Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 45. máls.
137. löggjafarþing 2009.
Þskj. 115  —  45. mál.




Svar



dómsmálaráðherra við fyrirspurn Ólafar Nordal um fjárnám og nauðungarsölu.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hver hefur þróun beiðna um fjárnám og nauðungarsölu verið síðustu níu mánuði?
     2.      Hve margar í heild voru beiðnir um fjárnám og nauðungarsölu á árunum 2006, 2007 og 2008?
     3.      Hve margar beiðnir um fjárnám og nauðungarsölu hafa komið fram það sem af er þessu ári?
     4.      Hvert er hlutfall þeirra sem hafa nýtt sér ákvæði laga um frestun nauðungarsölu?
    Svar óskast sundurliðað eftir sýslumannsembættum.


    Hinn 27. maí sl. barst dómsmálaráðherra fyrirspurn frá Ólöfu Nordal um fjárnám og nauðungarsölu, sbr. þskj. 45. Í kjölfarið var leitað eftir upplýsingum hjá sýslumönnum landsins. Meðfylgjandi eru svör frá embættum sýslumannanna.
    Þar sem tölvukerfi sýslumannsembættanna gefur ekki kost á að kalla eftir upplýsingum með ítarlegum hætti eða þeirri sundurliðun sem óskað var eftir urðu mörg embætti að fara handvirkt yfir þær beiðnir sem höfðu borist.
    Í samantekt þessari er ekki gerður greinarmunur á fasteignum og lausafé nema annað sé tekið fram.
    Rétt er að benda á að fleiri en ein beiðni um fjárnám eða nauðungarsölu geta verið á hverri eign.
    Hvað varðar svar við spurningu nr. 4, um hlutfall þeirra sem hafa nýtt sér heimild til að fá frestun á nauðungarsölu á íbúðarhúsnæði, getur verið mismunandi hvort hlutfall beiðna um frestun er reiknuð miðað við þá sem rétt áttu á fresti eða af heildarfjölda nauðungarsölubeiðna eða nauðungarsölumála.

1. Þróun beiðna um fjárnám og nauðungarsölu síðustu níu mánuði.

Sýslumaðurinn á Akranesi.
Fjárnámsbeiðnir Nauðungarsölubeiðnir
September 49 5
Október 68 9
Nóvember 50 7
Desember 51 11
Janúar 80 66*
Febrúar 169 9
Mars 101 20
Apríl 34 4
Maí 99 8
*Í janúar 2009 komu beiðnir á fjögur fjölbýlishús í byggingu og stundum fleiri en ein beiðni á hvert fastanúmer.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.











Sýslumaðurinn á Akureyri.

Fjárnámsbeiðnir Nauðungarsölubeiðnir*
September 160
Október 190
Nóvember 95
Desember 115
Janúar 130
Febrúar 258
Mars 142
Apríl 286
Maí 110
*Embætti sýslumannsins á Akureyri sá sér ekki fært að skila inn upplýsingum um þróun nauðungarsölubeiðna síðustu níu mánuði. Embættið hafði ekki orðið vart við aukningu á nauðungarsölubeiðnum og að meðaltali hafa borist um 58 beiðnir á mánuði það sem af er árinu 2009 en að meðaltali bárust um 40 beiðnir á mánuði árið 2008.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.










Sýslumaðurinn á Blönduósi.

Fjárnámsbeiðnir Nauðungarsölubeiðnir
September 11 1
Október 35 4
Nóvember 24 1
Desember 15 1
Janúar 75 5
Febrúar 13 3
Mars 25 6
Apríl 7 1
Maí 25 5

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.












Sýslumaðurinn í Bolungarvík.

Fjárnámsbeiðnir Nauðungarsölubeiðnir
September 32 2
Október 1 1
Nóvember 3 2
Desember 7 2
Janúar 11 1
Febrúar 9 1
Mars 3 0
Apríl 2 0
Maí 1 2

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Sýslumaðurinn í Borgarnesi.

