Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 392. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 939  —  392. mál.




Svar



sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Marðar Árnasonar um fiskmarkaði og hvalveiðar.

     1.      Hvernig metur ráðherra þau viðbrögð sem fram hafa komið eftir ákvörðun um endurupptöku hvalveiða, annars vegar frá fulltrúum fiskseljenda á mörkuðum erlendis og hins vegar af opinberri hálfu?
    Ráðherra hefur lýst yfir áhyggjum sínum af því hvaða áhrif hvalveiðar kunni að hafa og hefur því verið fylgst vel með viðbrögðum við þeim erlendis og hér á landi. Íslensk stjórnvöld hafa tekið allar athugasemdir við hvalveiðar Íslendinga alvarlega og sent þeim sem mótmælt hafa svör og skýringar. Nú er unnið í samstarfi við forsætisráðuneyti og utanríkisráðuneyti að því að svara sérstaklega þeim erlendu viðskiptavinum sem lýst hafa áhyggjum af hvalveiðum.

     2.      Hvern telur ráðherra ásættanlegan skaða við afurðasölu á erlendum markaði áður en breytt verði ákvörðun um endurupptöku hvalveiða?
    Það er erfitt að meta fyrir fram hugsanlegt viðskiptatjón en reynsla síðustu ára hefur verið sú að þrátt fyrir fjöldasendingar mótmælabréfa hefur verið aukning í afurðasölu íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja og sömuleiðis í fjölda ferðamanna til landsins. Sama hefur mátt segja um auknar vinsældir hvalaskoðunar hér við land á sama tíma.

     3.      Hyggst ráðherra hafa uppi áróðursviðbúnað til að slá á neikvæð viðbrögð vegna hvalveiðanna á mörkuðum – og ef svo er, hvað telur ráðherra hæfilegt að verja miklu fé til slíks áróðurs?

    Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti vinnur í nánu samstarfi við forsætisráðuneyti og utanríkisráðuneyti að viðbrögðum við mótmælum og umkvörtunum. Engin sérstök áróðursherferð er ráðgerð og litlu kostað til, en sendiskrifstofur utanríkisráðuneytisins eru nýttar til verksins.