Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 962, 136. löggjafarþing 416. mál: Ríkisendurskoðun (bættur aðgangur fjárlaganefndar að upplýsingum).
Lög nr. 56 27. apríl 2009.
Ríkisendurskoðun er heimilt að veita fjárlaganefnd Alþingis aðgang að þeim gögnum sem hún aflar skv. 1. mgr. eða leggja fram skýrslu. Nefndarmenn eru bundnir þagnarskyldu um þá vitneskju sem þeir fá í nefndinni ef ríkisendurskoðandi kveður svo á um.
Þingskjal 962, 136. löggjafarþing 416. mál: Ríkisendurskoðun (bættur aðgangur fjárlaganefndar að upplýsingum).
Lög nr. 56 27. apríl 2009.
Lög um breytingu á lögum um Ríkisendurskoðun, nr. 86/1997.
1. gr.
Við 10. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Ríkisendurskoðun er heimilt að veita fjárlaganefnd Alþingis aðgang að þeim gögnum sem hún aflar skv. 1. mgr. eða leggja fram skýrslu. Nefndarmenn eru bundnir þagnarskyldu um þá vitneskju sem þeir fá í nefndinni ef ríkisendurskoðandi kveður svo á um.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 17. apríl 2009.