Fjárnámsbeiðnir Nauðungarsölubeiðnir
September 45 30
Október 53 22
Nóvember 31 15
Desember 19 30
Janúar 24 29
Febrúar 54 24
Mars 31 14
Apríl 88 11
Maí 40 60

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Sýslumaðurinn í Búðardal.

Fjárnámsbeiðnir Nauðungarsölubeiðnir
September 4 0
Október 6 3
Nóvember 3 3
Desember 0 4
Janúar 8 1
Febrúar 5 0
Mars 14 0
Apríl 2 1
Maí 8 0


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Sýslumaðurinn á Eskifirði.

Fjárnámsbeiðnir Nauðungarsölubeiðnir
September 54 26
Október 33 5
Nóvember 33 3
Desember 15 12
Janúar 159 14
Febrúar 28 9
Mars 66 13
Apríl 28 4
Maí 34 15

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Sýslumaðurinn í Hafnarfirði.
Fjárnámsbeiðnir Nauðungarsölubeiðnir
September 582 82
Október 373 40
Nóvember 418 31
Desember 276 47
Janúar 378 65
Febrúar 1102 87
Mars 363 62
Apríl 338 26
Maí 542 69


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.











Sýslumaðurinn á Hólmavík.
Fjárnámsbeiðnir Nauðungarsölubeiðnir
September 3 1
Október 5 2
Nóvember 4 1
Desember 12 0
Janúar 0 1
Febrúar 4 6
Mars 1 1
Apríl 4 0
Maí 0 5


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Sýslumaðurinn á Húsavík.
Fjárnámsbeiðnir Nauðungarsölubeiðnir
September 27 7
Október 66 3
Nóvember 17 5
Desember 26 2
Janúar 25 3
Febrúar 123 7
Mars 23 4
Apríl 70 8
Maí 20 12

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Sýslumaðurinn á Hvolsvelli.
Fjárnámsbeiðnir Nauðungarsölubeiðnir
September 26 11
Október 56 9
Nóvember 36 12
Desember 41 20
Janúar 28 23
Febrúar 108 11
Mars 33 11
Apríl 74 2
Maí 19 4


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.











Sýslumaðurinn á Höfn.
Fjárnámsbeiðnir Nauðungarsölubeiðnir
September 28 4
Október 17 4
Nóvember 21 4
Desember 16 0
Janúar 39 6
Febrúar 19 3
Mars 10 3
Apríl 15 3
Maí 9 0

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Sýslumaðurinn á Ísafirði.
Fjárnámsbeiðnir Nauðungarsölubeiðnir
September 47 13
Október 39 7
Nóvember 12 15
Desember 41 0
Janúar 43 21
Febrúar 47 11
Mars 28 11
Apríl 14 6
Maí 28 6


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.












Sýslumaðurinn í Keflavík.
Fjárnámsbeiðnir Nauðungarsölubeiðnir*
September 259 Sept. – okt. 2008 132
Október 504 Nóv. – des. 2008 153
Nóvember 440 Jan. – feb. 2009 123
Desember 220 Mars – apríl 2009 91
Janúar 243 Maí 2009 56
Febrúar 738
Mars 824
Apríl 225
+Maí 250
* Á tímabilinu september til desember 2008 stofnuðust 172 ný nauðungarsölumál og að baki þeim núna eru 285 nauðungarsölubeiðnir, eða að meðaltali 1,65 beiðni í hverju máli. Á tímabilinu janúar til maí 2009 stofnuðust 234 ný nauðungarsölumál, eða að meðaltali 1,15 beiðni í hverju máli.
Samtals er um að ræða 375 mál sem 555 beiðnir liggja að baki. Eru það 1,48 beiðnir í hverju máli.

    Þróun beiðna er sett upp í tvö gröf þar sem upplýsingar um fjölda beiðna er gefinn upp á mismunandi tímabilum.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




















Sýslumaðurinn í Kópavogi.
Fjárnámsbeiðnir Nauðungarsölubeiðnir*
September 326 51
Október 676 59
Nóvember 225 62
Desember 245 49
Janúar 188 51
Febrúar 834 55
Mars 752 101
Apríl 264 35
Maí 279 66
*Nauðungarsölubeiðnir um fasteignir.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Sýslumaðurinn á Patreksfirði.

