Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 95. máls.
137. löggjafarþing 2009.
Þskj. 212 — 95. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Skúla Helgasonar um hálaunastörf á vegum ríkisins.
1. Hversu margir ríkisstarfsmenn hafa hærri heildarlaun en forsætisráðherra?
Samkvæmt úrskurði Kjararáðs frá 29. desember 2008 eru mánaðarlaun forsætisráðherra 935 þús. kr. á mánuði. Er þá ekki tekið tillit til mögulegra greiðslna samkvæmt reglum um þingfararkostnað eða annarra atriða sem telja má til starfskjara, svo sem afnota af ráðherrabifreið skv. 10. gr. reglugerðar nr. 580 frá 4. desember 1991, um bifreiðamál ríkisins. Í eftirfarandi svari er miðað við mánaðarlaun forsætisráðherra samkvæmt úrskurði Kjararáðs, þ.e. 935 þús. kr. á mánuði.
Skoðuð voru launagögn i launakerfi Fjársýslu ríkisins og tekið mið af launum þeirra ríkisstarfsmanna sem taka laun samkvæmt kjarasamningi. Starfsmenn í hlutastarfi eru undanskildir og miðað við 90% starfshlutfall að lágmarki. Einnig eru þeir starfsmenn undanskildir sem fengu óreglulegar greiðslur sem ekki tilheyra viðkomandi mánuði, svo sem vegna uppgjörs á orlofi eða annarra greiðslna sem falla til á lengra tímabili.
Til heildarlauna teljast mánaðarlaun, yfirvinnulaun og svokölluð önnur laun. Til annarra launa teljast gæsluvaktir lækna, staðarvaktir á sjúkrahúsum, vottorðagreiðslur og gjaldskrárverk lækna í heilsugæslu, vaktaálag vaktavinnustétta, greiðslur vegna bakvakta ásamt öðrum launagreiðslum sem ekki teljast til mánaðarlauna eða yfirvinnulauna.
Samsetning heildarlauna innan ríkisstofnana hefur tekið töluverðum breytingum á undanförnum mánuðum og því þótti ekki fært að taka meðaltal launa á þriggja til fjögurra mánaða tímabili eins og æskilegt væri í samanburði sem þessum, enda geta tilfallandi aðstæður leitt til þess að heildarlaun í einum mánuði eru hærri en ef heilt ár er skoðað í senn. Af tölum úr launakerfi Fjársýslunnar má dæma að margir forstöðumenn hafa að eigin frumkvæði brugðist við breyttum efnahagsaðstæðum og breytt vinnufyrirkomulagi innan stofnana sinna eða breytt samsetningu heildarlauna á annan hátt, sem leitt hefur til lækkunar þeirra. Aðgerðir af slíku tagi krefjast aðdraganda og taka tíma að koma fram og því er miðað við laun sem greidd voru vegna starfa í mars 2009. Vegna þessara annmarka er ekki hægt með vissu hægt að fullyrða að sama niðurstaða fengist ef lengra tímabil yrði skoðað.
Af 20.762 starfsmönnum sem fengu greidd dagvinnulaun í mars 2009 voru 402 starfsmenn sem uppfylltu fyrrnefnd skilyrði og voru með hærri heildarlaun en forsætisráðherra.
2. Hver er sundurliðun þessa hóps eftir starfsstéttum?
Ekki er tekið sérstaklega fram hvernig skal skipta hópnum milli starfsstétta og var því brugðið á það ráð að miða við stéttarfélög viðkomandi faghópa. Þar sem sumir sinna störfum sínum á fleiri en einni stofnun og geta verið í fleiri en einu stéttarfélagi tekur sundurliðunin mið af því hvar meginhluti tekna viðkomandi einstaklinga falla. Einkum er um að ræða lækna sem einnig eru prófessorar.
3. Hver verður árlegur sparnaður ríkissjóðs ef laun þessara starfsmanna verða lækkuð til jafns við laun forsætisráðherra?
