Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 40. máls.
137. löggjafarþing 2009.
Þskj. 40  —  40. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um krónubréf.

Frá Sigmundi Erni Rúnarssyni.



     1.      Hvert er heildarnafnvirði útgefinna skuldabréfa í íslenskum krónum frá upphafi til 15. maí 2009 sl., sundurliðað eftir útgefanda, landi, starfsemi, upphæð, útgáfudegi, gjalddaga og gengisvísitölu?
     2.      Hverjir eru 15 stærstu útgefendur krónubréfa og hvert er heildarnafnvirði bréfa sem hver og einn hefur gefið út?
     3.      Hversu há upphæð gjaldfellur mánaðarlega héðan í frá?
     4.      Er vitað til þess að íslensk fyrirtæki eigi eignarhlut í bréfunum í gegnum íslensk eða erlend eignarhaldsfélög?


Skriflegt svar óskast.