Fjárnámsbeiðnir Nauðungarsölubeiðnir
September 3 0
Október 14 19
Nóvember 6 0
Desember 4 20
Janúar 8 6
Febrúar 12 7
Mars 53 17
Apríl 13 5
Maí 14 1

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Sýslumaðurinn í Reykjavík.
Fjárnámsbeiðnir Nauðungarsölubeiðnir
September 1.748 407
Október 2.068 323
Nóvember 1.046 284
Desember 1.413 283
Janúar 1.180 373
Febrúar 2.720 234
Mars 1.590 278
Apríl 1.589 201
Maí 1.606 302

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.





Sýslumaðurinn á Sauðárkróki.

Fjárnámsbeiðnir Nauðungarsölubeiðnir
September 35 5
Október 19 6
Nóvember 15 6
Desember 8 5
Janúar 54 7
Febrúar 23 12
Mars 12 11
Apríl 24 8
Maí 24 7

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Sýslumaðurinn á Selfossi.
Fjárnámsbeiðnir Nauðungarsölubeiðnir
September 246 115
Október 171 67
Nóvember 155 68
Desember 161 88
Janúar 172 114
Febrúar 449 98
Mars 310 197
Apríl 178 58
Maí 189 114

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Sýslumaðurinn á Seyðisfirði.

Fjárnámsbeiðnir Nauðungarsölubeiðnir
September 86 9
Október 46 3
Nóvember 50 16
Desember 5 3
Janúar 36 1
Febrúar 186 2
Mars 59 22
Apríl 46 4
Maí 25 11


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Sýslumaðurinn á Siglufirði.

Fjárnámsbeiðnir Nauðungarsölubeiðnir
September 12 8
Október 9 6
Nóvember 36 7
Desember 9 18
Janúar 19 10
Febrúar 52 17
Mars 8 12
Apríl 21 7
Maí 8 10

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.





Sýslumaðurinn í Stykkishólmi.

Fjárnámsbeiðnir Nauðungarsölubeiðnir
September 29 17
Október 18 18
Nóvember 25 7
Desember 21 8
Janúar 50 18
Febrúar 33 20
Mars 37 18
Apríl 42 11
Maí 31 12

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.












Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum.

Fjárnámsbeiðnir Nauðungarsölubeiðnir
Október 38 6
Nóvember 17 9
Desember 12 2
Janúar 24 3
Febrúar 26 9
Mars 40 8
Apríl 18 3
Maí 39 2
Júní * 10 0
*Fram til 5. júní 2009

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Sýslumaðurinn í Vík.

Fjárnámsbeiðnir Nauðungarsölubeiðnir
September 8 1
Október 13 0
Nóvember 12 1
Desember 4 1
Janúar 12 1
Febrúar 10 4
Mars 4 1
Apríl 58 1
Maí 1 1


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Heildarfjöldi beiðna.
Fjárnámsbeiðnir Nauðungarsölubeiðnir
September 3.858 867
Október 4.497 685
Nóvember 2.769 629
Desember 2.748 683
Janúar 2.988 886
Febrúar 7.036 690
Mars 4.507 850
Apríl 3.461 444
Maí 3.372 766