Til að meta hver árlegur sparnaður ríkissjóðs yrði ef laun þessara starfsmanna verða lækkuð til jafns við laun forsætisráðherra verður að líta til samsetningar heildarlauna þeirra. Einnig verður að taka tillit til þess að forsætisráðherra fellur ekki undir lög nr. 88/1971, um 40 stunda vinnuviku, en töluverður hluti launa þess hóps sem hér er til umfjöllunar fellur til vegna vinnu umfram 40 stundir á viku.
Laun þeirra 402 starfsmanna sem eru með hærri heildarlaun en forsætisráðherra skiptast milli dagvinnulauna, yfirvinnulauna og svokallaðra annarra launa eins og að neðan greinir. Vísast í fyrri útskýringar um hvað tilheyrir hverjum launalið.
Heildarlaun hópsins þyrftu að lækka um 20% til að þau yrðu jöfn heildarlaunum forsætisráðherra, 935 þús. kr. Með þeim fyrirvara að launasetningin í mars eigi við um heilt ár yrði árlegur sparnaður um 1,5 milljarðar kr. að meðtöldum launatengdum gjöldum (1,2% af áætluðum launakostnaði ríkisins). Þar sem ekki er hægt að hreyfa við dagvinnuhluta launa með einhliða aðgerðum yrði lækkun heildarlauna öll að koma fram í lækkun þeim hluta launanna sem fellur til vegna yfirvinnu eða vinnu og verkefna sem leiða til greiðslu „annarra launa“. Það jafngildir 44% lækkun launaliðanna sem mundi leiða til samsvarandi minnkunar vinnumagns. Slíkt mundi leiða til skertrar þjónustu og breytinga á vinnufyrirkomulagi hjá þeim starfsstéttum sem um ræðir, svo sem færri staðar- og gæsluvaktir á sjúkrahúsum, færri gjaldskrárverk innan heilsugæslu ásamt breyttu fyrirkomulagi og samdrætti í vaktavinnu og minni kennslu í framhaldsskólum og háskólum.
137. löggjafarþing 2009.
Þskj. 212 — 95. mál.
Svar

| Stéttarfélag Fjöldi einstaklinga | |
|
Læknafélag Íslands
|
301 |
|
Skurðlæknafélag Íslands
|
34 |
|
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
|
13 |
|
Félag prófessora við ríkisháskóla
|
12 |
|
Kennarasamband Íslands
|
10 |
|
Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga
|
6 |
| Innan eftirfarandi stéttarfélaga eru 5 eða færri einstaklingar: |
|
| Dýralæknafélag Íslands Félag háskólakennara Félag háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins Félag íslenskra atvinnuflugmanna Félag íslenskra flugumferðarstjóra Félag íslenskra náttúrufræðinga Flugvirkjafélag Íslands Landssamband lögreglumanna Ljósmæðrafélag Íslands Sálfræðingafélag Íslands Stéttarfélag lögfræðinga Stéttarfélag verkfræðinga Útgarður, félag háskólamanna |
|
|
Samtals
|
402 |
3. Hver verður árlegur sparnaður ríkissjóðs ef laun þessara starfsmanna verða lækkuð til jafns við laun forsætisráðherra?
Til að meta hver árlegur sparnaður ríkissjóðs yrði ef laun þessara starfsmanna verða lækkuð til jafns við laun forsætisráðherra verður að líta til samsetningar heildarlauna þeirra. Einnig verður að taka tillit til þess að forsætisráðherra fellur ekki undir lög nr. 88/1971, um 40 stunda vinnuviku, en töluverður hluti launa þess hóps sem hér er til umfjöllunar fellur til vegna vinnu umfram 40 stundir á viku.
Laun þeirra 402 starfsmanna sem eru með hærri heildarlaun en forsætisráðherra skiptast milli dagvinnulauna, yfirvinnulauna og svokallaðra annarra launa eins og að neðan greinir. Vísast í fyrri útskýringar um hvað tilheyrir hverjum launalið.
| Launaliður | Upphæð | Hlutfall heildarlauna |
| Dagvinnulaun | 635.253 kr. | 54,2% |
| Yfirvinnulaun | 132.180 kr. | 11,3% |
| Önnur laun | 405.583 kr. | 34,6% |
| Heildarlaun | 1.173.016 kr. | 100% |