Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 102. máls.
137. löggjafarþing 2009.
Þskj. 207  —  102. mál.




Svar



utanríkisráðherra við fyrirspurn Þórunnar Sveinbjarnardóttur um hlutfall karla og kvenna í stöðu forstjóra/forstöðumanna opinberra stofnana sem heyra undir ráðuneytið.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvert er hlutfall karla og kvenna í stöðu forstjóra/forstöðumanna opinberra stofnana sem heyra undir ráðuneytið og hve lengi hafa þeir gegnt embætti?

    Undirstofnanir og tengdar stofnanir ráðuneytisins eru þrjár og hlutfall karla og kvenna í stöðu forstjóra/forstöðumanna er 2 karlar og 1 kona (kk. 66,66% – kvk. 33,33%). Annar karlinn hefur gegnt embætti í 16 ár og hinn í rúm 8 ár en konan í 1 ár.
    Hér eru ítarlegri upplýsingar:
          Útflutningsráð: Jón Ásbergsson hefur gegnt embætti frá sumrinu 1993 (16 ár).
          Varnarmálastofnun: Ellisif Tinna Víðisdóttir hefur gegnt embætti frá 1. júní 2008 (1 ár).
          Þróunarsamvinnustofnun: Sighvatur Björgvinsson hefur gegnt embætti frá febrúar 2001 (rúm 8 ár).