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


2. Beiðnir um fjárnám og nauðungarsölu á árunum 2006, 2007 og 2008 í heild.

Aðfararbeiðnir Nauðungarsölubeiðnir
Sýslumaðurinn á Akranesi
2006 499 101
2007 534 91
2008 621 88
Samtals 1.654 280
Sýslumaðurinn á Akureyri
2006 1.425 369
2007 1.720 513
2008 1.830 478
Samtals 4.975 1.360
Sýslumaðurinn á Blönduósi
2006 548 73
2007 360 47
2008 296 29
Samtals 1.204 149
Sýslumaðurinn í Bolungarvík
2006 85 40
2007 100 26
2008 100 59
Samtals 285 125
Sýslumaðurinn í Borgarnesi
2006 402 15
2007 573 6
2008 381 22
Samtals 1.356 43
Sýslumaðurinn í Búðardal
2006 45 9
2007 46 18
2008 100 25
Samtals 4.975 1.360
Sýslumaðurinn á Eskifirði
2006 432 80
2007 504 88
2008 528 151
Samtals 1.464 319
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði
2006 4.153 526
2007 4.422 569
2008 4.958 632
Samtals 12.977 1.727
Sýslumaðurinn á Hólmavík
2006 1.425 369
2007 1.720 513
2008 1.830 478
Samtals 4.975 1.360
Sýslumaðurinn á Húsavík
2006 494 123
2007 580 151
2008 340 119
Samtals 1.414 393
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli
2006 435 103
2007 421 94
2008 517 108
Samtals 1.373 305
Sýslumaðurinn á Höfn
2006 159 57
2007 108 45
2008 126 38
Samtals 393 130
Sýslumaðurinn á Ísafirði
2006 518 93
2007 416 116
2008 491 104
Samtals 1.425 313
Sýslumaðurinn í Keflavík
2006 3.322 394
2007 3.601 547
2008 4.227 562
Samtals 11.150 1.503
Sýslumaðurinn í Kópavogi
2006 4.256 500
2007 4.171 558
2008 4.530 638
Samtals 12.957 1.696
Sýslumaðurinn á Patreksfirði
2006 281 65
2007 302 112
2008 209 78
Samtals 792 255
Sýslumaðurinn í Reykjavík
2006 19.129 2.509
2007 19.758 2.482
2008 18.541 2.277
Samtals 57.428 7.268
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki
2006 285 138
2007 257 54
2008 261 87
Samtals 803 279
Sýslumaðurinn á Selfossi
2006 1.720 338
2007 2.099 618
2008 2.419 618
Samtals 6.238 1.574
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
2006 880 129
2007 624 83
2008 723 94
Samtals 2.227 306
Sýslumaðurinn á Siglufirði
2006 153 95
2007 202 89
2008 191 121
Samtals 546 305
Sýslumaðurinn í Stykkishólmi
2006 485 140
2007 352 122
2008 396 116
Samtals 1.233 378
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
2006 322 104
2007 369 67
2008 330 95
Samtals 1.021 266
Sýslumaðurinn í Vík
2006 99 20
2007 103 18
2008 176 15
Samtals 378 53
Heildarfjöldi beiðna
2006 40.211 6.050
2007 41.659 6.440
2008 42.340 6.570
Samtals 124.210 19.060
Meðaltal beiðna á mánuði
2006 3.351 504
2007 3.472 537
2008 3.528 548

Meðaltal beiðna á mánuði.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.













3. Beiðnir um fjárnám og nauðungarsölu sem komið hafa fram það sem af er þessu ári.


Fjárnámsbeiðnir Nauðungarsölubeiðnir
Sýslumaðurinn á Akranesi 485 83
Sýslumaðurinn á Akureyri 926 291
Sýslumaðurinn á Blönduósi 145 22
Sýslumaðurinn í Bolungarvík 32 4
Sýslumaðurinn í Borgarnesi 237 169
Sýslumaðurinn í Búðardal 39 2
Sýslumaðurinn á Eskifirði 285 57
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði 2.723 479
Sýslumaðurinn á Hólmavík 9 13
Sýslumaðurinn á Húsavík 261 34
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli 262 67
Sýslumaðurinn á Höfn 93 15
Sýslumaðurinn á Ísafirði 160 55
Sýslumaðurinn í Keflavík 2.280 270
Sýslumaðurinn í Kópavogi 2.317 30 beiðnir vegna fasteigna
Sýslumaðurinn á Patreksfirði 100 36
Sýslumaðurinn í Reykjavík 8.685 1.388
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki 137 45
Sýslumaðurinn á Selfossi 1.298 581
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði 352 40
Sýslumaðurinn á Siglufirði 108 56
Sýslumaðurinn í Stykkishólmi 193 79
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum 147 25
Sýslumaðurinn í Vík 84 14
Heildarfjöldi janúar – maí 2009 21.383 3.855
Meðalfjöldi á mánuði janúar – maí 2009 4.276,6 771


