Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 46. máls.
137. löggjafarþing 2009.
Þskj. 168 — 46. mál.
forsætisráðherra við fyrirspurn Sivjar Friðleifsdóttur um viðbrögð við skýrslu Andrew Gracie um stöðu bankanna.
1. Til hvaða aðgerða gripu Seðlabanki Íslands og ríkisstjórnin í kjölfarið á skýrslu Andrew Gracie í maí 2008 um viðbragðsáætlun vegna vanda bankanna við að fjármagna sig og hættu á fjármálakreppu?
Forsætisráðuneytið leitaði til Seðlabanka Íslands við undirbúning svars við fyrirspurninni. Að sögn bankans kom Andrew Gracie, forstjóri Crisis Management Analytics Ltd., í heimsókn til Íslands í febrúar 2008 að beiðni Seðlabankans. Hann er fyrrum sérfræðingur í viðbúnaðarmálum í Bank of England, en rekur nú eigin fyrirtæki á þessu sviði. Andrew Gracie undirbjó og stýrði norrænni viðlagaæfingu í september 2007 þar sem viðbrögð og samvinna yfirvalda í bankakreppu voru æfð. Seðlabankinn, Fjármálaeftirlitið og fjármálaráðuneytið tóku þátt í æfingunni fyrir Íslands hönd. Viðfangsefni Andrew Gracie við komuna í febrúar 2008 voru að sögn Seðlabankans þríþætt. Í fyrsta lagi efndi Seðlabankinn til lokaðs málþings þar sem fulltrúar Seðlabankans, Fjármálaeftirlitsins og ráðuneyta fóru yfir norrænu viðlagaæfinguna frá árinu áður. Í öðru lagi var rætt við Gracie um að hann héldi sérstakt erindi og mundi auk þess gera grein fyrir norrænu viðlagaæfingunni á fundi norrænna seðlabankastjóra sem haldinn var á Egilsstöðum í júní 2008. Í þriðja lagi var Andrew Gracie falið að fara yfir viðlagaundirbúning Seðlabankans og veita ráð. Hann setti fram ráðgjöf sína í myndrænni kynningu.
Andrew Gracie lýsti þeirri hættu sem fylgdi lausafjárþröng, rakti afleiðingar við góða sem slæma útkomu, kostnaðarþætti við fjármálaáfall og hvað þyrfti að gera á næstu mánuðum. Hann lagði til að Seðlabankinn, fjármálaráðuneytið og Fjármálaeftirlitið kæmu að sameiginlegu mati á ástandinu og aðgerðaáætlun. Slíkt mat og kortlagning valkosta var unnið af Seðlabankanum og Fjármálaeftirlitinu. Í framhaldinu gerðu Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið ýtarlega aðgerðaáætlun eða svokallaða Sviðsmynd af fjármálaáfalli. Heimsókn Andrew Gracie studdi bæði við þá vinnu sem þegar hafði verið unnin innan Seðlabankans og áframhaldandi vinnu í viðlagamálum. Fylgst var með þróun mála hjá fjármálafyrirtækjum og greint hvaða möguleikar væru í stöðunni. Mögulegur kostnaður vegna fjármálaáfalls var metinn. Skilaboðum um úrræði í þessum efnum var komið á framfæri við stjórnvöld á fundi samráðshóps stjórnvalda í mars 2008 en á þeim vettvangi var skipst á upplýsingum og m.a. unnið að skoðun á lagalegum þáttum sem nýttust við gerð neyðarlaga.
Andrew Gracie lagði einnig til að eftirlit með lausafjárstöðu væri aukið og var það gert. Samkvæmt reglum skila fjármálafyrirtækin lausafjárskýrslum til Seðlabankans mánaðarlega. Í samstarfi Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins var auk þess safnað gögnum vikulega með lausafjáryfirliti til 8 næstu daga sem og mánaðarlegu viðbótaryfirliti til 18 mánaða. Einnig voru mun tíðari og meiri samskipti við bankana sjálfa. Auk þessa fékk Seðlabankinn upplýsingar frá stóru bönkunum þremur um kjör og skilmála í lánasamningum og eigin viðbúnaðaráætlanir þeirra í fjármögnun. Seðlabankinn jók einnig að eigin sögn eftirlit með smærri bönkum.
2. Hvaða aðgerðum sem lagðar voru til í viðbragðsáætluninni var ekki hrundið í framkvæmd, af hverju ekki og hverjir tóku ákvarðanir um það?
Forsætisráðuneytið býr ekki yfir fyllri upplýsingum um þetta efni en þeim sem fram koma hér að framan. Öll gögn sem varða aðdraganda bankahrunsins hafa verið afhent rannsóknarnefnd Alþingis. Þess má vænta að nánari greining á viðbrögðum stjórnvalda muni koma fram í skýrslu nefndarinnar, sbr. 15. gr. laga nr. 142/2008. Þá er rétt að benda á að finnski bankasérfræðingurinn Kaarlo Jännäri fjallar í skýrslu sinni, sem birt var í lok mars sl., stuttlega um ráðgjöf Andrew Gracie.
137. löggjafarþing 2009.
Þskj. 168 — 46. mál.
Svar