Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 130. máls.
137. löggjafarþing 2009.
Þskj. 182  —  130. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um skólaeinkunnir og inntöku nemenda í framhaldsskóla.

Frá Vigdísi Hauksdóttur.



     1.      Hefur ráðherra látið kanna skólaeinkunnir (í íslensku, ensku, stærðfræði, dönsku, náttúrufræði og samfélagsfræði) hjá nemendum sem útskrifuðust úr grunnskóla nú í vor og hvort skólaeinkunnir nemenda í 10. bekk hafa hækkað á milli áranna 2008 og 2009?
     2.      Ef í ljós kom mikill munur á einkunnum á milli skóla og að einkunnadreifing er með öðrum hætti en undanfarin ár, hvert er mat ráðherra á því og hver gæti verið ástæðan?
     3.      Hefur í þessu sambandi verið kallað eftir faglegu áliti sérfræðinga í námsmati, t.d. hjá Námsmatsstofnun, og eftir áliti skólastjórnenda grunn- og framhaldsskóla hvað varðar þetta nýja fyrirkomulag og reynslu þeirra af því?
     4.      Hefur ráðherra hug á að kalla saman faghóp til þess að fara yfir reynsluna af breyttu fyrirkomulagi og fá hann til þess að leggja mat á kosti og galla og leiðir til úrbóta ef í ljós kemur að þess er þörf?
     5.      Hvenær má vænta þess að almennur hluti námskrár taki gildi og þá ákvæði um skólaeinkunnir?
     6.      Telur ráðherra eðlilegt að grunnskólar hafi engin samræmd viðmið eða leiðbeiningar frá ráðuneytinu hvað varðar skólaeinkunn upp úr 10. bekk, þ.e. við lok skyldunáms?
     7.      Telur ráðherra að jafnræðis hafi verið gætt við inntöku nemenda í framhaldsskóla nú í vor?
     8.      Telur ráðherra eðlilegt að framhaldsskólarnir hafi markað sér stefnu um inntökuskilyrði eftir að umsóknarfrestur rann út í vor?
     9.      Hefur ráðherra skoðað þann möguleika að nemendum standi til boða að taka samræmd próf jafnhliða skólaeinkunn, að taka upp hverfisskóla eins og áður var eða að framhaldsskólum verði leyft að bjóða upp á inntökupróf?
     10.      Hefur ráðherra markað sér stefnu hvað varðar aukna faglega ráðgjöf í námsmati og formlegt eftirlit með námsmati í grunnskólum landsins?


Skriflegt svar óskast.