4. Hlutfall þeirra sem hafa nýtt sér ákvæði laga um frestun nauðungarsölu.
    Sýslumannsembættin svöruðu þessum hluta fyrirspurnarinnar á mismunandi hátt og samræmdar tölur liggja ekki fyrir. Tölvukerfi sýslumannsembættanna gefur ekki kost á að kalla eftir ítarlegum upplýsingum og því hefur slík vinnsla farið fram handvirkt. Ekki höfðu öll embætti tök á að athuga hversu margir gerðarþolar uppfylltu skilyrði laga til að fá frestun nauðungarsölu, enda um tímafreka úrvinnslu að ræða.
    Tölur um nauðungarsölumál gera ekki í öllum tilfellum greinarmun á því hvort viðkomandi gerðarþolar uppfylltu skilyrði laga til að fá nauðungarsölu frestað. Einnig skal tekið fram að beiðnir um nauðungarsölur geta verið vegna íbúðarhúsnæðis eða annars konar fasteigna.

Sýslumaðurinn á Akranesi.
    12 nauðungarsölumál eru á fresti skv. 3. gr. laga nr. 23/2009 og eru það um 90% þeirra sem geta nýtt sér frestinn.

Sýslumaðurinn á Akureyri.
    Af þeim 50 aðilum sem áttu möguleika á frestun nauðungarsölu skv. 3. gr. laga nr. 23/2009 hafa 26 nýtt sér þann kost, eða 52%.

Sýslumaðurinn á Blönduósi.
    Af þeim 17 aðilum sem áttu möguleika á frestun nauðungarsölu skv. 3. gr. laga nr. 23/2009 hafa tveir nýtt sér þann kost, eða 12%.

Sýslumaðurinn í Bolungarvík.
    Af þeim fjórum aðilum sem áttu möguleika á frestun nauðungarsölu skv. 3. gr. laga nr. 23/2009 hafa þrír nýtt sér þann kost, eða 75%.

Sýslumaðurinn í Borgarnesi.
    Tveir aðilar hafa óskað eftir fresti vegna nauðungarsölu, en 169 beiðnir hafa borist embættinu það sem af er árinu 2009.

Sýslumaðurinn í Búðardal.
         Hlutfall þeirra sem óskað hafa eftir frestun er 3,2%.

Sýslumaðurinn á Eskifirði.
    Embættinu hafa borist 57 nauðungarsölubeiðnir á árinu og hafa 10 gerðarþolar sótt um frest samkvæmt heimild 3. gr. laga nr. 23/2009.

Sýslumaðurinn í Hafnarfirði.
    Í meðferð hjá embættinu eru 375 nauðungarsölumál á fasteignum og 115 málum hefur verið frestað með vísan til laganna, eða 31%.

Sýslumaðurinn á Hólmavík.
    Einn aðili hefur átt möguleika á því að nýta sér frest á nauðungarsölu skv. 3. gr. laga nr. 23/2009 og hefur hann hlotið slíkan frest. Flestar beiðnir um nauðungarsölu hafa verið afturkallaðar en nú bíða þrjár beiðnir ákvörðunar um fyrstu fyrirtöku. Þeim gerðarþolum verður leiðbeint um rétt til frestunar þegar þar að kemur.

Sýslumaðurinn á Húsavík.
    Af þeim 12 aðilum sem áttu möguleika á frestun nauðungarsölu skv. 3. gr. laga nr. 23/2009 hafa átta nýtt sér þann kost, eða um 67%.

Sýslumaðurinn á Hvolsvelli.
    Af þeim 25 aðilum sem áttu möguleika á frestun nauðungarsölu skv. 3. gr. laga nr. 23/2009 hafa 10 aðilar nýtt sér þann frest, eða 40 %.
Sýslumaðurinn á Höfn
    Af þeim 17 aðilum sem áttu möguleika á frestun nauðungarsölu skv. 3. gr. laga nr. 23/2009 hafa níu aðilar gert það, eða 53%.

Sýslumaðurinn á Ísafirði.
    Þrír hafa óskað eftir frestun nauðungarsölu, einum var hafnað þar sem húsnæðið var iðnaðarhúsnæði, s.s. hlutfallið er 5,1%. Gerðarþolum virðist ekki kunnugt um þetta úrræði, en embættið sendir öllum ábyrgðarbréf með skýringum ásamt umsóknareyðublaði um frestinn.

