Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 1. máls.
137. löggjafarþing 2009.
Þskj. 236 — 1. mál.
um frv. til l. um stofnun opinbers hlutafélags til að stuðla að endurskipulagningu rekstrarhæfra atvinnufyrirtækja.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Guðlaug Stefánsson frá Samtökum atvinnulífsins, Ásmund Stefánsson og Gunnar Viðar frá NBI, Vilhelm Má Þorsteinsson frá Íslandsbanka og Þórð Pálsson og Helga Sigurðsson frá Nýja Kaupþingi.
Frumvarpinu var vísað til nefndarinnar að lokinni 2. umræðu. Nefndin ræddi ákvæðin um aðgang félagsins að upplýsingum og gagnsæi í störfum þess, sbr. 5. og 6. gr., í ljósi athugasemda um að ákvæðin gætu haft neikvæð áhrif á starfsemi nýju bankanna og möguleika þeirra til að hámarka endurheimtur lána. Í þeim væru lagðar íþyngjandi og kostnaðarsamar kvaðir á tilgreind fjármálafyrirtæki um miðlun upplýsinga sem raskaði samkeppni á fjármálamarkaði og drægi úr vernd sem viðskiptavinir nytu skv. 58. og 60. gr. laga um fjármálafyrirtæki. Á móti var bent á að ákvæðunum væri ætlað að eyða tortryggni skattgreiðenda sem tilkomin væri vegna lífskjaraskerðingar í kjölfar bankahrunsins og jafnframt að aðilum vinnumarkaðarins væri tryggður umsagnarréttur áður en fjármálaráðherra setti reglugerð um tilgang félagsins, sbr. lokamálsgreinar 3. og 7. gr. frumvarpsins. Í þeirri reglugerð verði útfærð nánar ákvæði 5. og 6. gr.
Meiri hlutinn leggur til þá breytingu að heimilt verði að framselja eignarhlutinn í félaginu til Bankasýslu ríkisins sem til stendur að koma á fót samkvæmt frumvarpi fjármálaráðherra á þessu löggjafarþingi (þskj. 166, 124. mál). Framsal felur í sér að kosning stjórnar félagsins verður á valdi stofnunarinnar í stað ráðherra og telur meiri hlutinn að það fyrirkomulag tryggi betur faglega ákvarðanatöku innan félagsins.
Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
Við 3. mgr. 2. gr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Fjármálaráðherra er heimilt að framselja eignarhlutinn til Bankasýslu ríkisins.
137. löggjafarþing 2009.
Þskj. 236 — 1. mál.
Framhaldsnefndarálit
um frv. til l. um stofnun opinbers hlutafélags til að stuðla að endurskipulagningu rekstrarhæfra atvinnufyrirtækja.
Frá meiri hluta efnahags- og skattanefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Guðlaug Stefánsson frá Samtökum atvinnulífsins, Ásmund Stefánsson og Gunnar Viðar frá NBI, Vilhelm Má Þorsteinsson frá Íslandsbanka og Þórð Pálsson og Helga Sigurðsson frá Nýja Kaupþingi.
Frumvarpinu var vísað til nefndarinnar að lokinni 2. umræðu. Nefndin ræddi ákvæðin um aðgang félagsins að upplýsingum og gagnsæi í störfum þess, sbr. 5. og 6. gr., í ljósi athugasemda um að ákvæðin gætu haft neikvæð áhrif á starfsemi nýju bankanna og möguleika þeirra til að hámarka endurheimtur lána. Í þeim væru lagðar íþyngjandi og kostnaðarsamar kvaðir á tilgreind fjármálafyrirtæki um miðlun upplýsinga sem raskaði samkeppni á fjármálamarkaði og drægi úr vernd sem viðskiptavinir nytu skv. 58. og 60. gr. laga um fjármálafyrirtæki. Á móti var bent á að ákvæðunum væri ætlað að eyða tortryggni skattgreiðenda sem tilkomin væri vegna lífskjaraskerðingar í kjölfar bankahrunsins og jafnframt að aðilum vinnumarkaðarins væri tryggður umsagnarréttur áður en fjármálaráðherra setti reglugerð um tilgang félagsins, sbr. lokamálsgreinar 3. og 7. gr. frumvarpsins. Í þeirri reglugerð verði útfærð nánar ákvæði 5. og 6. gr.
Meiri hlutinn leggur til þá breytingu að heimilt verði að framselja eignarhlutinn í félaginu til Bankasýslu ríkisins sem til stendur að koma á fót samkvæmt frumvarpi fjármálaráðherra á þessu löggjafarþingi (þskj. 166, 124. mál). Framsal felur í sér að kosning stjórnar félagsins verður á valdi stofnunarinnar í stað ráðherra og telur meiri hlutinn að það fyrirkomulag tryggi betur faglega ákvarðanatöku innan félagsins.
Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
Við 3. mgr. 2. gr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Fjármálaráðherra er heimilt að framselja eignarhlutinn til Bankasýslu ríkisins.
Alþingi, 7. júlí 2009.
Helgi Hjörvar,
form., frsm.
Lilja Mósesdóttir.
Magnús Orri Schram.
Álfheiður Ingadóttir.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir.
Þór Saari.