Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 19. máls.
137. löggjafarþing 2009.
Þskj. 19  —  19. mál.




Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um starfsemi banka og vátryggingafélaga.

Frá Árna Þór Sigurðssyni.



     1.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að starfsemi viðskiptabanka og fjárfestingarbanka verði aðskilin í lögum?
     2.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að starfsemi vátryggingafélaga og fjárfestingarfélaga verði aðskilin í lögum?