Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 67. máls.
137. löggjafarþing 2009.
Þskj. 128  —  67. mál.




Svar



dóms- og kirkjumálaráðherra við fyrirspurn Guðmundar Steingrímssonar um niðurstöðu nefndar um stöðu barna í mismunandi fjölskyldugerðum.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hver er afstaða ráðherra til niðurstöðu nefndar um stöðu barna í mismunandi fjölskyldugerðum, sem birt var á vegum félagsmálaráðuneytisins í vor?
     2.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því með lagafrumvarpi, og þá hvenær, að eftirfarandi breytingar verði gerðar á réttarstöðu barna og foreldra, í samræmi við niðurstöður nefndarinnar:
                  a.      að maður sem telur sig föður barns geti höfðað ógildingar- eða vefengingarmál þegar um feðrað barn er að ræða,
                  b.      að dómarar fái heimild til þess að dæma sameiginlega forsjá í forsjárdeilum,
                  c.      að sjálfvirk forsjá stjúp- og sambúðarforeldris verði afnumin,
                  d.      að forsjár- og forsjárlausir foreldrar hafi sama rétt til aðgangs að skriflegum upplýsingum um barn sitt,
                  e.      að sýslumenn og dómarar fái heimild til þess að ákveða umgengni 7 af 14 dögum,
                  f.      að börn geti átt tvö lögheimili?
     3.      Ef svo er ekki, hvers vegna?


    Í fyrirspurninni eru bornar fram áleitnar spurningar sem varða réttarstöðu barna og foreldra, sem aðallega er fjallað um í barnalögum, nr. 76/2003. Vísað er til skýrslu nefndar um stöðu barna í mismunandi fjölskyldugerðum, sem skipuð var árið 2007 af félagsmálaráðherra í kjölfar ályktunar Alþingis um aðgerðaáætlun til fjögurra ára til að styrkja stöðu barna og ungmenna. Í nefndinni átti m.a. sæti fulltrúi dóms- og kirkjumálaráðuneytis. Eins og fram kemur í skýrslunni tók fulltrúi ráðuneytisins ekki afstöðu til þeirra tillagna sem nefndin gerði og snerta málefnasvið dóms- og kirkjumálaráðuneytis. Byggðist sú nálgun á því að þegar er að störfum nefnd sem þáverandi dóms- og kirkjumálaráðherra skipaði árið 2008 til að fjalla um þessi málefni. Í nefndinni eiga sæti Hrefna Friðriksdóttir, lögfræðingur og lektor í sifja- og erfðarétti við Háskóla Íslands, sem jafnframt er formaður, Álfheiður Steinþórsdóttir sálfræðingur og Ingveldur Einarsdóttir héraðsdómari.
    Nefndinni er ætlað að skila tillögum sínum útfærðum til ráðherra í formi lagafrumvarps. Við endurskoðun laganna mun nefndin m.a. líta til og taka afstöðu til tillagna fyrrgreindrar nefndar félagsmálaráðherra en einnig kalla eftir sjónarmiðum fleiri aðila.
    Líklegt er að lagðar verði til breytingar á barnalögum sem koma til móts við tillögur nefndar félagsmálaráðherra en dóms- og kirkjumálaráðherra mun taka endanlega afstöðu til einstakra álitaefna þegar útfærðar tillögur sérfræðinganefndarinnar liggja fyrir. Gert er ráð fyrir að það verði nú í haust.