Sýslumaðurinn í Keflavík.
    Nauðungarsölum hjá sýslumanninum í Keflavík hefur verið frestað fram yfir 31. október 2009 með heimild í lögum nr. 23/2009 sem hér segir:

Staða máls Mál alls Málum frestað Hlutfall frestað
Fyrsta fyrirtaka 84 33 39,3%
Byrjun uppboðs 92 59 64,1%
Framhald uppboðs 27 5 18,5%

    Tölur um mál gera ekki greinarmun á því hvort viðkomandi gerðarþolar uppfylltu skilyrði laga nr. 23/2009 til að fá máli frestað. Við skoðun á hverju þeirra 27 mála sem höfðu stöðuna framhald uppboðs kemur í ljós að 11 gerðarþolar af 27 uppfylltu skilyrði laganna til að fá máli frestað, en aðeins 5 þeirra, eða 45%, nýttu sér þá heimild.

Sýslumaðurinn í Kópavogi.
    Til meðferðar hjá embættinu eru 95 nauðungarsölubeiðnir og 54 hafa nýtt sér frest skv. 3. gr. laga nr. 23/2009

Sýslumaðurinn á Patreksfirði.
    Af þeim 15 aðilum sem áttu möguleika á frestun nauðungarsölu skv. 3. gr. laga nr. 23/200 hafa fimm nýtt sér þann kost, eða 33%.

Sýslumaðurinn í Reykjavík.
    Hlutfall þeirra sem hafa nýtt sér ákvæðið er um 25–30% þar sem miðað er við ólokin mál einstaklinga. Hlutfallið er þá miðað við þau mál sem eru til meðferðar hjá einstaklingum. Embætti sýslumannsins í Reykjavík gat ekki lagt fram nákvæmar tölur um fjölda gerðarþola sem áttu/eiga möguleika á að fá frestun nauðungarsölu. Þótt gerðarþoli sé einstaklingur liggur ekki fyrir hvort hann á rétt á frestun, þar sem ekki er ljóst hvort um lögheimili er að ræða.

Sýslumaðurinn á Sauðárkróki.
         Af þeim 11 aðilum sem áttu möguleika á frestun nauðungarsölu skv. 3. gr. laga nr. 23/2009 hafa fjórir nýtt sér þann kost, eða 36%.

Sýslumaðurinn á Selfossi.
    3,81% þeirra sem hafa átt möguleika á því að nýta sér frestun nauðungarsölu skv. 3. gr. laga nr. 23/2009 hafa gert það.

Sýslumaðurinn á Seyðisfirði.
    100% þeirra sem áttu möguleika á því að nýta sér frestun nauðungarsölu skv. 3. gr. laga nr. 23/2009. 14 aðilar áttu kost á fresti.

Sýslumaðurinn á Siglufirði.
    Af þeim 9 aðilum sem áttu möguleika á frestun nauðungarsölu skv. 3. gr. laga nr. 23/2009 hafa fimm aðilar nýtt sér þann kost, eða um 56%. Réttur til að óska eftir fresti er til staðar í fimm tilvikum í viðbót, þar sem fyrstu fyrirtöku er nýlega lokið.

Sýslumaðurinn í Stykkishólmi.
    Af þeim 15 aðilum sem áttu möguleika á frestun nauðungarsölu skv. 3. gr. laga nr. 23/2009 hafa níu nýtt sér þann kost, eða 60%.

Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum.
    Af þeim 23 aðilum sem áttu möguleika á frestun nauðungarsölu skv. 3. gr. laga nr. 23/2009 hafa þrír nýtt sér þann kost, eða 13%.

Sýslumaðurinn í Vík.
    Sjö beiðnir eru til meðferðar hjá embættinu. Tveir hafa fengið frestun, tveir til viðbótar uppfylla líklega skilyrði en hafa ekki sótt um frestun og þrír hafa ekki fengið frestun enda uppfylla þeir ekki skilyrðin.