Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 846, 136. löggjafarþing 421. mál: grunnskólar (samræmd könnunarpróf).
Lög nr. 34 3. apríl 2009.

Lög um breyting á lögum nr. 91/2008, um grunnskóla.


1. gr.

     Ákvæði til bráðabirgða V í lögunum fellur brott.

2. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 30. mars 2009.