verður gerð sérstök strætórein.
* Kringlumýrarbraut – Borgartún: Breyting umferðarljósastýringa úr þremur fösum í fjóra fasa þannig að allar vinstri beygjur verði varðar. Einnig verður gerð sérstök strætórein.
* Miklabraut – Kringlumýrarbraut: Miklabraut breikkuð frá strætóútskoti vestan gatnamótanna til að strætó fái forgang á umferðarljósum til austurs.
* Kringlumýrarbraut – Listabraut: Lenging strætóútskots ásamt lagfæringum gönguleiðar yfir Kringlumýrarbraut frá Listabraut.
* Höfðabakki: Afköst gatnamótanna við Vesturlandsveg og Bíldshöfða verða aukin. Tilfærslur akreina til að greiða fyrir umferð.
* Breiðholtsbraut – Jaðarsel: Endurskoðun umferðarljósa til að auka afköst ásamt gerð hægri beygju framhjáhlaups til austurs fram hjá umferðarljósunum.
* Bústaðavegur – Reykjanesbraut: Lagfæring gatnamóta og lokun vinstri beygju af Bústaðavegi inn á Reykjanesbraut til norðurs á álagstímum. Sett verða upp sérstök upplýsingaskilti til að miðla upplýsingum um lokun.
Auk þessara framkvæmda verður ráðist í nokkrar aðrar af sama toga til að greiða fyrir umferð í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur. Ekki er lokið samningum milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaganna um framkvæmdirnar.
Norðvesturkjördæmi:
Vestfjarðavegur (Kjálkafjörður – Vatnsfjörður).
Brú á Haffjarðará.
Norðausturkjördæmi:
Vopnafjarðartenging.
Raufarhafnartenging.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 784 — 348. mál.
Svar