Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 140. máls.
137. löggjafarþing 2009.
Þskj. 224  —  140. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um Suðurlandsveg og gangagerð.

Frá Sigurði Inga Jóhannssyni.



     1.      Hver er staða undirbúnings framkvæmda við endurbætur á Suðurlandsvegi annars vegar og við Vaðlaheiðargöng hins vegar?
     2.      Hvor framkvæmdin er komin lengra í undirbúningsferlinu, m.a. hvað varðar skipulagsmál?
     3.      Hefur ráðherra tjáð opinberlega að hægt væri að ráðast í þessar framkvæmdir á svipuðum tíma? Ef svo er, hvernig hyggst ráðherra fjármagna þær?
     4.      Hver er munurinn á umferðarþunga um eftirtalda vegi: Héðinsfjarðargöng, Víkurskarð og Suðurlandsveg? Hver er munurinn á tíðni slysa, þ.m.t. banaslysa, á þessum vegum?
     5.      Hvert er arðsemismat framkvæmda við:
              a.      Héðinsfjarðargöng,
              b.      Vaðlaheiðargöng,
              c.      endurbætur á Suðurlandsvegi?


Skriflegt svar óskast.