Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 471. máls.
136. löggjafarþing 2008–2009.
Þskj. 947  —  471. mál.




Svar



utanríkisráðherra við fyrirspurn Álfheiðar Ingadóttur um flug herflugvéla.

     1.      Hver var tilgangurinn með flugi herflugvéla yfir Akureyri helgina 21. og 22. mars sl.?

    Tilgangur flugs herflugvélanna var að æfa aðflug að Akureyrarflugvelli sem er nauðsynlegt af öryggisástæðum lokist Keflavíkurflugvöllur eða ef upp koma önnur ófyrirséð atvik. Flugvélarnar flugu ekki yfir bæinn heldur hefðbundna aðflugsleið og var aðflugsæfingin samhæfð við flugturn Akureyrarflugvallar og Flugstoðir.

     2.      Hver var flugleið þessara véla og hversu hátt eða lágt flugu þær yfir Akureyri og annarri byggð?
    Vélarnar flugu eftir skilgreindum aðflugsferlum og í samræmi við allar öryggisreglur sem gerðar eru til flugvéla sem eru í aðflugi að Akureyrarflugvelli. Lægst fóru þær í 300 fet yfir flugbraut Akureyrarvallar.

     3.      Hvaða her tilheyra þessar vélar?
    Flugvélar þessar tilheyrðu danska flughernum og voru hér að sinna loftrýmisgæslu.

     4.      Hverrar tegundar eru vélarnar og hvaða vopnum eru þær búnar?

    Vélarnar eru af F-16 gerð og útbúnar vélbyssu og léttum flugskeytum.

     5.      Er flug af þessum toga áætlað í framtíðinni?
    Já, þessi flug hafa verið með sama fyrirkomulagi sl. ár og gera má ráð fyrir sambærilegu flugi í hvert sinn sem fram fer loftrýmisgæsla við Ísland með þátttöku flugsveita frá bandalagsríkjum okkar í Atlantshafsbandalaginu. Æfing aðflugs að Akureyrarflugvelli er hluti af öryggisviðbúnaði vegna þessa flugs.